Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2018, Síða 54
54 FÓLK - VIÐTAL 24. ágúst 2018
Þ
að hættir aldrei að vera
skemmtilegt að hitta fólk
sem maður hefur séð í bíó-
myndum og lítur upp til.
Maður kemst síðan alltaf að því að
þetta er bara venjulegt fólk, þegar
maður byrjar að spjalla og reyn-
ir að kynnast því. En þetta lið er
yfir leitt alltaf lágvaxnara en mað-
ur heldur,“ segir Jóhannes Hauk-
ur Jóhannesson leikari, en hann er
um þessar mundir staddur í Suð-
ur-Afríku við tökur á ofurhetju-
myndinni Bloodshot þar sem
hann stangast á við stórleikarann
Vin Diesel.
Þar að auki leikur hann
annað aðalhlutverkið í ævintýra-
myndinni Alpha, en hún verður
frumsýnd í næstu viku og hef-
ur hingað til fengið góðar viðtök-
ur gagnrýnenda. Þetta mun vera
í fyrsta skipti sem íslenskur leik-
ari fer með annað aðalhlutverkið í
Hollywood-stórmynd.
Þegar blaðamaður hafði sam-
band við Jóhannes sat hann í
förðunarstólnum og beið eftir
næturtökum, en tökutímabilið var
rúmlega þrjár vikur og leyndi leik-
arinn ekki spennu sinni fyrir verk-
efninu. „Ég var að leika með aðal-
manninum í gærnótt, honum Vin
Diesel, og fékk að skoða tökurn-
ar þegar við vorum búnir. Þá sá
ég mig og hann standa saman í
ramma og hugsaði bara: „Bíddu,
hvaða rugl er ég eiginlega kominn
út í? Mér finnst þetta svo ógeðs-
lega töff!“ segir Jóhannes, en þess
má geta að upphaflega stóð til að
ráða leikarann og tónlistarmann-
inn Jared Leto í þetta hlutverk.
Fullmikið blótað
Bloodshot er byggð á samnefndri
teiknimyndasögu sem segir frá
fyrrverandi hermanni, sem leik-
inn er af Diesel, sem er gæddur
yfirnáttúrulegum kröftum. Hann
leitar hefnda á þeim sem gerðu
hann að því sem hann er og mæt-
ir þar á meðal illkvittna Rússan-
um Nick Baris sem Jóhannes leik-
ur. Þetta ku vera í þriðja skiptið
sem Jóhannes leikur rússneskt ill-
menni og segir hann að það
sé yfirleitt töluvert skemmti-
legra að bregða sér í hlutverk
skúrks.
„Maður hefur svo mikið
frelsi þegar maður leikur ill-
menni,“ segir Jóhannes. „ Maður
getur gert þá pínu klikkaða og
er oft beðinn um að prófa mis-
munandi hluti í tökunum. Það er
kannski sagt við mann: „Vertu að-
eins meira klikkaður núna“ en svo
getur komið á móti „Nei, þetta var
fullklikkað“,“ segir hann og hlær.
„Ég lenti í því núna nýlega að
ég var beðinn um að spinna í
senunni sem ég var í, þannig að
ég fór að blóta svolítið mikið og
sagði alræmda f-orðið. Leikstjór-
inn kom þá til mín, alvarlegur og
sagði: „Við fáum bara eitt „fokk“
í myndinni og þú færð það ekki.
Það er á hreinu“.“
Þá útskýrir Jóhannes að fram-
leiðsla myndarinnar styðjist við
hinn svonefnda PG-13 aldurs-
stimpil í Bandaríkjunum, en í
þeim tilfellum er eingöngu leyfi-
legt að nota „f-orðið“ einu sinni.
„Mögulega fær Vin Diesel það, en
rússneska illmennið er voðalega
kristilegt í orðaforðanum.“
Grasið grænna hinum megin
Jóhannes hefur gert það gott að
undanförnu og mun einnig sjást
á næstunni í kvikmyndinni The
Good Liar með Ian McKellen
og Helen Mirren í aðalhlutverk-
um. Síðar mætir hann þeim Jake
Gyllenhaal og Joaquin Phoenix í
vestranum The Sisters Brothers
en auk þess gegnir hann stórum
hlutverkum í Netflix-þáttunum
The Innocents og Origin.
Utan vinnunnar lýsir Jóhann-
es sér sem ósköp venjulegum
fjölskylduföður sem búsettur
er í Laugardalnum. Aðspurður
hvernig gangi að halda jafnvægi
á svona mörgum erlendum ver-
kefnum og taumhaldi á börnun-
um segir hann það ganga ljóm-
andi vel og að konan og börnin
séu oft með í för þegar tökur fara
fram erlendis.
