Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Qupperneq 12
12 24. ágúst 2018FRÉTTIR
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
hann var nemi í Háskólanum,
braut hann kynferðislega á tíu ára
stúlk unni eins og hann hefur sjálf-
ur viðurkennt.
Frami og skilningsrík fjölskylda
Árið 1953 fór hann til starfa að Völl-
um í Svarfaðardal og þar kynntist
hann verðandi eiginkonu sinni,
Dagbjörtu Gunnlaugsdóttur, og
þetta haust voru þau trúlofuð. Um
áramótin lauk hann námi og vígð-
ist sem prestur á Saurbæ í Döl-
um sumarið eftir, þá aðeins 22 ára
gamall. Í ellefu ár, frá 1960 til 1971,
starfaði hann sem prestur á Sauð-
árkróki og svo lá leiðin í Dóm-
kirkjuna sem aðstoðarprestur séra
Jóns Auðuns. Árið 1973 var hann
skipaður prestur við þá kirkju og
gegndi hann þeirri stöðu til ársins
1989 og varð vel þekktur maður í
þjóðfélaginu.
Árið 1981 tók útvarpsmaðurinn
Jónas Jónasson viðtal við séra Þóri
í tilefni af fimmtugsafmæli hans.
Aðspurður um fjölskyldulífið og
daglegt amstur sagðist hann hafa
lítinn tíma fyrir áhugamál og að
vinnan væri mikil:
„Starfsdagurinn endist aldrei.
Í önnunum gleymist Þórir sjálf-
ur. Ég bý við gott fjölskyldulíf og
á konu minni það að þakka. Ég er
oft lítið heima en konan og börn-
in eru skilningsrík vegna starfs-
ins. Sonur minn sagði eitt sinn um
þetta: Hann er þó alltaf að hjálpa
öðrum.“
„Ófyrirgefanlegt skemmdar-
verk“ í Viðey
Eftir að séra Þórir lét af störf-
um í Dómkirkjunni varð hann
staðarhaldari í Viðey en skömmu
eftir að hann tók við þeirri stöðu
komst hann í deiglu fjölmiðl-
anna. Kennarinn Hallur Magnús-
son skrifaði grein í Tímann þess
efnis að sléttun kirkjugarðsins í
eynni væri bæði óþjóðleg og að
ekki hefði verið haft samráð við
ættingja þeirra sem þar liggja.
Viðurkenndi Hallur að hann skrif-
aði greinina í „heilagri reiði“ en
ástæðan væri sú að hann teldi
verknaðinn vera „ófyrirgefanlegt
skemmdarverk.“
Í kjölfarið af birtingu greinar-
innar höfðaði séra Þórir mál gegn
Halli og Tímanum fyrir birtinguna
og taldi þar vera ærumeiðandi
ummæli, meðal annars um að
Þórir hefði ráðið sjálfan sig í stöðu
staðarhaldara, að athæfi hans væri
ekki kristilegt hvað varðar með-
ferð kirkjugarðsins og að póli-
tískar skoðanir og ráðríki kæmi
ætíð á undan kristilegum náunga-
kærleik. Mál séra Þóris og Halls
fór hátt í fjölmiðlum og var Hall-
ur loks dæmdur sekur af Hæsta-
rétti árið 1992 og gert að greiða 150
þúsund krónur til séra Þóris.
Árið 2001 settist Þórir í helgan
stein en hefur síðan umbeðinn
tekið þátt í athöfnum kirkjunn-
ar, meðal annars á uppstigningar-
dag á þessu ári þegar hann predik-
aði í Breiðholtskirkju og var þeirri
predikun útvarpað svo þolandi
eða ættingjar gátu allt eins heyrt.
Skammaði þingmenn af stól
Þórir var snemma pólitískur og að-
eins sextán ára gamall, árið 1947,
var hann orðinn flokksbundinn
Sjálfstæðismaður. Hann talaði
máli flokksins og var oft fenginn
sem álitsgjafi í fjölmiðlum. Fyrir
borgarstjórnarkosningarnar árið
1990 var séra Þórir í framboði en
var neðarlega á lista og náði ekki
kjöri. Í störfum sínum sem dóm-
kirkjuprestur hafði hann það hlut-
verk að taka á móti þingmönnum
fyrir þingsetningu og messa yfir
þeim. Hann kunni því ekki illa að
vera í þeirri stöðu og geta óbeint
haft áhrif á þjóðmálin. Í viðtalinu
frá 1981 sagði hann:
„Ég er nú ekki alltaf ánægður
með þá og skamma þá stundum af
stól við þingsetningarmessu.“
Eftir 62 ár sagði séra Þórir sig
úr Sjálfstæðisflokknum árið 2009
út af Evrópumálum en hann hefur
síðan tekið virkan þátt í þjóðmála-
umræðunni með pistlum í Frétta-
blaðinu.
