Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Blaðsíða 30
Hreyfing og námskeið 24. águst 2018KYNNINGARBLAÐ SUNDSKÓLI SÓLEYJAR: Gæðastund fyrir fjölskylduna Sumarið er frábær tími fyrir sundnámskeið og hjá Sund-skóla Sóleyjar er í boði ung- barnasund, barnasund, einkatímar og skriðsundkennsla fyrir fullorðna. Börn á aldrinum frá nokkurra mánaða og upp í 12 ára sækja fjöl- breytt námskeið hjá Sóleyju á sumr- in. Sundskólinn hennar hefur verið starfandi í 20 ár og hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt: „Þetta er fullt starf hjá mér í dag sem er ágætt því þetta er það skemmtilegasta sem ég geri,“ segir Sóley. Ungbarnasund kom til sögunnar í kringum árið 1990 og hefur lengi verið vinsælt. Að sögn Sóleyjar hefur hins vegar mesti vöxturinn undan- farin ár verið í barnasundi. Slík tómstundaiðkun barna hefur marg- víslega kosti fyrir utan þá að vera holl hreyfing. Til dæmis er afar gott fyrir börn að stunda sundnámskeið áður en þau fara í skólasund því það gerir þau að sterkari einstaklingum og þau verða miklu sjálfsöruggari í skólasundinu. Enn fremur eru barna- námskeiðin, sem og ungbarnasundið, sannkölluð gæðastund fyrir fjöl- skylduna því foreldrar eru alltaf með barninu ofan í lauginni, nema þegar um einkakennslu er að ræða. „Það er líka mjög mikilvægt að viðhalda kunnáttunni. Það hef- ur komið fyrir að ég hafi fengið til mín fólk á ungbarnanámskeið og það kemur svo aftur með barnið á barnanámskeið fjórum árum síðar. En þá er barnið orðið vatnshrætt.“ Það er því mikilvægt að fjölskyldan fari reglulega í sund eða barnið haldi áfram á námskeiðum eftir ung- barnasundið. Námskeiðin fara fram í tveimur sundlaugum, önnur er á Hrafnistu í Hafnarfirði en hin á Hrafnistu í Kópavogi. Sóley annast sjálf kennsl- una en aðstoðarmanneskja er ofan í lauginni til hjálpar og leiðbeiningar. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni https://sundskoli.is/ og ástæða til að hvetja foreldra til að skoða hana vel. Þar eru mjög fróðlegar upplýsingar um námskeiðin auk þess sem hægt er að skrá sig á námskeið á vefnum. Skráning og kennsla eru nú þegar hafin og ekki eftir neinu að bíða enda sumarið handan við hornið. Sjá einnig Facebooksíðuna Sund- skóli Sóleyjar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.