Stjarnan - 01.03.1924, Side 12

Stjarnan - 01.03.1924, Side 12
44 STJARNAN UM; og þá mun endirinn koma.” Á vor- um timum sjáum vér hinn allra siöasta þátt í þessum spádómi rætast fyrir aug- um vorum. Þessvegna ættum vér, sem lifum á þess um dögum, þegar hin seinustu sandkorn yfirgefa tímans mikla stundaglas, og ráSstafa vorum andlegu húsum og koma í burtu úr lífi voru öllu þvi, sem rangt er, og vera aS öllu leyti'vi&búnir til að ta'ka þátt í hinni milclu heimför, þegar englarnir veröa sendir út, til þes a5 samansafna úr austri og vestri, frá noröri og suðri hinum trúföstu frá öll- um öldum til aö! setjast til borðs í Guðs- ríki með Abraham, ísaak og Jakob. Hið náðarríka kall hljómar: “Andirm og brúðurin segja: Kom þú! Og sá, sem heyrir segir; Kom þú! Og sá, sem þyrst- ur er, hann komi. Hver, sem vill, hann taki ókeypis lífsvatnið.” Og þar næst segir sá, sem þetta vottar, Drottinn sjálf- ur, eins og hann ætlaöi að gefa hinni daufu trú vorri vængi: “Já, eg kem skjótt.” Og hans bíðandi fólk svarar með fögnuðí: “Amen, kom þú, Drott- inn Jesú!” Þeir voru leiddir inn í gamla skemmu, þar sem þeir urðu að vera um nóttina, þó að ekkert væri þar til að styrkja hina máttvana fanga. Fyrir forvitnissakir gekk kona foringjans inn til að skoða fangana, en eittihvert annað^ afl en for- vitni hrærði sig í hjarta hennar, þegar hún leit þá. Hún fór í burtu og útveg- aði þeim ávexti, sykur og “tamarinder” fyrir kveldverð. Þetta var eina skiftið, sem þeir fengu mat á leiðinni. Næsta morgun var ekki einn einasti maður í þessum lúna ferðamannahópi, sem gat gengið. Þei'r útveguðu þeiin þess vegna vagn til að flytja þá til Aung- binle. Þegar þeir nálguðust ákvörðun- arstað sinn, fóru þeir að gjöra sér allra handanna hugmyndir um tilganginn í því, að fara með þá þangað og hver ör- lög þeirra myndu verða. Þegar þeir komu auga á hið’ gamla fangelsi, voru þeir sammála um, að tilgangurinn væri sá, að láta þá bnenna inni þar eins og sagt hafði verð í Ava áður en þeir fóru þaðan. Þeir reyndu að' búa sig undir þessi örlög, þegar verkamannahópur kom til að gjöra við fangelsið. Það var um þetta leyti að frú Judson náði’ ákvörðun- arstað sinum og kom í fangelsisgarðinn í Aungbinle. Lifið í þessu skrælingjaþorpi mynd- að'i nýtt tímabil í þjáningasögu frúar Jud- sons. Nú var það barátta fyrir sjálfri tilverunni, fyrir því allra nauðsynlegasta t:l þess að geta viðhaldið lífinu. Þorp- ið hafði engar búðir, þar sem hægt var að kaupa nauðsynjavörur, og hin ókunn- uga kona átti erfitt með að finna skjól. Eigi’nmaður hennar var í fangelsi og fjötrum, hið þriggja mánaða gamla barn hennar var algjörlega undir henni komið til þess að geta lifað, og svo voru

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.