Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Það er alltaf gaman að vera með eitthvað rautt, silfrað, gyllt eða koparlitað fyrir
jólin, því nú fer sá tími í hönd að
konur vilja smá glitur og glamúr
sem er svo vinsælt núna,“ segir
Guðrún Hjörleifsdóttir, eigandi
tískuverslunarinnar Rítu.
Ríta er nú sneisafull af glæsi-
legum hátíðarfatnaði og flottum
flíkum fyrir hvunndags tilveruna.
„Við erum með allt sem eina
konu getur vantað í fataskápinn og
þjónum breiðum aldurshópi, allt
frá 25 ára og upp úr, í stærðunum
36 til 56,“ útskýrir Guðrún í Rítu.
Senda tískufötin út á land
Ríta er rótgróin tískuverslun sem
var upphaflega stofnuð 1982 af Sig-
ríði Kristófersdóttur, sem rak hana
í Eddufelli í árafjöld. Árið 1996 tók
við rekstrinum Steinunn Ingólfs-
dóttir, sem hafði saumað fyrir
Sigríði um árabil og fyrir tveimur
árum keypti Guðrún búðina af
móður sinni.
„Ég byrjaði að vinna hjá mömmu
1999 og sama ár opnuðum við aðra
Rítu verslun í stóru og glæsilegu
húsnæði í Bæjarlind í Kópavogi.
Árið 2010 lokuðum við í Eddu-
fellinu og stækkuðum við okkur
í Bæjarlind, sem er nú í hjarta
höfuðborgarsvæðisins,“ segir
Guðrún.
„Viðskiptavinahópurinn er
dyggur og stór. Konur halda
tryggð við Rítu vegna persónu-
legrar og góðrar þjónustu og það
hefur mikið að segja að þær finna
hjá okkur alhliða fatnað, hvunn-
dags og fyrir sparileg tilefni. Við
sendum mikið út á land og konur
á landsbyggðinni eru duglegar að
hringja inn því þær þekkja gæðin
og vilja fá það nýjasta til sín. Ef
fötin passa ekki má alltaf senda
þau til baka,“ segir hún.
Föt sem klæða allar konur
Verslunin Ríta er stór og björt og
stíllinn í versluninni fylgir nýjustu
tískustraumum.
„Við flytjum inn glæsilegan,
kvenlegan og klæðilegan fatnað frá
Danmörku, Hollandi og Þýska-
Í Rítu fæst einstakt úrval af gallabuxum sem henta við öll lífsins tilefni og alkunna er að þar finna konur flottar gallabuxur sem henta líkamsvexti hverrar og einnar. MYND/STEFÁN
Verslun Rítu er björt og rúmgóð og þjónustan persónuleg og alúðleg.
Rauðir kjólar eru sívinsælir fyrir jólin sem og svartir með glitri og glamúr.
Buxnaúrvalið í Rítu er ríkulegt fyrir jólin og einkar klæðilegt.
landi. Bæði snið, efni og
hönnun fatnaðarins
passa íslenskum konum
einstaklega vel,“ segir
Guðrún.
Í Rítu fæst líka
gríðarlega mikið úrval
gallabuxna.
„Við seljum mikið af
alls kyns buxum enda
alkunna að hér finna
allar konur snið sem
hentar líkamsvexti
hverrar og einnar,“
segir Guðrún í glæsi-
legri verslun Rítu.
„Nú eru kjólar og
buxur hæstmóðins
sem og túníkur sem
passa vel yfir leggings.
Þá er flott að klæðast
kjól yfir gallabuxur og
blanda saman flíkum
úr ólíkum áttum og
úr ólíkum stílum.“
Draumajólagjafir
Aðkoman að Rítu er
afskaplega þægileg og gengið inn
í búðina beint af bílastæðinu en
nóg er af bílastæðum við verslun-
ina.
Fyrir hátíðarnar er mikið um að
karlar komi við í Rítu og velji jóla-
gjafir handa konunni, kærustunni,
dætrunum eða mömmu
og fá við það góða
aðstoð stelpnanna í
Rítu.
„Konum þykir kostur
að geta skoðað og
mátað föt í notalegu
umhverfi, og með góðri
þjónustu kappkostum
við að hjálpa þeim að
finna það sem hentar
þeim. Hér er gott verð
og fallegur kven-
fatnaður, sem mætir
þörfum flestra kvenna á
breiðu aldursbili,“ segir
Guðrún í Rítu.
„Ríta á mjög trausta
og góða viðskipta-
vini og alltaf bætast
nýir í hópinn. Það er
ákaflega gaman þegar
þrjár kynslóðir kvenna
koma saman í búðina;
amma, mamma og
dóttir eða dætur, og
allar finna sér flott föt
sem passa þeirra eigin
stíl sem sýnir að við erum með föt
fyrir konur á öllum aldri.“
Ríta er í Bæjarlind 6 í Kópavogi. Sími
554 7030. Sjá nánar á Facebook: Ríta
Tískuverslun.
Sparilegir og kven-
legir jakkar kóróna
heildarútlitið.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
0
3
-1
2
-2
0
1
8
0
5
:0
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
9
C
-B
7
9
C
2
1
9
C
-B
6
6
0
2
1
9
C
-B
5
2
4
2
1
9
C
-B
3
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K