Vinskapurinn við Ólaf Skúlason
Í kirkjuritinu frá því í apríl árið
1953 er greint frá því að bræðra-
lagsmenn hafi farið í skóla á lands-
byggðinni, á Akranesi, Borgarnesi,
undir Eyjafjöllum og víðar, til að
flytja erindi og predikanir. Fyr-
ir þessum ferðum stóðu Sigur-
geir Sigurðsson biskup og séra
Guðmundur Sveinsson á Hvann-
eyri. Með þeim í för voru fjórir
guðfræðinemar. Einn af þeim var
Ólafur Skúlason, seinna biskup,
sem sakaður var um barnaníð og
kynferðislega áreitni gegn fjölda
kvenna um áratuga skeið. Annar
var Þórir Stephensen, sem hafði
brotið á stúlkunni um þetta leyti.
Um skólaheimsóknirnar segir í
ritinu:
„Viðtökur voru hvarvetna hinar
beztu og óskað eftir slíkum heim-
sóknum sem oftast.“
Samband Ólafs og Þóris var
gott og slitnaði vinátta þeirra ekki
eftir að Ólafur, þá orðinn bisk-
up, var sakaður um kynferðislega
áreitni árið 1996. Í frétt morgun-
blaðsins segir:
„Séra Þórir Stephensen segir
herra Ólaf njóta trausts og hafa
staðið sig vel, allt frá því að hann
kom heim frá Bandaríkjun-
um með ferskar hugmyndir um
æskulýðsstarf. Hann hafi mótað
starf æskulýðsfulltrúa og tendrað
áhuga margra til æskulýðsstarfs í
söfnuðunum.“
Spaugstofan kærð fyrir guðlast
Árið 1997, hið síðasta í tíð Ólafs
Skúlasonar biskups, kom upp
hið svokallaða Spaugstofumál og
gegndi séra Þórir þá miklu hlut-
verki. Um páskana það ár var gert
góðlátlegt gys að síðustu kvöld-
máltíðinni í þætti Spaugstofu-
manna, Enn ein stöðin. Prestar
urðu móðgaðir og héldu stólræð-
ur um hvílíkt guðlast Spaugstofu-
menn hefðu framið. Við Morgun-
blaðið sagði séra Ólafur:
„Þetta var hvorki fyndið né við-
eigandi, og allra síst á þessum
tíma, laugardag fyrir páska, að
gera gys að kvöldmáltíðinni, þegar
vitað er að fermingarbörn eru að
horfa.“
Skrifaði hann kvörtunarbréf
til Ríkisútvarpsins vegna þessa
og ekki nóg með það heldur var
bréfið einnig sent inn til Ríkissak-
sóknara sem kærði Spaugstofu-
menn fyrir guðlast í kjölfarið.
Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari og séra Þórir voru góð-
ir vinir þar til Hallvarður lést árið
2016 og stúkubræður í frímúrara-
reglunni Mími í Reykjavík. Tengsl
þessi urðu að miklu umtalsefni
þegar Ríkissaksóknari birti ákæru
á hendur Tímanum eftir umfjöll-
un um kirkjugarðinn í Viðey eins
og áður hefur verið nefnt.
Ólafur ræddi við Þóri um
Spaugstofuþáttinn eftir mes-
su á páskadagsmorgun og í kjöl-
farið ræddi Þórir um þáttinn við
Hallvarð í heitum potti á annan
í páskum. Málið fór frá Ríkissak-
sóknara til rannsóknarlögreglunn-
ar og voru Spaugstofumenn yfir-
heyrðir vegna þess. Þann 14. ágúst
árið 1997, eftir að rannsókn máls-
ins var lokið, var ákveðið að láta
kæruna niður falla.
Tók upp hanskann fyrir séra
Gunnar
Árið 2008 kom upp mál séra
Gunnars Björnssonar, sóknar-
prests í Selfosskirkju, þar sem
ungar stúlkur sökuðu hann um
kynferðislega áreitni. Sögðu þær
hann hafa snert sig á óþægilegan
hátt, faðmað og strokið um mjó-
bak, sagst vera skotinn í annarri
þeirra og fleira í þeim dúr. Gunnar
fór í tímabundið leyfi með-
an á rannsókn málsins stóð en
hélt áfram að sinna kirkjulegum
athöfnum.
Málið endaði fyrir dómi en
séra Gunnar var loks sýknaður af
Hæstarétti í mars árið 2009 þrátt
fyrir að það hafi verið talið sann-
að að hann hefði kysst þær, strok-
ið og leitað sér huggunar hjá þeim
þegar þær voru barnungar.
Þrátt fyrir sýknuna vildi
sóknarnefnd Selfosssóknar ekki
taka við honum aftur og var bisk-
upi falið að leysa málið en séra
Gunnar vildi fá brauð sitt aftur.
Var þá rætt um að „leysa“ málið
með því að færa hann til í starfi en
þá stigu tíu prestar fram og mót-
mæltu þeim áformum.
Séra Þórir Stephensen var einn
þeirra tíu presta sem stigu fram og
sendu biskupi bréf þess efnis að
hættulegt fordæmi gæti skapast ef
séra Gunnar yrði færður til í starfi.
Einnig að þeir sem hafi úrskurðað
um siðferðisbrot hans hafi engar
heimildir til þess. n