Fréttablaðið - 03.12.2018, Page 33

Fréttablaðið - 03.12.2018, Page 33
Planeta Singli 2 (polish w/eng sub) 17:30 Svona fólk (icelandic - no sub) ....... 18:00 Litla Moskva (icelandic - no sub) .. 18:00 Anna and the Apocalypse (ice sub) 20:00 Erfingjarnir//The Heiresses (ice sub) . 20:00 Anna and the Apocalypse (ice sub) 22:00 Hinn seki // The Guilty (ice sub)..... 22:00 Kalt stríð // Cold War (eng sub) .... 22:00 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS www.hokuspokus.is Verslun og vefverslun Laugavegi 69 S. 551-7955 Galdrasett Kr. 7.490 Bessi Kr. 4.490 Píla Kr. 4.200 Viðarfjós með dýrum Kr. 10.490 Búningar og leikföng eru jólagjafirnar í ár! www.stjornugris.is Stjörnugrís er eini íslenski framleiðandinn sem framleiðir eingöngu úr íslensku grísakjöti. Þú finnur vörurnar frá Stjörnugrís í öllum betri matvöruverslunum um land allt. Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur hvar@frettabladid.is 3. desember 2018 Tónlist Hvað? Hausttónleikar hljóðfæra- brautar 1/3 Hvenær? 18.00 og 20.00 Hvar? Kirkju óháða safnaðarins, Háteigsvegi Nemendur hljóðfærabrautar efna til hausttónleika í Kirkju Óháða safnaðarins, Háteigsvegi 56, mánu- daginn 3. desember klukkan 18 og 20. Hvað? Jólatónleikar Tónlistarskóla Vestmannaeyja Hvenær? 17.30 Hvar? Tónlistarskóla Vestmannaeyja Jólatónleikar Tónlistarskóla Vest- mannaeyja verða alla virka daga vikunnar 3.-7. desember í sal Tón- listarskólans. Þar munu nemendur skólans koma fram og spila á hin ýmsu hljóðfæri. Sérstakir söng- nematónleikar verða mánudaginn 10. desember í safnaðarheimili Landakirkju. Tónleikarnir eru allir kl. 17.30 og eru opnir öllum. Viðburðir Hvað? Transport for People in Nordic Cities Hvenær? 10.00 Hvar? Norræna húsinu Fyrst segir Peter Myhre, fyrrver- andi borgarstjóri í Osló, frá því af hverju rafmagnsbílar eru svo vin- sælir í Osló og Noregi, og hvernig almenningssamgöngur urðu vin- sælasti samgöngumátinn í Osló. Síðan segir Sigurborg Ósk Haralds- dóttir frá fortíð og framtíð borgar- skipulags í vaxandi bæ, en Sigur- borg Ósk vinnur hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Fundurinn verður á ensku. Hvað? Ari Eldjárn prófar nýtt grín Hvenær? 20.00 Hvar? Tjarnarbíói Ari Eldjárn stendur fyrir skemmti- legri og tilraunakenndri uppi- standssýningu þar sem hann prófar nýtt grín. Á sýningunni, sem varir í um klukkustund, fá gestir að heyra nýtt og áður óbirt efni úr smiðju Ara. Ari er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur komið fram í sjónvarpsþáttum á borð við Comedy Allstars Super- show og Mock the Week. Þá hefur sýning hans Pardon My Icelandic verið sýnd í Edinborg, London og Melbourne. Hvað? Verkstæði Jólasveinsins – Um- hverfisvænar gjafir í skóinn Hvenær? 10.00 Hvar? Norræna húsinu Kæri Jólasveinn, ert þú í vandræð- um með að finna plastlausar gjafir í skóinn? Norræna húsið verður með pop-up verslun 22. nóvem- ber til 20. desember þar sem jóla- sveinar geta keypt umhverfisvænar gjafir í skóinn. Hjá okkur finnur þú bækur, ullarsokka, hljóðfæri, spil, tréliti, púsl, Línu-dúkkur og margt margt fleira. Verð frá 99 til 3000 kr. Verslunin er opin virka daga frá kl. 9-17 og 10-17. Verið öll hjartanlega velkomin. Hvað? Uppboð nr. 113 Hvenær? 18.00 Hvar? Gallerí Fold, Rauðarárstíg Síðasta listmunauppboð ársins í Gallerí Fold mun fara fram mánudaginn 3. desember nk. kl. 18 í húsnæði gallerísins við Rauðarárstíg. Uppboðið er númer 113. Meðal uppboðsverka kennir ýmissa grasa. Búist er við miklum áhuga á tveimur verkum Louisu Matthíasdóttur en þar er annars vegar um að ræða sjálfsmynd af listakonunni og olíumálverk af stúlku með hundi. Einnig er búist við að stórt olíumálverk eftir Svavar Guðnason frá um 1970 sem er með sterkum höfundarein- kennum hans veki athygli. Einnig verða boðin upp tvö abstraktverk á pappír eftir hann. Hvað? Tilnefningar til Fjöruverð- launanna Hvenær? 17.00 Hvar? Borgarbókasafninu Grófinni Tilkynnt verður um tilnefningar til Fjöruverðlaunanna – bókmennta- verðlauna kvenna í Grófinni. Verðlaunin verða svo veitt á árlegri bókmenntahátíð kvenna – Góu- gleðinni. Þau eru veitt fyrir barna- og unglingabækur, skáldverk fyrir fullorðna og fræðibækur. Þrjár bækur verða tilnefndar í hverjum flokki. Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt árið 2007. Hvað? Opið málþing Allsgáðrar æsku Hvenær? 17.00 Hvar? Bústaðakirkju Fundurinn höfðar sérstaklega vel til foreldra ungmenna og þeirra sem hafa áhuga á forvörnum. Ókeypis aðgangur og allir vel- komnir Sýningar Hvað? Fullvalda konur og karlar – Ljósmyndasýning Hvenær? 17.00 Hvar? Borgarbókasafninu Grófinni Ljósmyndasýningin Fullvalda konur og karlar hampar þeim sem börðust fyrir fullveldi og stjórn- málaréttindum Íslendinga, konum og körlum. Myndum er varpað á tjald í glugganum á Borgarbóka- safninu í Kvosinni og er sýningin aðgengileg vegfarendum eftir sól- setur. Hvað? Sögunnar minnst – Örsýning Hvenær? 10.00 Hvar? Bókasafni Seltjarnarness Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Bókasafn Sel- tjarnarness minnist atburða ársins 1918 í tilefni 100 ára afmælis full- veldis Íslands með örsýningum og framsetningu á bókum, lesefni og myndefni. Nú er það Fullveldið ásamt sýningunum Frostaveturinn mikli, Spænska veikin og Kötlu- gosið. Verk eftir Louisu Matthíasdóttur og Svavar Guðnason verða boðin upp hjá Gallerí Fold í kvöld. FréttabLaðið/ViLHeLM m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17m Á n U D A g U R 3 . D e S e m B e R 2 0 1 8 0 3 -1 2 -2 0 1 8 0 5 :0 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 9 C -B C 8 C 2 1 9 C -B B 5 0 2 1 9 C -B A 1 4 2 1 9 C -B 8 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.