Fréttablaðið - 03.12.2018, Page 29

Fréttablaðið - 03.12.2018, Page 29
”Ég tek AstaSkin daglega. Húðin mín er almennt heilbrigðari, ég brenn ekki eins auðveldlega í sólarlöndum og held lit lengur eftir að ég kem heim” - Þóra Margrét Jónsdóttir þjálfari í World Class Handbolti Íslenska kvennalands- liðið í handbolta var í einkennilegri stöðu fyrir lokaleik sinn í riðlinum í undankeppni HM 2019 í Skopje í Makedóníu í gær. Úrslit í riðlunum fjórum þýddu að íslenska liðið þurfti að vinna veikt lið Aserba ídsj an með 27 mörkum til þess að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í loka- keppni mótsins. Það tókst og gott betur en loka- tölur í leiknum urðu 49-18 Íslandi í vil sem þýðir að liðið leikur í umspili í júní á næsta ári. Leikurinn var afar skrýtinn, en það var klókur varnarleikur og fjölmörg mörk úr hraðaupphlaupum sem skópu stór- sigurinn. Þórey Rósa Stefánsdóttir naut góðs af því hvernig leikurinn þróaðist og hún var markahæst hjá íslenska liðinu með 13 mörk. Axel Stefánsson, sem marga fjör- una hefur sopið á 20 ára löngum þjálfaraferli sínum, hefur aldrei lent í viðlíka stöðu og í leiknum sem fram fór í gær. „Þetta var mjög sérstakur leikur að stýra og það er í raun gegn mínum gildum að lemja svona á veikum andstæðingi. Reglurnar eru hins vegar svona og við verðum bara að spila og haga okkar leik í samræmi við það. Við fengum tvo skelli í gær, bæði með því að tapa fyrir Makedón- íu og frétta af því að Úkraína hefði unnið jafn stórt og raun bar vitni,“ sagði Axel kampakátur í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær. „Við tókum fund í gærkvöldi, fórum yfir stöðuna og skipulögðum hvernig líklegast væri að sigurinn gæti orðið svona stór. Við lékum varnarleikinn á þann hátt að við brutum lítið af okkur, unnum bolt- ann trekk í trekk og skoruðum fullt af auðveldum mörkum í kjölfarið. Það er mikill léttir að hafa náð markmiðinu um að komast í umspil- ið og þetta breytir landslaginu hjá okkur,“ sagði hann enn fremur. „Leikurinn gegn Makedóníu var einnig lærdómsríkur og ungir leik- menn liðsins fengu dýrmæta reynslu í þeim leik. Það hentar okkur illa að leika á móti liðum sem hafa á að skipa þungum og sterkum leik- mönnum. Við þurfum að leita leiða til þess að geta gert okkur gildandi gegn þannig andstæðingum. Við erum hins vegar að nálgast sterkari þjóðir með hverjum leik sem við spilum að mínu mati,“ sagði Axel um helgina. hjorvaro@frettabladid.is Stórsigur kom Íslandi í umspil Ísland á enn möguleika á að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins í handbolta kvenna. Íslenska liðið komst í umspil um sæti í lokakeppninni en til þess að komast þangað þurfti stórsigur gegn Aserbaídsjan. Þórey Rósa Stefánsdóttir lék á als oddi þegar íslenska liðið fór illa með Aserbaídsjan í gær. FRéttAblAðið/SigtRygguR ARi Það er mikill léttir að hafa náð mark- miðinu um komast í um- spilið og þetta breytir landslaginu hjá okkur. Axel Stefánsson S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ða b l a 13M Á n U d a G U r 3 . d e S e M b e r 2 0 1 8 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 9 C -A 3 D C 2 1 9 C -A 2 A 0 2 1 9 C -A 1 6 4 2 1 9 C -A 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.