Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 30
1804 Thomas Jefferson kjörinn forseti Bandaríkjanna. 1916 Íþrótta- félagið Skalla- grímur stofnað í Borgarnesi. 1967 Fyrsta hjartaígræðslan framkvæmd í Suður-Afríku. 1970 Verslunar- miðstöðin Glæsibær opnar dyr sínar. 1979 Ruhollah Khomeini valinn fyrstu erki- klerkur Íran. 1984 Fjögur þúsund manns farast, og um 600 þúsund aðrir veikjast, eftir efnaleka úr verksmiðju Union Carbide í Bhopal í Indlandi. 1990 Mary Robinson kjörin forseti Írlands, fyrst kvenna. 1992 Gríska olíuflutn- ingaskipið Aegean Sea siglir í strand. Um 80 þúsund tonn af olíu leka í hafið. 1992 Verkfræðingur hjá Sema group sendir fyrstu smáskilaboðin í gegnum símkerfi Voda- fone. 2014 Japanska geimvísindastofnunin JAXA skýtur Haya- busa2 geimfarinu á loft. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Ástkær pabbi minn, tengdapabbi og afi, Benedikt Gunnarsson listmálari og fyrrverandi dósent í myndlist við KHÍ, Kastalagerði 13, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 22. nóvember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 4. desember klukkan 15.00. Valgerður Benediktsdóttir Grímur Björnsson Gunnar Grímsson Sóley Grímsdóttir Merkisatburðir Á þessum degi fyrir 24 árum, eða þann 3. desember 1994, kom PlayStation- leikjatölvan fyrst á markað. Hún fór fyrst í sölu í Japan en nokkrum mánuðum seinna rataði hún í verslanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Vinsældir leikja- tölvunnar voru gríðarlegar og á tæpum áratug náði Sony að selja rúmlega 100 milljónir vélar. Með tilkomu Pla- yStation urðu straum- hvörf í afreyingargeir- anum. Skyndilega höfðuðu tölvuleikir til allra. Eftir sátu Nintendo og Sega með sárt ennið, þó að fyrrnefnda fyrirtækið ætti eftir að ná vopnum sínum aftur með tíð og tíma. Þ etta g e r ð i st : 3 . d e s e m b e r 1 9 9 4 PlayStation kemur á markað PlayStation naut frá fyrsta degi mikilla vinsælda. Háskóla Íslands heiðraði sextíu og þrjá nýdoktora á laugardaginn. Mynd/HáSkóli ÍSlandS Sextíu og þrír doktorar sem brautskráðust frá Háskóla Íslands á síðasta ári voru heiðraðir við hátíðlega athöfn á laugardaginn. doktorsnemar frá öllum fimm fræðasviðum tóku þar við gullmerki Háskóla Íslands að viðstöddum guðna th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Þetta er í áttunda sinn sem háskólinn heiðrar nýdoktora með þessum hætti, en í hópi brautskráðra að þessu sinni voru 24 karlar og 39 konur. af heildarfjöldan- um eru 44 prósent með erlent ríkisfang. sá hópur kemur víða að, samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands, eða frá 19 löndum evrópu, asíu og Norður- ameríku. „Við minnumst þess nú í ár að 100 ár eru liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki, 1918. Á þeim tímamótum er einnig vert að minnast þess að árið 1918 voru liðin sjö ár frá því Íslendingar stofnuðu háskóla, 1911. stofnun Háskóla Íslands er eitt skýrasta dæmið um þá bjartsýni og menntunarhug sem ríkti meðal þjóð- arinnar í upphafi nýrrar aldar,“ sagði Jón atli benediktsson, rektor Háskóla Íslands, í ávarpi sínu. Um þessar mundir stunda um 600 manns doktorsnám við Háskóla Íslands. alls munu 60 nemar ljúka doktorsprófi á árinu 2018 og verður heildarfjöldi dokt- ora sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands frá upphafi á sjöunda hundrað í loks árs. „Fjöldi doktorsnema við Háskóla Íslands styrkir ótvírætt stöðu hans sem alþjóðlega viðurkennds rannsóknar- háskóla. Um leið gerir það skólanum kleift að sinna hlutverki sínu sem æðstu menntastofnunar þjóðarinnar. Öflugur rannsóknarháskóli er frumskilyrði þess að Ísland verði samkeppnisfært í vís- indum, nýsköpun og atvinnuþróun, en grunnrannsóknir og góð og fjölbreytt menntun eru jafnan talin ein helsta for- senda hagvaxtar og aukinnar velsældar,“ sagði Jón atli. kjartanh@frettabladid.is Heiðruðu fjölþjóðlegan hóp nýdoktora frá HÍ Háskóli Íslands heiðraði nýdoktora með áttunda árið í röð. Um þessar mundir stunda um 600 manns doktorsnám við skólann og frá upphafi hafa á sjöunda hundrað nem- enda lokið doktorsnámi við hann. Stór hluti hópsins er af erlendu bergi brotinn. Öflugur rannsóknar- háskóli er frumskilyrði þess að Ísland verði samkeppnis- fært í vísindum, nýsköpun og atvinnuþróun. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands Sony hefur haldið áfram að gefa út leikjatölvur undir vörumerkinu PlaySta- tion en í desember á þessu ári markaðs- setur fyrirtækið sérstaka viðhafnarút- gáfu af upphaflegu leikjavélinni. – khn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, Hlíf Guðjónsdóttir Lýsubergi 13, Þorlákshöfn, andaðist miðvikudaginn 21. nóvember. Útför fer fram frá Kotstrandarkirkju, Ölfusi, þriðjudaginn 4. desember kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknarfélagið Alfa. Tómas B. Guðmundsson Pálína i. Tómasdóttir Sigurjón Bergsson Sigríður Tómasdóttir árni i. Sigvaldason Víðir Tómasson Elísabet Guðmundsdóttir Guðmundur S. Tómasson Sigríður ósk Zoëga Sigurðard. Ragnheiður Tómasdóttir Brynjólfur Magnússon J. Brynja Tómasdóttir Helgi Helgason og fjölskyldur. 3 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m Á N U d A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tÍmamót 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 9 C -9 E E C 2 1 9 C -9 D B 0 2 1 9 C -9 C 7 4 2 1 9 C -9 B 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.