Stjarnan - 01.07.1924, Síða 11

Stjarnan - 01.07.1924, Síða 11
STJARNAN 107 að sér vrc5i boði'ð eitthvaö að borða, bað hann um að vísa sér upp í herbergi sitt. Þannig fór hann frá fólkinu, án þess a5 neinn veitti því eftirtekt . Þegar hann var orbinn einn, tók hann biblíu upp úr hnakktösku sinni 0g sökti sér ni'ður í andlegar hugleiðingar. Einn klukkutími leið eftir annan, og enginn hugsaSi um áS bjóða öldunnum neitt af hinni ágætu máltíö, sem niðri var á borðum. Hér um bil um miðnætti kom prest- urinn upp stigann og inn í svefnher- bergiö, hann flýtti sér úr fötunum, og án bænar lagöist hann x mitt rúmið, sem þó átti að vera hvíldarstaður fyrir gamla manninn, eins og fyrir hann sjálfan. Þegar gamli maðurinn hafði falliö á kné og beöið kvöldbæn, eins og hann var vanur að gera, háttaði hann og lagðist í rúmið, eSa öilu heldur á rúmstokkinn, því presturinn vildi ekki góðmótlega færa sig svo rnikiö sem um einn þumlung. í þessum óþægilegu stellingum iá gamli* ímaðurinn dálitla stund án þess að segja neitt. Loks sagöi presturinn eitthvað, sem gamli maSurinn svaraði þannig, að presturinn fór að veita honum meiri athygli. Hann færði sig einn eða tvo þumlunga ofar í rúmiS, svo byrjaði eftirfylgjandi samtal milli þeirra: “Hvað hafið þér feröast langt í dag, gamli maöur?” “36 mílur.” “Hvaðan ?” “Frá Springfield.” “Er þaS mögulegt, þér hljótið að vera mjög þreyttur, eftir svo langa ferð, og ,vera orðinn svo gamall.” “Já, þessi líkami er orðinn mjög þreyttur, og úttaugaður, ef eg má svo að orði komast, og ferðin í dag hefir þreytt mig sérlega mikið.” Ungi presturinn færði sig aftur dá- lítiS ofar í rúmiö. “Frá hvaða stað komiS þér eigin- lega ?” “Frá Fíladelfíu.” “Frá Filadelfíu,” sagði presturinn mjög undrandi. “ASal prestastefna Meþodista var nýlega háð þar, var samkomunnni slit- ið áður en þér fóruð þaðan?” “Já, samkomunni var slitið daginn áður en eg fór.” “Er það satt?” svaraði presturinn, sem nú færði sig enn lengra upp í rúm- ið, “var Georg biskup farinn þaöan, þegar þér fóruð á stað?” “Já, hann fór á stað undir eins og eg; við urðum samferða.” “Virkilega.” Nú lét presturinn eftir helminginn af rúminu og ba5 gamla manninn mjög kurteislega að færa sig nær, svo þaö færi betur um hann. “Hvernig lítur biskupinn út, er hann ekki farinn að verða gamall og las- burða?” “Hann ber ellina vel, en starf hans er mjög erfitt, og maöur getur vel séð, að kraftarnir eru farnir að bila.” “Þaö er búist viS honum hingað eft- ir vikutíma, hvílík (gleði það verður fyrir mig, að geta tekið í höndina á hinum gamla góða manni, hvað langt urSuð þið samferða?” ■‘Við fórum langa leið aleinir.” “Voruð þér aleinir með biskupnum?” ‘Já, við höfum í mörg ár verið alúð- arvinir.” “Þér alúðarvinur Georgs biskups?” “Já, því ekki það?” “En Guð minn því vissi eg þetta ekki fyr. En má eg vera svo djarfur, að spyrja yður að heiti?” “Georg” svaraði gamli maðurinn, eft- ir að hafa hugsað sig um.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.