Stjarnan - 01.05.1923, Síða 11

Stjarnan - 01.05.1923, Síða 11
STJARNAN 75 afleiðingum þeim, sem hryllilegt er um að lesa. Sannarlega sagöist postulan- um vel, er hann sagði, a'ó mennirnir mundu verða “bindindislausir” á síð- ustu dögunum og líka “grimmir”. Mað- ur les nú um grimdarverk, sem fram- in eru á meðal hinna mentuðustu, kristnustu og frjálsustu þjóöa, sem vart mundu hafa þðtt sæma Tyirkjum né þeim æstustu hugspiltu hérmönnum. Þessi ílokkur manna, sem postulinn segir að munu verða grimmur og bind- indislaus, mun líka “elska munaðarlíf meira en Guð.” Munaðarlíf er ávalt undanfari hnignunar og falls. Þegar fornborgin mikla, Babýlon féll í 'hend- ur Persum, var munaðarlíf, svall og bindindisleysi komið á hátt stig. Það var tilbeðið þar. Það sem formyrkv- aði frægðarljóma hins gríska fegurðar- tímabils var munaðarlíf, bindindisleysi, svall og lestir. Þetta sama atriði gerði járnlíkama Rómaríkisins að taugaveikl- uðum aumingja, sem liðaðist í sundur. Það voru hinir svallsömu hindindis- lausu lifnaðarhættir æðri stéttanna á Frakklandi, sem fyrst kveikti hina voða- legu stjórnarbyltingu. En nú er það ekki einungis ein þjóð, eða eitt alheims- ríki, sem er bindindislaust og svallsjúkt. Nei, það er allur heimur, sem þekkingu hefir á hlutunum. Hver gétur afleið- ingin orðið? Aðeins sú eina, sem hún ávalt hefir orðið. Þekking útheimtir á- valt bindindi, þess vegna erum vér á- mintir um, “að auðsýna í trúnni dygð- ina, en í dygðinni þékkinguna, en í þekk- ingunni bindindið”. Það getur aldrei verið gott fyrir manninn, að hafa þekk- ingu á hættulegum efnum og áhrifum þeirra og vita hvernig má notfæra þau bæði til ills og góðs, ef hann er van- stiltur og bindindislaus í þekkingu sinni og fer illa með yfirburðina. Þekking mannanna er orðin mikil á ýmsum svið- um, meiri en menn vita til að hún nokk- ru sinni 'hafi verið. Það er þá meiri þörf á bindindi, en það nokkru sinni hefir verið áður. En það sorglega er, aðeinmitt í allri þessari þekkingu sinni, er lieimurinn bindindjislaus, 'jfnunaðar- fíkinn, sokkinn niður í svall, ólifnað, óstjórn og hverskyns illa háttsemi, og honum er líka illa við, að sjá að baki eiturdrykknum banvæna, sem bindind- is og sannleiksvinir stöðugt leitast við að taka frá vitum óvitanna, til þess, að ef mögulegt væri að draga dálítið úr allri þeirri sorg, eymd, spillingu og brjálsemi sem nú er í heiminum. Get- ur nokkur faðir eða móðir, sem eiga að uppala börn á þessum reynslutíma heimsins, verið iköld fyrir þessu við- kvæma velferðaratriði mannkynsins? Pétur Sigurðsson. Einsamall. Það er mannlegt að gjöra það, sem aðrir gjöra, að fylgja fjöldanum, að fylgja með straumnum eins og sagt er, það er guðdómlegt að standa einsamall á grundvelli sannleikans í hinum ólgu- fulla fólksfjölda, sem reikar til og frá og kallar ekki á annað en: “Panem et Cireensis” fbrauð og leiki'J Það er hinu mannlega syndumspilta eðli and- stætt að hlýða Guði. Reynslan sýnir að það er mannlegt að hafna sannleika og réttlæti móti betri vitund, að draga siðferðis fánann niður og lifa eins og hinir, ef það getur bætt lífskjör hans. Það er guðdómlegt að fórna sjálfum sér á sannleikans altari og fullkomna öllu réttlæti. “í fyrstu málsvörn minni kom eng- inn ,mér til aðstoðar, iheldur yfirgáfu mig allir” ritaði hinn aldraði heiðingja- postuli, eftir að hann hafði mætt fram til varnar fyrir yfirboðnum völdum, er kröfðust af honum reikni.ngskapar fyr- ir þá von, trú og kenningu, sem öðru- vísi voru en trúarbrögð Rómaríkisins. Allir sneru 'bakinu við honum. Það

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.