Fréttablaðið - 03.12.2018, Side 6
VERÐ FRÁ 76.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
TRYGGÐU ÞÉR SÓL
TENERIFE OG KANARÍ
Öugur Milwaukee mótor skilar
14000 til 24000 strokum á mínútu.
REDLINK™ yrálagsvörn
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 29.900 kr. (án rafhlöðu)
M18 FCOT
Alvöru hjámiðja
frá Milwaukee
vfs.is
FRAKKLAND Emmanuel Macron
Frakklandsforseti kynnti sér aðstæð-
ur á breiðgötunni Champs-Elysées í
París í gærmorgun. Nóttina áður
höfðu mótmælendur, sem kenna sig
við Gulu vestin, leikið götuna grátt
og kveikt í bílum, verslunum og veit-
ingastöðum.
Í kjölfarið boðaði Macron til neyð-
arfundar með ráðherrum sínum
vegna mótmælanna en þau hafa nú
staðið yfir í um tvær vikur. Ekki kom
til tals að lýsa yfir neyðarástandi
vegna óeirðanna, þó svo að tals-
maður ríkisstjórnar Macrons hefði
viðrað þá hugmynd fyrir fundinn.
Upphafleg krafa mótmælendanna
var að Macron og ríkisstjórn hans
kæmi í veg fyrir frekari hækkanir á
eldsneyti, en á síðustu dögum hafa
mótmælin öðlast víðari skírskotun
og beinast þau nú ekki síður að
kjörum þeirra sem minnst hafa á
milli handanna í Frakklandi.
Dómsmálaráðherra Frakklands,
Nicole Belloubet, hefur heitið því að
þeir hópar mótmælenda sem gengið
hafa fram með ofbeldi verði hand-
samaðir og sóttir til saka.
Rúmlega 100 hafa særst í mótmæl-
unum og tæplega 400 verið hand-
teknir. Þrír hafa fallið í átökunum.
Innanríkisráðuneyti Frakklands
áætlar að um 136 þúsund manns hafi
tekið þátt í mótmælunum víðs vegar
um Frakkland. – khn
Neyðarfundur vegna mótmælaöldu
Talið er að í kringum 136
þúsund manns hafi tekið
þátt í mótmælunum.
UMHVERFISMÁL Fulltrúar tæplega
200 landa söfnuðust saman í pólsku
borginni Katowice í gær við upp-
haf árlegrar ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsmál. Fund-
inum var flýtt um einn dag sökum
þeirra fjölmörgu úrlausnarefna sem
greiða þarf úr á næstu dögum.
Fundurinn í Póllandi þykir afar
mikilvæg prófraun fyrir þjóðirnar
en nær allar þjóðir heims sam-
mæltust um það í París í desember
2015 að halda hnattrænni hlýnun
vel innan 2 gráða. Er nú vonast til
þess að ríkin láti kné fylgja kviði og
útlisti hvernig þau muni framfylgja
markmiðum Parísarsamkomu-
lagsins.
„Við erum samankomin hér til
að hvetja heimsbyggðina til að taka
höndum saman gegn loftslagsbreyt-
ingum,“ sagði umhverfisráðherra
Póllands, Michal Kurtyka, sem stýrir
fundarhöldunum.
Ráðstefnan í Póllandi fékk öfl-
ugan meðbyr í formi yfirlýsingar 19
af 20 G20-ríkjanna á dögunum um
að þau myndu freista þess að fram-
fylgja markmiðum Parísarkomu-
lagsins. Bandaríkin studdu ekki
yfirlýsinguna.
„Hin G20-löndin hafa ekki
aðeins sýnt fram á að þau skilji
vísindin sem búa að baki, heldur
eru þau byrjuð að grípa til aðgerða
til að stemma stigu við meiriháttar
áhrifum loftslagsbreytinga og til
að efla efnahag landa sinna,“ sagði
Christiana Figueres, fyrrverandi
framkvæmdastýra rammasamnings
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
mál.
