Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 4
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® jeep.is RENEGADE 2.0 DÍSEL, 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR, HÁTT OG LÁGT DRIF. COMPASS 2.0 DÍSEL, 140/170 HÖ. 2.0 BENSÍN, 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR. CHEROKEE 2.2 DÍSEL, 185 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR. GRAND CHEROKEE 3.0 DÍSEL, 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF. JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF. ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU ALÞINGI Formaður Dómarafélags Íslands (DÍ) lýsir yfir vonbrigðum með krónutöluna sem dómurum er ákveðin í frumvarpi um nýtt launa- fyrirkomulag embættismanna sem áður heyrðu undir kjararáð. Hún fagnar hins vegar þeim fyrirsjáanleika og gagnsæi sem í frumvarpinu felst. Frumvarpið var birt á vef Alþingis í gær. Í því felst að laun ákveðinna embættismanna og hópa, til að mynda þingmanna, saksóknara og dómara, verða ákveðin með fastri krónutölufjárhæð í lögum. Sú tekur breytingum einu sinni á ári í sam- ræmi við breytingu á meðaltali reglu- legra launa starfsmanna ríkisins fyrir næsta almanaksár. Í tilfelli dómara er hin fasta krónu- tala sú sama og kjararáð ákvað. Lands- réttardómarar og varaforseti Hæsta- réttar fengu launaákvörðun árið 2017 en um aðra dómara gildir ákvörðun frá árinu 2015 auk almennrar hækk- unar frá 2016. Líklegt er að lögin verði samþykkt fyrir áramót og fyrsta breyting samkvæmt þeim verði 1. júlí á næsta ári. Það þýðir því að laun flestra dómara landsins munu engum breytingum taka í þrjú ár. „Við höfum í raun beðið eftir því að lögum væri fylgt. Þegar lögunum um kjararáð var breytt árið 2016 kom inn skýrt ákvæði um að laun yrðu endurskoðuð minnst einu sinni á ári en engin ný ákvörðun var tekin og erindum okkar ekki svarað,“ segir Ingibjörg Þorsteinsdóttir, formaður DÍ. Formaðurinn segir það vel að breytingar á launum dómara verði fyrirsjáanlegar. Hins vegar sé þungt hljóð í mörgum dómurum þar sem laun þeirra hafi engum breytingum tekið í mörg ár. Hún telur líklegt að stjórn DÍ muni funda vegna efnis frumvarpsins. „Það hefur verið frysting á launum í mörg ár og sú staðreynd kallar á að við endurskoðun fyrirkomulagsins verði tekið tillit til þess,“ segir Ingi- björg. – jóe Formaður Dómarafélagsins vonsvikinn með krónutöluna en fagnar frumvarpinu Það hefur verið frysting á launum okkar í mörg ár. Ingibjörg Þorsteins- dóttir, formaður Dómarafélags Íslands VIðskIptI Árin 2016 og 2017 nýtti Íslandspóstur (ÍSP) umtalsverðan hagnað af bréfum innan einkarétt- ar til að niðurgreiða tap sem hlaust af samkeppnisrekstri innan alþjón- ustu. Lögum samkvæmt er óheimilt að niðurgreiða þjónustugjöld í alþjónustu með einkaréttartekjum nema sýnt sé fram á að slíkt sé nauð- synlegt vegna alþjónustukvaða. Fyrrgreind tvö ár hagnaðist ÍSP samtals um tæplega 868 milljónir vegna bréfa í einkarétti þó að bréf- sendingum fækkaði á tímabilinu. Árið 2015 var afkoman jákvæð um 13 milljónir og því talsvert stórt stökk milli ára. Hagnaður ársins 2016 var í raun svo mikill að í fyrra íhugaði Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) að afturkalla ákvörðun sína um gjaldskrárhækkun innan einkaréttar. Á sama tíma var afkoman af sam- keppnisrekstri innan alþjónustu neikvæð um tæplega 1,5 milljarða. Stærstan hluta þess, tæplega 1,1 milljarð, má rekja til svokallaðra „Kínasendinga“ sem ekki fást að fullu greiddar vegna alþjóðlegra enda- stöðvasamninga. Afgangstapið, um 400 milljónir króna, er vegna ann- arrar samkeppni innanlands. Svar ÍSP við fyrirspurn Fréttablaðsins um sundurliðun tapsins eftir uppruna sendinga var á þann veg að þessar upplýsingar væru ekki teknar saman. Í opinberum gögnum frá PFS kemur fram að viðvarandi tap hefur verið á ákveðnum samkeppnis- rekstrarliðum innanlands en hve mikið það er hefur verið máð úr þeim vegna trúnaðar. ÍSP svaraði ekki fyrirspurn um hve mikið tapið hefði verið síðastliðin fimm ár. Yfir gjaldskrám þessa sviðs rekstrar síns hefur ÍSP fullt vald og þarf ekki sam- þykki frá PFS. