Stjarnan - 01.06.1922, Blaðsíða 16

Stjarnan - 01.06.1922, Blaðsíða 16
Hvciða meiningu felur n. kapítul- inn í bók Bsajasar spámanns í sér? Spámaðurinn Esajas er hinn mikli fagnaðarboöi gamla 'testamentisins. Hann kunngjörir fagnaöarerindiS eins skýrt og höfundar nýja testamentis- ins. Fagnaðarerindiö er boðskapur Guðs til mannanna um náð og fyrir- gefningu syndanna, og um hlutdeild hinna hólpnu í friðarríki Krists, sem innan skamms mun stofnsett verða. TJim dýrð og rikdóm þess ríkis var það að spámennirnir spáðu, Kristur pré- dikaði og postularnir rituðu. Frem- ur öllum öðrum höfundum gamla testameitisins hefir Esajas í bók sinni lýst hinu mikla framtíðarrríki Guðs barna. Hann hefir ekki einungis lýst landinu, hinni nýju jörðu, sakleysi og meinleysi allra skepna, heldur og stj órnarfyri rkomulaginu, li fnaðarhætti innbúanna og fögnuði þeirra, og hinni dýrðlegu guðsdýrkun, sem mun fram fara hvildardag eftir hvíldardag og tunglkomu eftir tunglkomu um alla eilífð í þessu syndlausa mannfélagi. Það er um þetta ríki, sam Esajas rit- ar í ii. kap. Sbr. einnig 35. kap. og 65: 17-25. Hvar er landið ús? Landið Ús, sem nefnt er í Jobs bók 1: 1, er partur af hinni núverandi Ar- abíu. Þetta er mjög auðskilið, þeg- ar maður athugar hverjar nágranna- þjóðir þessa lands voru. I Job 1 : 15, 17 lesum vér, að það voru Sabear og Kaldear. Svo það hefir verið hið bygða svæði meðfram jaðri hinnar arabisku eyðimerkur. Sjá Job 1: 19. aj Hvers vegna er Jobs bók svo mjög ólík öllum öðrum bókum ritn- ingarinnar að hugsun, framsetning og orðalagi? bj Er ekki sá Satan, sem þar er nefndur, þjónn fégirndar og auraelsku? aj Margir hafa ,haldið því fram að Job hafi aldrei verið til og að bók hans, hvað persónur og frásögn snert- ir, sé eintómur skáldskapur. En bib- lían gjörir það ekki. Bæði höfundar í gamla og nýja testamentinu tala um Job sem virkilega persónu. Sbr. Esek. 14: 14, 2; Jak. 5: 11. Og ef rvimið leyfði, imundi vera hægt að sanna með ættartölunum, að hann hafi verið samtíðarmaður Móse og Jetró. Það er þess vegna mjög sennilegt að Mós- es—um þau fjörutíu ár, meðan hann var í Midíanslandi, sem liggur upp að Ús—hafi oft heimsótt Job og ef til vill hjálpað honum að rita þessa undra- verðu bók, sem lyftir blæjunni og sýnir oss hvernig myrkravöldin starfa til þess að afvegaleiða mennina og draga þá með raunum og þrengingum í burtu frá skapara sínum. Hér finn- um vér sannar myndir upp á mann- lífið, lýsingu af stórnarfyrirkomulagi alheimsins og af skaparanum, af al- mætti, alvizku og algæzku hans. 1 þeirri bók finnum vér lýsingu hins sanna ástands mannsins í dauðanum og upprisu framliðinna á efsta degi, þegar Kristur kemur aftur í dýrð sinni. Þar að auki fjallar bókin um náttúru og stjörnufræði svo undra- verða, að stjörnufræðingar nútíimans hafa alls ekki meiri þekkingu og skilning á himintunglunum og lögun- um, sem þau fylgja, en höfundur þessarar bókar hefir haft. Vegna þess að Jobsbók er ljóðabók, jafn- gömul hinni fyrstu Mósebók og fjall- ar um svo mörg háleit efni, er hún ó- lík öðrum bókum ritningarinnar. b) Satan, sem þar er nefndur, er hin sama vera, sem vér finnum í öðr- um bókum ritningarinnar. Hann er sá, sem frá upphafi hefir kent mönn- unum að elska heiminn og fýsnir hans fremur en Guð og hans eilífa friðar- ríki.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.