Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 12
12 24. ágúst 2018FRÉTTIR Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum hann var nemi í Háskólanum, braut hann kynferðislega á tíu ára stúlk unni eins og hann hefur sjálf- ur viðurkennt. Frami og skilningsrík fjölskylda Árið 1953 fór hann til starfa að Völl- um í Svarfaðardal og þar kynntist hann verðandi eiginkonu sinni, Dagbjörtu Gunnlaugsdóttur, og þetta haust voru þau trúlofuð. Um áramótin lauk hann námi og vígð- ist sem prestur á Saurbæ í Döl- um sumarið eftir, þá aðeins 22 ára gamall. Í ellefu ár, frá 1960 til 1971, starfaði hann sem prestur á Sauð- árkróki og svo lá leiðin í Dóm- kirkjuna sem aðstoðarprestur séra Jóns Auðuns. Árið 1973 var hann skipaður prestur við þá kirkju og gegndi hann þeirri stöðu til ársins 1989 og varð vel þekktur maður í þjóðfélaginu. Árið 1981 tók útvarpsmaðurinn Jónas Jónasson viðtal við séra Þóri í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Aðspurður um fjölskyldulífið og daglegt amstur sagðist hann hafa lítinn tíma fyrir áhugamál og að vinnan væri mikil: „Starfsdagurinn endist aldrei. Í önnunum gleymist Þórir sjálf- ur. Ég bý við gott fjölskyldulíf og á konu minni það að þakka. Ég er oft lítið heima en konan og börn- in eru skilningsrík vegna starfs- ins. Sonur minn sagði eitt sinn um þetta: Hann er þó alltaf að hjálpa öðrum.“ „Ófyrirgefanlegt skemmdar- verk“ í Viðey Eftir að séra Þórir lét af störf- um í Dómkirkjunni varð hann staðarhaldari í Viðey en skömmu eftir að hann tók við þeirri stöðu komst hann í deiglu fjölmiðl- anna. Kennarinn Hallur Magnús- son skrifaði grein í Tímann þess efnis að sléttun kirkjugarðsins í eynni væri bæði óþjóðleg og að ekki hefði verið haft samráð við ættingja þeirra sem þar liggja. Viðurkenndi Hallur að hann skrif- aði greinina í „heilagri reiði“ en ástæðan væri sú að hann teldi verknaðinn vera „ófyrirgefanlegt skemmdarverk.“ Í kjölfarið af birtingu greinar- innar höfðaði séra Þórir mál gegn Halli og Tímanum fyrir birtinguna og taldi þar vera ærumeiðandi ummæli, meðal annars um að Þórir hefði ráðið sjálfan sig í stöðu staðarhaldara, að athæfi hans væri ekki kristilegt hvað varðar með- ferð kirkjugarðsins og að póli- tískar skoðanir og ráðríki kæmi ætíð á undan kristilegum náunga- kærleik. Mál séra Þóris og Halls fór hátt í fjölmiðlum og var Hall- ur loks dæmdur sekur af Hæsta- rétti árið 1992 og gert að greiða 150 þúsund krónur til séra Þóris. Árið 2001 settist Þórir í helgan stein en hefur síðan umbeðinn tekið þátt í athöfnum kirkjunn- ar, meðal annars á uppstigningar- dag á þessu ári þegar hann predik- aði í Breiðholtskirkju og var þeirri predikun útvarpað svo þolandi eða ættingjar gátu allt eins heyrt. Skammaði þingmenn af stól Þórir var snemma pólitískur og að- eins sextán ára gamall, árið 1947, var hann orðinn flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Hann talaði máli flokksins og var oft fenginn sem álitsgjafi í fjölmiðlum. Fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 1990 var séra Þórir í framboði en var neðarlega á lista og náði ekki kjöri. Í störfum sínum sem dóm- kirkjuprestur hafði hann það hlut- verk að taka á móti þingmönnum fyrir þingsetningu og messa yfir þeim. Hann kunni því ekki illa að vera í þeirri stöðu og geta óbeint haft áhrif á þjóðmálin. Í viðtalinu frá 1981 sagði hann: „Ég er nú ekki alltaf ánægður með þá og skamma þá stundum af stól við þingsetningarmessu.