„Það er eitt með þessa krakka-
orma. Þau eru búin að heim-
sækja hverja höfuðborgina á fæt-
ur annarri þegar við flytjum þau
á tökustaði, við höfum farið til
Ungverjalands, Kanada og Sviss
en það eina sem þau tala um er
að þau fái aldrei að fara til Tene-
rife,“ segir hann. „Grasið er alltaf
grænna hinum megin.“
Aðspurður um kvikmyndina
Alpha segir hann eftirvinnsluna
hafa tekið sinn tíma enda liðin tvö
ár frá því að tökum myndarinn-
ar lauk. Hins vegar bætir leikar-
inn við að aldrei hafi upphaflega
staðið til að hann fengi jafn stórt
hlutverk í myndinni og síðar varð
raunin.
Alpha gerist fyrir tuttugu þús-
und árum á meginlandi Evrópu
og segir frá ungum dreng. Í miðri
veiðiferð með föður sínum verð-
ur hann viðskila við föður sinn og
aðra veiðifélaga þeirra. Þá neyðist
hann til þess að sjá um sig sjálf-
ur í fyrsta sinn á ævinni og finna
leiðina heim áður en veturinn
skellur á. „Ég var upphaflega ráð-
inn í miklu minna hlutverk, sem
einn af veiðimönnunum,“ segir
Jóhannes. „Leikstjóranum leist
ágætlega á mig fyrir föðurhlut-
verkið en kvikmyndaverið vildi fá
einhvern þekktari, helst eitthvert
stórnafn í þetta.“
Barist fyrir Jóa
Að sögn Jóhannesar er það strákn-
um í aðalhlutverkinu, Kodi Smit-
McPhee, að þakka að hann hafi
landað stærri rullunni. Kodi tók
slaginn við framleiðendur Alpha
og krafðist þess að Jóhannes fengi
að leika föðurinn. „Það gekk svona
vel að framleiðendur samþykktu
það og ég fékk hlutverkið í kjölfar-
ið,“ segir Jóhannes og bætir við að
strangt undirbúningsferli hafi tek-
ið við í kjölfar jákvæðu fréttanna.
Leikarinn þurfti ekki aðeins að
koma sér í betra form til þess að
leika veiðimanninn heldur fylgdi
hlutverkinu líka kennsla á fornu
tungumáli sem er í raun og veru
ekki til.
„Það er eitthvert félag fólks
sem sinnir því verkefni að búa
sérstaklega til tungumál
fyrir kvikmyndir og við vorum
með sama lið og bjó til allt álfa-
málið fyrir Lord of the Rings. Þeir
búa líka til tungumál fyrir Game
of Thrones og Superman-þættina
Krypton. Þau eru fengin til þess
að búa til fornmál þessa fólks sem
var uppi fyrir tugþúsundum árum,
sem byggt er á frumbyggjamálum
einhverra ættbálka,“ segir Jóhann-
es.
„Ég þurfti að læra þetta tungu-
mál og það lendir svolítið á mér
að vera með lengri texta þar sem
ég leik pabbann og er alltaf að út-
skýra hluti fyrir stráknum. Ég fékk
lengri kafla af textum en aðrir og
eyddi klukkutíma eða tveimur á
dag í að reyna að leggja þetta á
minnið. Þetta eru náttúrlega bara
einhver hljóð sem eru ekkert lík
neinu og það var örlítið erfitt að
læra þetta helvítis tungumál,“
segir hann kátur. [Jóhannes fékk
aðeins eitt blótsyrði í þessu viðtali
og er kvótinn hér með uppfylltur].
Gæti lent á klippigólfinu
Jóhannes hefur ekki enn séð Alpha
og segist vera örlítið smeykur um
að ýmislegt lendi á klippigólfinu.
„Ég tók upp langar einræður, sem
ég eyddi alveg ótrúlegum tíma í að
reyna að ná á þessu tungumáli og
ég veit ekki hversu mikið af því er
eftir í myndinni,“ segir hann. „Það
var mikið haft fyrir þessu en mað-
ur verður auðvitað bara að taka
því eins og hverju öðru ef það
gerist. Það er líka ástæða fyrir því
að leikarar fá ekki að klippa bíó-
myndir.“ n
„Það er
ástæða
fyrir því að leik-
arar fá ekki
að klippa bíó-
myndir
n Jóhannes Haukur leikur rússneskan skúrk í þriðja sinn
n Mótleikarinn tók slaginn fyrir Jóhannes og hlutverkið stækkaði
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
„Hvaða
rugl er ég
eiginlega
kominn
út í?“
Vin Diesel
í stuði.
Fjölskyldan á
tökustað með
einni stjörnu
myndarinnar
Alpha.
Feðgarnir
saman
Jóhannes og
Kodi Smit-
McPhee.