Á meðal þess sem verður rætt í
Katowice á næstu dögum er hvernig
hægt verður að samrýna loftslags-
bókhald ríkjanna og hvort markmið
um samdrátt í losun gróðurhúsaloft-
tegunda verði efld eftir árið 2020,
auk þess verður ræddur fjárstuðn-
ingur við fátæk lönd sem eiga erfitt
með að mæta breytingum á loftslagi
og veðrakerfum einsömul. – khn
Hefja loftslagsfund með
öflugan meðbyr frá G20
Frá mótmælum Gulu vestanna í París á laugardgainn. NordicPhotos/Getty
ALþINgI Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, mun samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefja
þingfund í dag með því að lesa
stutta yfirlýsingu frá forseta vegna
uppákomunnar fyrir helgi þegar
upp komst um illt umtal þing-
manna Miðflokksins og Flokks
fólksins í garð samstarfsmanna
sinna og annars nafntogaðs fólks
sem hefur komið nálægt stjórn-
málum hin síðari ár.
Steingrímur segir fund-
inn ekki hefjast með
h e f ð b u n d n u m
hætti.
„Við erum að
undirbúa ýmis-
legt og eitt af því
er upphaf fund-
arins og menn
geta velt því
fyrir sér hvort
það sé líklegt
að hann byrji án þess að þetta á
einhvern hátt komi við sögu,“ segir
Steingrímur.
„Þetta er upphaf fyrsta fundar
eftir að þetta hefur gengið yfir.
Einnig verða forsætisnefndarfundur
og fundur með formönnum þing-
flokka svo það mun líklegast eitt-
hvað gerast þar.“
Þingmenn sem Fréttablaðið
náði tali af í gær eru á einu máli
um að þingstörf verði að komast í
fastar skorður nú þegar síðasti mán-
uður ársins er runninn upp og að
minnsta kosti þrjú risastór mál enn
ókláruð í þinginu, það eru fjárlög,
samgönguáætlun
Sigurðar Inga
J ó h a n n s -
s o n a r o g
veiðigjalda-
f r u m v a r p
K r i s t j á n s
Þórs Júlíus-
sonar.
Þingmenn hafa sín á milli varpað
fram ýmsum hugmyndum um
hvernig hægt sé að koma þing-
mönnum Miðflokksins og Flokks
fólksins í skilning um að þeir geti
ekki og vilji ekki starfa með þeim og
að þeir þurfi að víkja hið snarasta.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að víkja úr þingsal ef þeir ætli sér
að taka til máls og hvaðeina til að
þrýsta á afsögn þeirra.
Einn þingmaðurinn sem Frétta-
blaðið talaði við í gær segir það
ekki koma til greina að einstakl-
ingar, sem hafa orðið fyrir barðinu
á þessum sex manna hópi, þurfi að
sitja nefndarfundi, eða þá koma
fyrir nefndir, þar sem þessir þing-
menn eru fyrir á fleti.
Ekki náðist í nokkurn þing-
manna Miðflokksins við vinnslu
fréttarinnar þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir.
sveinn@frettabladid.is
Segir þingfund hefjast
á óhefðbundinn hátt
Gunnar Bragi sveinsson og Bergþór Ólason eru farnir í leyfi frá þingstörfum. FréttaBlaðið/eyþÓr
Fyrsti þingfundur eftir
að samtal þingmanna
Miðflokksins og Flokks
fólksins var gert opin-
bert verður í dag. Koll-
egar þeirra leita nú leiða
til að koma þingmönn-
unum í skilning um að
þeir verði að víkja.
Við erum að undir-
búa ýmislegt og eitt
af því er upphaf fundarins.
Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis
3 . D E S E M b E R 2 0 1 8 M Á N U D A g U R6 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð
0
3
-1
2
-2
0
1
8
0
5
:0
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
C
-C
1
7
C
2
1
9
C
-C
0
4
0
2
1
9
C
-B
F
0
4
2
1
9
C
-B
D
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K