Stjarnan - 01.11.1926, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.11.1926, Blaðsíða 2
STJARNAN 162 Afturhvarf Hudsons Taylors Hann var nú orÖinn fimtán ára gamall og hafSi verið alinn upp undir vemd og umhyggju foreldra sinna. Hann hafÖi þessvegna verið elskulegur drengur. Nokkrir af hinum vondu jafningjum hans og leikbræörum höfðu um þetta leyti áhrif á hann, svo að hann fór að vanrækja bænastundina og hætti aö lesa ritninguna, sem hann ætíð hafði gjört svo aS segja frá því að hann var orðinn læs. Nú ætlaði hann sér að verða auðugur, fá sér fallegt hús, eignast reihhest og ríSa út í skógana, til þess aö veiöa, eins og sumir af vinum hans gjörðu. Þessir draumar rættust auðvitað ekki og þess- vegna var hann alt annað en ánægður með kjör sín. Hin góða móðir hans skildi vel hvern- ig var ástatt fyrir 'honum, þó að hann talaði aldrei við hann um það atriði. Þar á móti sagði hann systur sinni, Amalíu, alt, sem honum bjó innan brjósts. Hún hefir verið þrettán ára gömul um það leyti. Sálarástand hans truflaði Amalíu svo mikið, að hún ákvað að biðja Guð fyrir bróður siínum þrisvar á dag, að hann mætti snúa sér og gefa Frelsaran- um hjarta sitt. Hin kæra móðir hans bað einnig mikið fyrir honum, og þegar hún einu sinni hafði farið að heiman, til þess að heimsækja nokkra ættingja þar sem hún hafði fleiri tómstundir en heima hjá sér, gekk hún einn dag frá miðdagsverð- arborðinu inn á herbergi sitt, læsti dyr- unum kraup á kné og bað innilega fyrir syni sínum og ætlaði ekki að hætta fyr en hún hefði öðlast fullvissu um að hafa fengiö bænheyrslu. Sama dag eftir miðdagsveröinn hafði Hudson Taylor ekkert ákveðið verk. Hann gekk þess vegna inn í lestrarstof- una, þar sem bókasafn föður hans var, til þess aö finna bók, sem hann ætlaði aö lesa til að stytta sér stundir. Þar eð hann ekkert fann, sem hann mundi hafa gam- an af aö lesa, fór hann að róta í körfu, sem full var af allra handa blöðum og smáritum. Að lokum fann hann smárit, sem honum virtist vera skemtilegt lesmál. Hann hugsaði við sjálfan sig: “Smáritið byrjar meö skemtilega sögu. Hana ætla eg að lesa og láta svo ritið í körfuna aft- ur.” Til þess að verða ekki fyrir neinu ó- næði, fór hann inn í vöruhúsið og settist lengst út í hornið og fór að lesa. Þegar hann kom auga á yfirskriftina: “Hið full- komnaða verk Krists,” fór hann að hugsa um orð Frelsarans á krossinum: “Það er fullkomnað!” og spurði sjálfan sig: “Hvað er fullkomnað?” Svarið kom honum undir eins til hugar: “Frelsunar- verkið! Jesús hefir fullkomnað það að öllu leyti. Hann hefir borgað alla mína skuld.” Og Héilagur Andi sýndi honum, að hann þurfti ekki að gjöra annað en að krjúpa á kné og í trú veita þessum Frels- ara viðtöku og lofa og prísa Guö fyrir að hafa sent hann. Þetta gjörði hann líka og fyltist hjarta hans af miklum fögnuði yfir því að skilja eftirfarandi atriði: Eg á Frelsara þótt eg sé syndari og þessi Frelsari tilheyrir mér frá jötunni til krossins, já alla leið til hásætisins. Fleiri dagar liðu fyr en hann vogaði að segja systur sinni hvað eiginlega hefði hent hann. Og hann gjörði það ekki fyr en hún hafði lofað honum að segja eng- um öörum frá því. Fjórtán dögum seinna kom móðirin heim úr ferð sinni. Sonur hennar var sá fyrsti til að heilsa henni í dyrunum og Iét hana skilja að hann hefði góðar fréttir að segja henni. Þá umfaðm- aði hin elskulega móðir hann og þrýsti honum að hjarta sér og sagöi: “Eg veit það drengur minn. Eg hefi þegar í fjórtán daga fagnað yfir því, sem þú nú ætlar að segja mér.” Frh. á bla. 175

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.