“ Eftir 62 ár sagði séra Þórir sig úr Sjálfstæðisflokknum árið 2009 út af Evrópumálum en hann hefur síðan tekið virkan þátt í þjóðmála- umræðunni með pistlum í Frétta- blaðinu. Vinskapurinn við Ólaf Skúlason Í kirkjuritinu frá því í apríl árið 1953 er greint frá því að bræðra- lagsmenn hafi farið í skóla á lands- byggðinni, á Akranesi, Borgarnesi, undir Eyjafjöllum og víðar, til að flytja erindi og predikanir. Fyr- ir þessum ferðum stóðu Sigur- geir Sigurðsson biskup og séra Guðmundur Sveinsson á Hvann- eyri. Með þeim í för voru fjórir guðfræðinemar. Einn af þeim var Ólafur Skúlason, seinna biskup, sem sakaður var um barnaníð og kynferðislega áreitni gegn fjölda kvenna um áratuga skeið. Annar var Þórir Stephensen, sem hafði brotið á stúlkunni um þetta leyti. Um skólaheimsóknirnar segir í ritinu: „Viðtökur voru hvarvetna hinar beztu og óskað eftir slíkum heim- sóknum sem oftast.“ Samband Ólafs og Þóris var gott og slitnaði vinátta þeirra ekki eftir að Ólafur, þá orðinn bisk- up, var sakaður um kynferðislega áreitni árið 1996. Í frétt morgun- blaðsins segir: „Séra Þórir Stephensen segir herra Ólaf njóta trausts og hafa staðið sig vel, allt frá því að hann kom heim frá Bandaríkjun- um með ferskar hugmyndir um æskulýðsstarf. Hann hafi mótað starf æskulýðsfulltrúa og tendrað áhuga margra til æskulýðsstarfs í söfnuðunum.“ Spaugstofan kærð fyrir guðlast Árið 1997, hið síðasta í tíð Ólafs Skúlasonar biskups, kom upp hið svokallaða Spaugstofumál og gegndi séra Þórir þá miklu hlut- verki. Um páskana það ár var gert góðlátlegt gys að síðustu kvöld- máltíðinni í þætti Spaugstofu- manna, Enn ein stöðin. Prestar urðu móðgaðir og héldu stólræð- ur um hvílíkt guðlast Spaugstofu- menn hefðu framið. Við Morgun- blaðið sagði séra Ólafur: „Þetta var hvorki fyndið né við- eigandi, og allra síst á þessum tíma, laugardag fyrir páska, að gera gys að kvöldmáltíðinni, þegar vitað er að fermingarbörn eru að horfa.“ Skrifaði hann kvörtunarbréf til Ríkisútvarpsins vegna þessa og ekki nóg með það heldur var bréfið einnig sent inn til Ríkissak- sóknara sem kærði Spaugstofu- menn fyrir guðlast í kjölfarið. Hallvarður Einvarðsson ríkissak- sóknari og séra Þórir voru góð- ir vinir þar til Hallvarður lést árið 2016 og stúkubræður í frímúrara- reglunni Mími í Reykjavík. Tengsl þessi urðu að miklu umtalsefni þegar Ríkissaksóknari birti ákæru á hendur Tímanum eftir umfjöll- un um kirkjugarðinn í Viðey eins og áður hefur verið nefnt. Ólafur ræddi við Þóri um Spaugstofuþáttinn eftir mes- su á páskadagsmorgun og í kjöl- farið ræddi Þórir um þáttinn við Hallvarð í heitum potti á annan í páskum. Málið fór frá Ríkissak- sóknara til rannsóknarlögreglunn- ar og voru Spaugstofumenn yfir- heyrðir vegna þess. Þann 14. ágúst árið 1997, eftir að rannsókn máls- ins var lokið, var ákveðið að láta kæruna niður falla. Tók upp hanskann fyrir séra Gunnar Árið 2008 kom upp mál séra Gunnars Björnssonar, sóknar- prests í Selfosskirkju, þar sem ungar stúlkur sökuðu hann um kynferðislega áreitni. Sögðu þær hann hafa snert sig á óþægilegan hátt, faðmað og strokið um mjó- bak, sagst vera skotinn í annarri þeirra og fleira í þeim dúr. Gunnar fór í tímabundið leyfi með- an á rannsókn málsins stóð en hélt áfram að sinna kirkjulegum athöfnum. Málið endaði fyrir dómi en séra Gunnar var loks sýknaður af Hæstarétti í mars árið 2009 þrátt fyrir að það hafi verið talið sann- að að hann hefði kysst þær, strok- ið og leitað sér huggunar hjá þeim þegar þær voru barnungar. Þrátt fyrir sýknuna vildi sóknarnefnd Selfosssóknar ekki taka við honum aftur og var bisk- upi falið að leysa málið en séra Gunnar vildi fá brauð sitt aftur. Var þá rætt um að „leysa“ málið með því að færa hann til í starfi en þá stigu tíu prestar fram og mót- mæltu þeim áformum. Séra Þórir Stephensen var einn þeirra tíu presta sem stigu fram og sendu biskupi bréf þess efnis að hættulegt fordæmi gæti skapast ef séra Gunnar yrði færður til í starfi. Einnig að þeir sem hafi úrskurðað um siðferðisbrot hans hafi engar heimildir til þess. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.