Stjarnan - 01.03.1924, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.03.1924, Blaðsíða 4
36 STJARNAN “skuluö þér fyllast andanum’’, se'gir Páll postuli seinna i þessu bréfi (Ef. 5- Það eru tvö andleg, ósýnileg öfl, sem stríöa um herradæmiÖ yfir innbum jarÖ- arinnar, síðan syndin kom inn í heim- inn. AnnaS þessara adlegu afla verkar á mannshjartaS, til þess að leiða það til að sýna hlýðni við. öll boðorð Krists, Hitt aflið reynir alla tíð að koma mönn- um til að fótumtroða boðorðin, gjöra uppreist á móti lögmáli og stjórn Guðs og fylgja sínum eigin girndum. Þess vegna geta engir menn verið hlutlausir i þessu hræðilega stríði um réttlæti Guðs. lögmál hans og stjórn. Allir verða að skipa flokk annars hvors höfðingjans, Krists eða uppreistarforingjans. Og af þeim anda, sem þeir eru innblásnir, verð- ur það augljóst, hvorum þeir fylgja að málum. Ef maður spyrnir á móti þvi. að breyta eftir öllum boðorðum Krists, þá er það auðskilið, að hann er innblás- inn af anda 'hins mikla andstæðings; því Andi Guðs kemur mönnum til að halda öll boðorðin: “Og eg mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setningar mínar og breytið eftir þeim.” (Esek. 36: 27). Svo, ef einhvier hefir ekki löngun til að hlýða boðorðum Guðs, þá er hann fjandmaður hans og hefir alls ekki anda Krists; ,‘því að hyggja holdsins er fjand- skapur gegn Guði, með þvi að hún lýtur ekki að lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki........ En hafi ekki einhver anda Krists, þá er sá ekki hans.” (Róm. 8: 7-9). Það fyrsta, sem vér verðum að vita og skilja, er hvernig vér getum öðlast Heil- agan Anda; því menn verða að uppfylla viss skilyrði fyr en Guð gefur þeim anda sinn. Fyrst af öllu verðum vér að trúa á Guð: “f honum hafið og þér, eftir að vera orðnir trúaðir, verið inn- siglaðir miéð Heilögum Anda.” (Ef. 1:' 13. 14)- í öðru lagi verðum vér að hlýða öllu Guðs orði — öllum tíu boðorðum — fyr en Guð úthelli’r sinum anda yfir oss. Þegar postularnir stóðu fyrir ráðinu í Jerúsalem, sögðu þeir meðal annars við prestana: “Og vér erum vottar að þess- um atburðum og Heilagur andi, sem Guð hefir gefið þeim, er honum hlýða.” — (Post. 5: 32J. í þriðja lagi verðum vér að biðja Guð innilega um þessa gjöf; en nema vér trúum Guðs orði og sýnum hlýðni öllum boðorðum hans, mun hann ekki bæti- heyra oss; því “sá sem snýr eyra sinu frá til þess aö; heyra ekki logmálíð — jafn- vel bæn hans er andstygð” (Orðskv. 28; 9). En ef vér sýnum bæði trú og hlýðni, þá er Guð fús tíl að veita oss bæn- heyrslu: “Og eg segi yður: Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér munuð fin-na; knýið á, og fyrir yður mun upp- lokið verða; því hver sá öðlast, sem bið- ur, og sá finnur, er leitar, og fyrir þeim mun upplokið verða, sem á knýr. En hver faðir yðar á meðal mun gefa syni sínum stein, er hann bæði um brauð ? eða um fisk, þá gefa honum höggorm í stað- inn fyrir fisk? eða bæði hann um egg, þá gefa honum sporðdreka, Ef nú þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá fatSirinn á himnum gefa þeim Heilagan Anda, sem biSja hann.” (Lúk. 11: 9-13J. Heilagur Andi starfar í '< hjörtum mannanna og enginn getur komist und- an áhrifum hans. Hann er rödd sam- vizkunar, sem talar til allra manna: “Hvert get eg farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu? Þótt eg stigi' upp í himininn, þá ertu þar; þótt eg gjörði undirheima að hvilu minni, sjá, þú ert þar; þótt eg lyfti mér á vængi morgunroðans og settist jvið yzta haf, einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér” ('Sálm. 139: 7-ioJ. Jónas spámaður hélt, að ef hann gæti komist til Jaffa, þá mundi hann geta

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.