Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Qupperneq 48
48 24. águst 2018TÍMAVÉLIN
Málamynda-
gjörningar
K
irkjan auðgaðist
snemma og kristni var
tekin upp því að höfð-
ingjar lögðu til jarðir
svo að hún gæti starfað. Þeir
höfðu hagnað af þessu vegna
tíundarlaga. Þeir gátu rukkað
í nafni kirkjunnar og auk þess
réðu þeir enn þá að mestu
yfir jörðunum.
Árið 1297 var gerð „sátt-
argerð“ í Ögvaldsnesi, með
milligöngu konungs, og fékk
kirkjan þá forræði eigna
sinna. Stóðu þessar jarðir
undir prestastéttinni allt til
ársins 1907.
Þá afsalaði kirkjan sér
jörðunum og stofnaður var
prestlaunasjóður í staðinn.
En vegna efnahagsþrenginga
og slæmrar stjórnunar varð
sjóðurinn gjaldþrota árið
1921 en ríkið hélt áfram að
greiða prestum laun.
Árið 1997 var svo samið
á ný um að kirkjujarðirnar
skyldu ríkiseign og að prestar
fengju laun frá ríkinu í stað-
inn. Ríkið keypti sem sé aftur
jarðirnar sem það hafði átt í
90 ár. n
Jakson sófi frá Dawood
Verð: 44.030
Verð áður: 62.900
Rúm, borð, stólar
sængur, koddar,
sófar, gjafavara ofl.
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA Árið 2010 var séra Helga Hró-bjartssyni vikið frá störf-um hjá Þjóðkirkjunni eftir að hann viðurkenndi, fyrir
fagráði, kynferðisbrot gegn þrem-
ur drengjum. Brotin áttu sér stað
um miðjan níunda áratuginn á
Norðurlandi en Helgi starfaði síð-
ar með börnum sem trúboði í Afr-
íku. Í heimildamynd um Helga var
hann kallaður „engill af himnum“
og dásamaður í minningargreinum
þegar hann lést fyrir skemmstu.
Séra Helgi starfaði um árabil
sem prestur á Þorlákshöfn, í Hrísey
og í Glerárkirkju á Akureyri. Síðar
færði hann sig um set og gerðist trú-
boði í Afríkuríkjunum Eþíópíu og
Senegal og þá starfaði hann mikið
með börnum. Einnig starfaði hann
fyrir kristniboðssamtök í Noregi.
Árið 2010 leitaði einn þolandi til
kirkjunnar og talaði prestur hans
máli. DV fjallaði um málið þann
20. september þetta sama ár. Mál-
inu var vísað til fagráðsins og var
þar rætt við tvo þolendur Helga
og hann sjálfan. Hann játaði brot
sín fyrir fagráði og fór í kjölfarið úr
landi.
DV hefur heimildir fyrir því að
þolendur Helga séu fleiri og svipti
einn þeirra sig lífi. Vinur hans ræddi
við DV um þetta:
„Hann lýsti því þannig að
presturinn hefði komið inn til
hans um miðja nótt, skriðið undir
sængina hjá honum og átt eitthvað
við hann. Hann hefði svo vaknað
við það að hann væri að á káfa á
honum.“
Ekki hefur verið rannsakað hvort
Helgi hafi brotið á drengjum í Afr-
íku þar sem mörg börn eru um-
komulaus og eftirlitið lítið sem ekk-
ert.n
TRÚBOÐINN SÉRA HELGI
MISNOTAÐI DRENGI
Þ
ann 20. mars árið 2004
greindi DV frá því að lög-
reglan rannsakaði kynferðis-
brotamál séra Baldurs Gauts
Baldurssonar á Kirkjubæjarklaustri
sem hefði játað að hafa haft munn-
mök við unglingspilt. Baldur, sem
einnig starfaði sem héraðslögreglu-
maður á staðnum og kennari, not-
færði sér netið til að tæla drenginn
en á endanum felldi saksóknari
málið niður þar sem drengurinn var
orðinn fimmtán ára gamall og því
talið að hann og presturinn væru í
sömu stöðu.
Játaði munnmök
Lögregla komst á spor Baldurs þegar
hún var að rannsaka mál Ágústs
Magnússonar barnaníðings og
annarra kynferðisbrotamanna sem
höfðu notað netið og textavarp til að
komast í samskipti við unglingspilta.
Baldur var prestur á Kirkjubæjar-
klaustri og starfaði einnig sem hér-
aðslögreglumaður og barnaskóla-
kennari á staðnum. Miðvikudaginn
17. mars var gerð húsleit hjá Baldri
og tölva hans gerð upptæk.
Játaði Baldur að hafa haft sam-
neyti við fimmtán ára gamlan pilt frá
Akranesi í tvígang á árinu 2003 og
að hafa haft við hann munnmök. En
hann neitaði að hafa nauðgað piltin-
um. Að hafa mök við eldri en fjórtán
ára var ekki ólöglegt en að tæla ung-
menni yngra en 18 var það þannig
að málið var rannsakað sem kyn-
ferðisbrot.
