Fréttablaðið - 10.12.2018, Side 11

Fréttablaðið - 10.12.2018, Side 11
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 5.350.000 kr. (Verð án vsk: 4.314.000 kr.) Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 6.290.000 kr. (Verð án vsk: 5.072.000 kr.) 164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 8 6 7 I s u z u D - M a x a lm e n n 5 x 2 0 n ó v *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. MMA Það var ekki að sjá neitt ryð á íslenska bardagakappanum Gunn- ari Nelson þegar hann sneri aftur inn í UFC-búrið eftir sautján mán- aða fjarveru um helgina. Gunnar mætti þá hinum brasilíska Alex Oliveira, titlaður Kúrekinn, á UFC 231 bardagakvöldinu í Toronto og gafst Oliveira upp þegar Gunnar var búinn að ná góðu taki á hálsi hans undir lok annarrar lotu. Það var mikil eftirvænting fyrir bardaganum enda langt síðan Gunnar barðist síðast. Sá bardagi endaði illa fyrir Gunnar sem tapaði fyrir Argentínumanninum Santiago Ponzinibbio sem beitti ólöglegum brögðum þegar hann potaði í augu Gunnars án þess að dómarinn tæki eftir því. Aftur virtist andstæðingur Gunn- ars ætla að komast upp með ólög- lega tilburði því í byrjun bardagans virtist Alex gefa Gunnari ítrekað olnbogaskot í hnakkann sem er ólöglegt. Sá brasilíski fékk viðvörun þegar hann nýtti búrið til að ná jafn- vægi þegar Gunnar reyndi að koma bardaganum í gólfið en Oliveira var sterkari á lokamínútunni og náði nokkrum góðum höggum þegar þeir glímdu í gólfinu. Gunnar nýtti styrk sinn vel í upp- hafi annarrar lotu og náði Oliveira í gólfið þar sem hann náði strax góðri stöðu. Það tók Gunnar smá tíma en þá fékk Gunnar að nota olnbogana til að láta Alex finna fyrir því og er sá brasilíski reyndi að losna úr taki Gunnars gaf hann Gunnari tækifæri til að ná uppgjafartaki sem gerði út um bardagann. Íslenski bardagakappinn sýndi sínar bestu hliðar um helgina og má búast við því að hann taki stökk upp styrkleikalista UFC á næstu dögum. Fyrir bardagann var Gunnar í fjór- tánda sæti í veltivigt, einu sæti fyrir neðan Oliveira en hæst hefur hann náð í níunda sætið. Gunnar hefur nú unnið sautján bardaga á MMA- ferlinum og tapað þremur en einum lauk með jafntefli. Sjálfur virtist Gunnar vera nokk- uð sáttur þegar hann ræddi við Dana White, forseta UFC, eftir bar- dagann. „Þessi bardagi fór í aðra átt en ég bjóst við þó að ég hafi búist við þessum úrslitum. Það var mikið um glímu og um tíma missti ég stjórn á bardaganum en ég náði að halda það út, komast aftur inn í bar- dagann og vinna að lokum,“ sagði Gunnar og hélt áfram: „Ég vissi að hann þyrfti að verja nokkra staði undir lokin þegar það var farið að blæða úr honum og greip tækifærið.“ Sá brasilíski þykir  afar  góður standandi en sýndi lipra takta á gólfinu í fyrstu lotu. „Ég æfi þessa stöðu oft og það hafa ekki margir náð að snúa þessu sér í hag en ég veit af þessu og verð betur tilbúinn næst. Ég átti ekki von á því að hann myndi ná að snúa þarna en hann gerði vel,“ sagði Gunnar. Hann var ekki hrifinn af olnboga- skotunum sem Alex beitti í upphafi bardagans. „Ég þarf að skoða það betur en ég var hissa á því að ekkert var dæmt í því þegar hann var að ráðast á hnakkann á mér,“ sagði Gunnar. kristinnpall@frettabladid.is  Gunnar sneri aftur með látum  Bardagakappinn Gunnar Nelson vann sannfærandi sigur á Alex Oliveira í Toronto um helgina. Eftir jafna fyrstu lotu náði Gunnar undirtökum undir lok annarrar lotu þar sem hann lét höggin dynja og innbyrti sigur. Gunnar búinn að ná góðri stöðu í annarri lotu og lét hann höggin dynja stuttu síðar. Hann lauk bardaganum á því að ná hengingartaki. NordicPHotos/Getty Þessi bardagi fór í aðra átt en ég bjóst við þó að ég hafi búist við þessum úrslitum. Gunnar Nelson Fótbolti Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi þjálfari íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu, sást á leik Al Arabi og Umm Salal í Katar um helgina og er orðrómur um að hann taki við liðinu af Króatanum Luka Bonačić. Heimir lét af störfum sem þjálfari landsliðsins eftir HM í Rússlandi í sumar eftir sjö farsæl ár í starfi hjá KSÍ. Undir hans stjórn komst íslenska landsliðið í lokakeppni EM og HM í fyrsta sinn og fór alla leið- ina í átta liða úrslit Evrópumótsins 2016. Heimir var myndaður á leiknum sem Al Arabi vann 3-0 og er félagið í fimmta sæti, átta stigum frá topp- sætinu, þegar ellefu umferðir eru búnar. Al Arabi leikur í höfuðborg Katar, Doha, og hefur sjö sinnum orðið meistari þar í landi en 21 ár er liðið síðan liðið varð síðast meistari. Margir heimsfrægir leikmenn hafa leikið í Katar á seinni hluta ferilsins og eru Samuel Eto'o, Xavi Hernandez og Wesley Sneijder allir samningsbundnir liðum í Katar þessa dagana. – kpt Heimir ræðir við lið í Katar Heimir þakkar stuðning eftir leik Ís- lands á HM. Fréttablaðið/eyþór S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 11M Á N U D A G U r 1 0 . D e S e M b e r 2 0 1 8 1 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 B 0 -4 5 0 0 2 1 B 0 -4 3 C 4 2 1 B 0 -4 2 8 8 2 1 B 0 -4 1 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.