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Lög um póstþjónustu kveða á um að gjaldskrá skuli taka mið af raun- kostnaði við að veita þjónustu að viðbættum hæfilegum hagnaði. Sá hluti hagnaðarins er færður „undir strik“ í yfirliti yfir bókhaldslegan aðskilnað einkaréttar og samkeppn- isréttar og frá honum dregin söluaf- koma eigna, afkoma dótturfélaga og aðrir liðir. Sundurliðun á afkomu hvers hluta fyrir sig hefur aðeins einu sinni verið birt. Það var gert í svari innanríkis- ráðherra við fyrirspurn Willums Þórs Þórssonar og sýndi afkomuna fyrir árið 2014. Sé gert ráð fyrir að hlutfallsskiptingin milli starfsþátta nú sé svipuð og þá eykst hagnaður- inn innan einkaréttar um á annað hundrað milljónir að minnsta kosti. Tapið af samkeppni innan alþjón- ustu dregst að sama skapi saman um minnst tæpar 400 milljónir. Það liggur fyrir að ÍSP hefur nýtt fjármuni úr einkaréttinum til að mæta tapi innan samkeppni. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa samkeppnisaðilar ÍSP bent bæði PFS og Samkeppniseftirlitinu (SKE) á að þeir telji niðurgreiðsluna fara út fyrir þá heimild sem póst- þjónustulögin veita. Bæði sé um háar upphæðir að ræða og þá liggi fyrir að tap sé á einstökum liðum í sam- keppnisrekstri innanlands. Það sem af er ári hafa PFS og SKE bent hvort á annað vegna þessa. joli@frettabladid.is Tapi á samkeppnisrekstri mætt með greiðslum úr einkarétti Ekki liggur fyrir hjá Íslandspósti hve stóran hluta taps félagsins af samkeppni innan alþjónustu má rekja til innanlandsmarkaðar. Samkvæmt opinberum gögnum hefur viðvarandi tap verið á ákveðnum liðum innanlands. Samkeppnisaðila grunar að fyrirtækið niðurgreiði samkeppnisrekstur með einkarétti. Hæfilegur hagnaður rekstrarliða Íslandspósts er færður „undir strik“ í bók- haldi félagsins. DÓMsMÁL Þrír erlendir ríkisborg- arar voru fyrir helgi dæmdir í þrjá- tíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, brot gegn lögum um útlendinga og brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Mennirnir höfðu allir framvísað fölsuðu litháísku vegabréfi hjá Þjóð- skrá með það að marki að fá fulln- aðarskráningu hér á landi. Gátu þeir með því starfað hér án þess að sækja um atvinnuleyfi. Mennirnir voru handteknir í upphafi októbermánaðar. Játuðu þeir allir brot sín greiðlega og þótti unnt að binda refsinguna skilorði til tveggja ára sökum þess. Þeir voru allir dæmdir til að greiða þóknun verjenda sinna, um 250 þúsund krónur hver um sig. – jóe Játuðu að hafa notað fölsuð vegabréf Frá árinu 2006 hefur Íslandspóstur fært sig meir og meir inn á flutningamarkað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR stJ Ó RNsÝsL A Yfirskattanefnd (YSKN) hefur fellt úr gildi úrskurð Ríkisskattstjóra (RSK) varðandi ráð- stöfun séreignarsparnaðar einstakl- ings til niðurgreiðslu húsnæðisláns. Umræddur einstaklingur eign- aðist sína fyrstu íbúð árið 2014 en keypti aðra stærri tveimur árum síðar. Umrædd lög tóku hins vegar ekki gildi fyrr en 1. júlí 2017. Lögin giltu þó afturvirkt að hluta til ársins 2014. Við kaupin á fyrstu íbúðinni hafði hann nýtt séreignarsparnað til niðurgreiðslu höfuðstóls hús- næðislána og hafði hug á að gera það áfram. Það samþykkti RSK ekki. Yfirskattanefnd taldi aftur á móti að til þeirra ráðstafana hefði verið gripið við fyrstu kaup hans. – jóe Felldi úrskurð RSK úr gildi Mennirnir játuðu allir brot sín greiðlega og var litið til þess við ákvörðun refs- ingar. 3 . D e s e M b e R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R4 f R é t t I R ∙ f R é t t A b L A ð I ð 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 9 C -A D B C 2 1 9 C -A C 8 0 2 1 9 C -A B 4 4 2 1 9 C -A A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.