Drengurinn í sálarkrísu en málið
látið niður falla
Samkvæmt heimildum blaðsins
höfðu Baldur og annar maður, sem
einnig var grunaður um brot gegn
drengjum, þóst vera samkynhneigð-
ir unglingspiltar til að komast í kynni
við aðra slíka. Dulnefni Baldurs var
Hjalti og leitaði hann eftir að komast
í kynni við pilta á aldrinum fimmtán
til átján ára með mök í huga.
Baldur var vígður prestur árið
1997 og starfaði eitt ár á Valþjófs-
stað áður en hann flutti á Kirkjubæj-
arklaustur þegar eiginkona hans var
skipuð sóknarprestur þar. Sigurð-
ur Aðalsteinsson, bóndi í sveitinni,
sagði við DV: „Barnastarfið fékk
aukinn þrótt þegar séra Baldur kom
á staðinn.“
Í nóvember árið 2004 lét sak-
sóknari málið á hendur Baldri niður
falla þar sem ekki taldist saknæmt
að hafa mök við fimmtán ára dreng.
Móðir drengsins ræddi við DV eftir
að þetta var ljóst og sagðist ævareið.
Drengurinn hafi verið í sálarkrísu
eftir að hafa lent í Baldri og upplifað
mjög erfiða tíma. n
SÉRA BALDUR JÁTAÐI KYNMÖK VIÐ DRENG
SÉRA GUNNAR KÆRÐUR FYRIR AÐ
FAÐMA OG KYSSA UNGAR STÚLKUR
V
orið 2008 kærðu tvær
kórstúlkur séra Gunnar
Björnsson, sóknarprest
í Selfosskirkju, fyrir kyn-
ferðislega áreitni þegar þær voru
sautján og átján ára gamlar. Mál-
ið endaði fyrir dómstólum og var
Gunnar sýknaður jafn vel þó að
dómarar teldu sannað að hann
hefði strokið, kysst og faðmað
þær.
„Mér sýnist á öllu að hér sé
um misskilning að ræða,“ sagði
séra Gunnar við DV þann 5. maí
árið 2008 þegar hann var inntur
eftir svörum um mál stúlknanna
gegn honum. „Það hefur lengi
verið minn stíll að faðma fólk
að mér,“ og „það getur meira að
segja hent að smelli kossi á kinn.“
Gunnar hafði þá verið yfir-
heyrður af lögreglunni á Sel-
fossi þar sem hann viðurkenndi
að hafa faðmað og kysst stúlk-
urnar. Hann sagðist þó örugg-
ur um stöðu sína gagnvart skjól-
stæðingum sínum og að málið
ylli honum ekki hugarangri.
Hann tók sér hins vegar sex
mánaða leyfi frá störfum í kirkj-
unni.
Þrátt fyrir að vera í leyfi hélt
séra Gunnar áfram að sinna
prestsstörfum, jarðaði, skírði og
gaf saman fólk. Forsvarsmenn
Biskupsstofu og Guðbjörg Jó-
hannesdóttir, settur sóknar-
prestur, sendu honum bréf þess
efnis að hann skyldi hætta að
sinna þessum verkum.
Óþægileg snerting á brjóstum og
rassi
Lögreglan rannsakaði málin sem
blygðunarsemisbrot, kynferðis-
brot sem getur legið allt að fjögurra
ára fangelsisvist við, og síðla árs
var málið komið fyrir Héraðsdóm
Suðurlands. Var séra Gunnar sak-
aður um að hafa strokið einni stúl-
kunni utanklæða, upp og niður
mjóbakið, á skrifstofu sinni, og sagt
við hana að honum liði illa og ef
hann faðmaði hana þá myndu ill-
ir straumar hverfa úr líkama hans.
Hin sagði hann hafa kysst hana
á kinnina og reynt að kyssa hana
á munninn. Einnig að hann hafi
sagst vera skotinn í henni og að hún
væri falleg. Hún sagði fyrir dómi:
„Hann strauk varirnar, náði samt
ekkert að kyssa mig alveg af því að
ég færði mig svona frá, svo kyssti
hann mig nokkrum sinnum á hina
kinnina.“ Sagði hún séra Gunnar
hafa sýnt henni mikla athygli, boð-
ið henni far, kvatt hana lengi og
faðmað. Þessu hafi fylgt snertingar
við brjóst og rass.
Séra Gunnar viðurkenndi fyr-
ir dómi að hafa kysst og faðmað
en taldi það ekkert kynferðislegt.
Hann neitaði hins vegar að hafa
sagt annarri stúlkunni að hann
væri skotinn í henni.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að gjörðir séra Gunnars
brytu ekki í bága við lög og var
hann því sýknaður í desember árið
2008. Þá niðurstöðu staðfesti
Hæstiréttur í mars ári seinna. n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
SYNDIR KIRKJUNNAR