Fréttablaðið - 03.12.2018, Side 12

Fréttablaðið - 03.12.2018, Side 12
Enska úrvalsdeildin Úrslit 14. umferðar 2018-19 Crystal Palace - Burnley 2-0 1-0 James McArthur (16.), 2-0 Andros Town- send (77.). Man.City - Bournemouth 3-1 1-0 Bernardo Silva (16.), 1-1 Callum Wilson (44.), 2-1 Raheem Sterling (57.), 3-1 Ilkay Gün- dogan (79.). Huddersfield - Brighton 1-2 1-0 Mathias Jörgensen (1.), 1-1 Shane Duffy (45.), 1-2 Florin Andone (69.) Rautt spjald Steve Mounie (Huddersfield) (32.). Leicester - Watford 2-0 1-0 Jamie Vardy (vítaspyrna) (12.), 2-0 James Maddison (23.). Rautt spjald Etienne Capoue (Watford) (90.). Newcastle - West Ham 0-3 0-1 Chicharito (11.), 0-2 Chicharito (63.), 0-3 Felipe Anderson (90.). Southampton - Man.Utd 2-2 1-0 Stuart Armstrong (13.), 2-0 Cedric Soares (20.), 1-2 Romelu Lukaku (33,), 2-2 Ander Herrera (39.). Chelsea - Fulham 2-0 1-0 Pedro (4.), 2-0 Ruben Loftus-Cheek (82.) Arsenal - Tottenham 4-2 1-0 Pierre Emerick Aubameyang (vítaspyrna) (10.), 1-1 Eric Dier (30.), 1-2 Harry Kane (34.), 2-2 Pierre Emerick Aubameyang (56.), 3-2 Alexandre Lacazette (75.), 4-2 Lucas Torreira (77.). Rautt spjald Jan Verthongen (Totten- ham) (85). Liverpool - Everton 1-0 1-0 Divock Origi (90.) Staðan FÉLAG L U J T MÖRK S Man.City 14 12 2 0 43-6 38 Liverpool 14 11 3 0 27-5 36 Chelsea 14 9 4 1 30-11 31 Arsenal 14 9 3 2 32-18 30 Tottenham 14 10 0 4 25-15 30 Everton 14 6 4 4 20-16 22 Man.Utd 14 6 4 4 22-23 22 Leicester 14 6 3 5 20-17 21 B’mouth 14 6 2 6 23-21 20 Watford 14 6 2 6 17-19 20 Brighton 14 5 3 6 16-20 18 Wolves 14 4 4 6 13-17 16 West Ham 14 4 3 7 17-22 15 C.Palace 14 3 3 8 10-17 12 Newcastle 14 3 3 8 11-19 12 Cardiff 14 3 2 9 13-27 11 H’field 14 2 4 8 9-24 10 S´ton 14 1 6 7 12-26 9 Burnley 14 2 3 9 13-29 9 Fulham 14 2 2 10 14-35 8 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum himinlifandi þegar flautað var til leiksloka í leik liðsins gegn Everton á Anfield í gær. NoRdiCPHoToS/GETTy Leikmaður helgarinnar Javier Hernández, eða Chicharito eins og hann er jafnan kall- aður, hefur ekki náð að stimpla sig inn í lið West Ham United eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Bayer Leverkusen fyrir síðasta keppnistímabil. Hann skoraði hins vegar tvö marka liðsins í 3-0 sigri gegn Newcastle United. Hann skoraði átta mörk í 28 deildarleikjum á síðustu leiktíð sem er reyndar ágætis árangur, en mörkin höfðu látið á sér standa það sem af er þessari leiktíð. Eina deildar- mark hans kom í sigri gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og samherjum hans hjá Burnley í upphafi nóvembermánaðar. Chicharito er þefvís á marktækifæri og klárar færi sín oft vel þegar hann kemst í boltann inni í vítateig andstæð- ingsins. Vonandi fyrir hann og West Ham United er stíflan brostin hjá honum og mörkin munu hrannast upp í fram- haldinu hjá þessum snaggaralega mexíkóska framherja. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Arsenal kom sér upp í fjórða sæti deildarinnar með sigri á Totten- ham Hotspur í nágrannaslag liðanna á Emirates-leikvanginum. Eftir að hafa lent 2-1 undir skor- uðu Skytturnar þrjú mörk í seinni hálfleik og tryggðu sér sigurinn. Liðið er núna með jafn mörg stig og nágrannarnir en er sæti ofar þar sem liðið hefur hagstæðari markatölu. Það stefnir í spenn- andi baráttu milli erkifjendanna um fjórða sætið sem veitir þátt- tökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Hvað kom á óvart? Það kom skemmtilega á óvart hver tók að sér hlutverk hetj- unnar í leik Liverpool og Everton. Divock Origi sem hefur ekki átt sjö dagana sæla í herbúðum Bítlaborgarliðsins kom inn á sem varamaður og komst nær hjarta stuðningsmanna Liverpool með því að skalla boltann yfir línuna á ögurstundu. Hann var að spila sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið á leiktíðinni, en hann lék síðustu sex mínútur leiksins og lét heldur betur til sín taka. Það er spurning hvort þetta mark færi Belganum fleiri mínútur inni á vellinum. Mestu vonbrigðin Það voru gríðarleg vonbrigði fyrir lærisveina José Mourinho hjá Manchester United að ná ekki að fara með þrjú stig af hólmi þegar liðið sótti Southampton heim á St. Mary’s. Liðin skildu jöfn 2-2 en gestirnir frá Manchester komu til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í leiknum. Manc- hester United er átta stigum frá fjórða sæti deildarinnar. Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Aston Villa Birkir Bjarnason Var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar Aston Villa lagði Middles- brough sannfærandi að velli. Everton Gylfi Þór Sigurðsson Var tekinn af velli í upp- bótartíma þegar Everton laut í gras fyrir Liverpool á sárgrætilegan hátt. Reading Jón daði Böðvarsson Var ekki í leikmannahópi Reading þegar liðið gerði jafntefli við Stoke vegna meiðsla sinna í baki. Burnley Jóhann Berg Guðm. Lék allan leikinn á kantinum þegar Burnley tapaði fyrir Crystal Palace í fallbaráttuslag liðanna í London. Fótbolti Stuðningsmenn Arsenal og Liverpool munu verða háværir í kaffistofuspjallinu í dag. Liðin unnu annars vegar glæsilegan og hins vegar spennuþrunginn sigur þegar þau fengu nágranna sína í heim- sókn. Leikur Arsenal og Tottenham Hotspur sem fram fór á Emirates var ansi kaflaskiptur og endaði með 4-2 sigri heimamanna. Hetjan kom svo úr óvæntri átt þegar Liverpool skoraði sigurmarkið í 1-0 sigrinum gegn Everton. Divock Origi sem ekki hefur átt upp á pallborðið hjá Jürgen Klopp það sem af er leiktíðar skoraði markið sem skildi liðin að á lokaandartökum leiksins. Enn og aftur er það öflug spila- mennska Arsenal í seinni hálfleik sem skilar liðinu stigunum þremur. Liðið skoraði þrjú marka sinna í síðari hálfleiknum og hefur þar af leiðandi skorað 24 af 32 deildar- mörkum sínum í þeim hálfleik. Það er meira en nokkurt annað lið hefur gert í deildinni til þessa. Ef mörk liðanna í deildinni í seinni hálfleik myndu einungis gilda væri Arsenal í öðru sæti deildarinnar á eftir Man- chester City sem myndi ekki hagg- ast úr toppsætinu. Tvær ástæður gætu legið að baki þessum góða árangri hjá Arsenal þegar líða tekur á leikina undir stjórn Unay Emery sem tók við London og Liverpool rauðar Nágrannaslagir voru þema helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla. Chelsea hitaði upp með sigri gegn Fulham. Mesta fjörið var í leik Arsenal og Tottenham Hotspur. Dramatíkin var svo alls- ráðandi þegar Liverpool fékk Everton í heimsókn. stjórnartaumunum hjá liðinu í sumar. Annað er það að leikmenn liðsins létu hafa það eftir sér í við- tölum að meiri ákafi væri á æfingum liðsins eftir að hinn spænski Emery tók við og að gott líkamlegt form veitti liðinu ákveðið forskot þegar þreytan fer að síga í andstæðinginn. Hitt er það að Emery hefur í leikjum liðsins geymt ferska fætur í framherjasveit liðsins á varamanna- bekknum og sett leikmenn inn á eftir um það bil klukkutíma leik til þess að breyta gangi leikjanna. Þannig hefur Alexandre Lacazette verið þó nokkuð í því hlutverki að koma inn af bekknum og sprengja upp leikina líkt og hann gerð í sigr- inum gegn Tottenham Hotspur. Þá hefur Pierre Emerick-Aubameyang gert slíkt hið saman í einstaka leikjum. Arsenal jafnaði Tottenham Hotspur að stigum með þessum sigri og komst raunar upp fyrir nágrannaliðið, upp í fjórða sæti deildarinnar, þar sem liðið hefur hagstæðar markatölur. Það lítur allt út fyrir æsispennandi baráttu milli erkifjendanna um sæti á meðal fjög- urra efstu liða deildarinnar og þar með sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Liverpool heldur svo áfram elt- ingarleik sínum við Manchester City við topp deildarinnar, en áfram munar tveimur stigum á liðunum eftir þessa umferð. hjorvaro@frettabladid.is Arsenal hefur skorað flest mörk í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu karla í seinni hálfleik. Einungis Manchester City hefur staðið sig betur í síðari hálfleikjum í deildinni á leiktíðinni. 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m Á N U d A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 9 C -A 3 D C 2 1 9 C -A 2 A 0 2 1 9 C -A 1 6 4 2 1 9 C -A 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.