Stjarnan - 01.03.1924, Page 13

Stjarnan - 01.03.1924, Page 13
STJARNAN 45 tvö lítil birmönsk börn, sem einnig þurftu að fá föt og fæði; alt þetta — í þessu töturlega hei&na þorpi—var frú Judson nógu erfitt vibfangsefm. Hinn fyrsti af hinum mörgu sorgar- atburSum, sem urSu hlutskfti Judsons fjölskyldunnar, kom daginn eftir að þau höfbu sezt aö' í Aungbinle. Bólan hélt þá innreið sína og fyrsta bráð hennar var Mary Haseltine, önnur birmanska stúíkan, sem þau höföu tekiö til fóst- urs. Og þó að þessi stúlka væri barn, haföi hún þó veriö ihin eina hjálp, sem frú Judson haföi haft til að sitja undir Maríu litlu. Nú varö hin þreytta móð- ir að skifta tímanum milli hins veika barns heima og síns veika eiginmanns í fangelsinu, sem enn þá þjáöíst af hita- sótt og hinum misþyrmdu fótum. Frá því í dögun og þangað til að þaö var oröiö dimt, var hún á feröinni frá heim- ilinu til fangelsins og frá fangelsinu til heimilisins, alla tíð með litla barnið á örmum sínum. Og þó aö hún sjálf heföi snert af bólunni, hélt hún þó daglega á- fram að vitja um, ekki einungis sína eigin fjölskyldu, heldur alt nágrenniö. Þvi að hvert einasta barn, bæði stórt og lítið, sem ekki hafði tekið bóluna áðtir, var fært til hennar, til þess að hún bólu- setti' það. Hún hafði gjört tilraunir með böm fangavarðarins og hepnaðist henni svo vel, að frægð hennar flaug um alt þorpið. Hin útlenzka kona hafði auðsjáanlega í eigu sinni eitthvert töfra- meðal, til að koma í veg fyrir og lækna sjúkdóma með. Sjúklingamir náðu sér smám saman og fangarnr voru fluttir í betri húsa- kynni, en fangelsi hinna dauðadæmdu í Ava hafði verið, þar eð þeir hérna höfðu aðeins einn hlekk í staðinn fyrir þrjá og fimm, eins og þeir höfðu haft áður. En nú var frú Judson búin að eyða öllum líkamskröftum sínum. Hiún hafði not- að krafta sína í þarfir annara þangað til að hún hafði enga eftir og þungur hitabeltissjúkdómur lagðist á hinn lúna útslitna líkama hennar. Hún var svo veik, að hún gat varla dregið sig yfir að fangelsinu. Og þó gjörði hún, meðan hún var í þessu ástandi, ferð til Ava á einum af þessum birmönsku vögnum, til þess ef mögulegt væri að ná í meðöl og mat. Þegar hún náði hinu yfirgefna húsi sínu á fljótsbakkanum yfirbugaði veikin hana, svo að það leit út eins og dauðinn myndi verða hin eina útkoma. Hin eina ósk hennar var þá, að komast ast aftur til Aungbinle, til þess að geta dáið í nánd við< fangelsi' eiginmannsins. Með því að taka smáskamta af ópíum með vissu millibili, hepnaðist henni að yfirbuga sjúkdóminn að svo miklu leyti, að hún gat gjört ferðina. Þó að hún væri ekki fær um að standa upprétt, fór hún á bátnum niður eftir fljótinu og á vagninum eftir hinni forugu braut til Aungbinle. í veikindum er heimilið hinn kærasti staður á jörðinni, en hvaða heimkoma var ekki þetta! þegar hún náði ákvörð- unarstað sinum, voru einnig hennar kraftar farnir. Hinar síðustu leifar þreksins hurfu og hinn undraverði vilja- kraftur hennar, sem hingað til hafði haldið henni uppi, varð nú að vikja fyr- ir heift veikiinnar. Hinn bengalski mat- reiðslumaður kom út til þess að hjálpa húsmóður sinni, en þegar hann sá hana, fór hann að gráta, svo breytt og horuð var hún orðin i þessari1 stuttu f jarveru sinni. Hún skjögraði Ínn í hið yfirfylta herbergi, þar sem hún varð að liggja ó- sjálfbjarga i miklum þjáningum um tveggja mánaða tíma. Meðan frú Judosn var veik, var hinn trúfasti bengalski matreiðslumaður að- stoð hinnar ógæfusömu Judson fjöl- skyldu. Dag eftir dag útvegaði ihann og tilreiddi’ matinn, og stundum varð hann að sækja brenni og vatn langar leiðir. Oft og tíðúm varð hann að bíða tit kvelds með að borða máltíðir sínar, til þess að hann gæti alla tíð verið sjtíkling- unum til hjálpar. Hann gleymdi stétt sinni og kaupi í ákefÖ sinni til að þjóna hínum útlenzku kristniboðum, sem hann

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.