Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Síða 30
Hreyfing og námskeið 24. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
SUNDSKÓLI SÓLEYJAR:
Gæðastund fyrir fjölskylduna
Sumarið er frábær tími fyrir sundnámskeið og hjá Sund-skóla Sóleyjar er í boði ung-
barnasund, barnasund, einkatímar
og skriðsundkennsla fyrir fullorðna.
Börn á aldrinum frá nokkurra
mánaða og upp í 12 ára sækja fjöl-
breytt námskeið hjá Sóleyju á sumr-
in. Sundskólinn hennar hefur verið
starfandi í 20 ár og hefur starfsemin
vaxið jafnt og þétt: „Þetta er fullt
starf hjá mér í dag sem er ágætt því
þetta er það skemmtilegasta sem ég
geri,“ segir Sóley.
Ungbarnasund kom til sögunnar
í kringum árið 1990 og hefur lengi
verið vinsælt. Að sögn Sóleyjar hefur
hins vegar mesti vöxturinn undan-
farin ár verið í barnasundi. Slík
tómstundaiðkun barna hefur marg-
víslega kosti fyrir utan þá að vera
holl hreyfing. Til dæmis er afar gott
fyrir börn að stunda sundnámskeið
áður en þau fara í skólasund því það
gerir þau að sterkari einstaklingum
og þau verða miklu sjálfsöruggari í
skólasundinu. Enn fremur eru barna-
námskeiðin, sem og ungbarnasundið,
sannkölluð gæðastund fyrir fjöl-
skylduna því foreldrar eru alltaf með
barninu ofan í lauginni, nema þegar
um einkakennslu er að ræða.
„Það er líka mjög mikilvægt að
viðhalda kunnáttunni. Það hef-
ur komið fyrir að ég hafi fengið til
mín fólk á ungbarnanámskeið og
það kemur svo aftur með barnið á
barnanámskeið fjórum árum síðar.
En þá er barnið orðið vatnshrætt.“
Það er því mikilvægt að fjölskyldan
fari reglulega í sund eða barnið haldi
áfram á námskeiðum eftir ung-
barnasundið.
Námskeiðin fara fram í tveimur
sundlaugum, önnur er á Hrafnistu
í Hafnarfirði en hin á Hrafnistu í
Kópavogi. Sóley annast sjálf kennsl-
una en aðstoðarmanneskja er ofan
í lauginni til hjálpar og leiðbeiningar.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
https://sundskoli.is/ og ástæða til að
hvetja foreldra til að skoða hana vel.
Þar eru mjög fróðlegar upplýsingar
um námskeiðin auk þess sem hægt
er að skrá sig á námskeið á vefnum.
Skráning og kennsla eru nú þegar
hafin og ekki eftir neinu að bíða enda
sumarið handan við hornið.
Sjá einnig Facebooksíðuna Sund-
skóli Sóleyjar.