SÍBS blaðið - okt. 2017, Blaðsíða 5

SÍBS blaðið - okt. 2017, Blaðsíða 5
5 3. tbl. 2017 Kransæðastífla verður þegar blóðflæði um kransæð hættir snögglega. Oftast gerist þetta vegna þess að rof hefur orðið í æðakölkunarskellu innan á æðaveggnum. Viðbrögð líkamans verða til þess að mjúkur blóðsegi eða blóðkökkur myndast á skellunni þar sem rofið er. Blóðseginn verður til þess að æðin lokast alveg. Við þetta verður drep í þeim hluta hjartavöðans sem æðin flytur blóð til. Leitin að orsökum bráðrar kransæðastíflu hófst fyrir alvöru á sjötta áratug síðustu aldar. Vísindamenn komust fljótlega að því að hátt kólesteról í blóði, hár blóðþrýstingur og reykingar juku líkurnar mikið. Ekki var hins vegar mikið rætt um bólgu á þessum tíma. Kenningin um þátt bólgu í æðakölkun er reyndar ekki ný. Á nítjándu öldinni deildu austurríski meinafræðingurinn Carl von Rokitansky og kollegi hans, þjóðverjinn Rudol Virchow harkalega um þátt bólgu í tilurð slagæðasjúkdóma. Virchow taldi bólguna vera lykilatriði. Í dag, tæpum tveimur öldum síðar, er enn margt á huldu í þessum efnum. Hvernig er hægt að mæla bólgu? Hvaða bólgu- ferli skipta mestu máli þegar kemur að hjarta- og æðasjúk- dómum? Er unnt að bæta horfur eða lækna æðasjúkdóm með því að draga úr bólgu? Ef svo, hvernig verður það best gert? Hvað er bólga? Bólga er svörun vefja líkamans við áverka eða skemmd og er mikilvægur þáttur í vörnum líkamans. Einkenni bráðrar bólgu eru hiti, roði og aukin fyrirferð. Gott dæmi um bólgusvörun er þegar við fáum í okkur flís. Roðinn stafar af auknu blóðflæði. Fyrirferðarukningin verður að hluta til vegna hvítra blóðkorna sem ónæmskerfið sendir á staðinn til að takast á við óvininn. Án þessarrar bólgusvör- unar myndi líkaminn ekki geta varist eðlilega. Vörnum líkamans og bólgusvörun er stýrt af ónæmiskerf- inu. Ónæmiskerfið vinnur stöðugt að því að verja okkur fyrir framandi áreiti, sýkingum og krabbameinum. Bæld ónæmis svörun eykur líkur á sýkingum og krabba- meinum. Truflanir í ónæmissvörun eiga þátt í sjálfsofnæmis- sjúkdómum eins og liðagikt og rauðum úlfum. Bólga getur bæði verið bráð og langvinn. Bráð bólga er svörun líkamans við skyndilegri árás, t.d. af völdum sýkla. Langvinn bólga einkennist hins vegar af þrálátri bólgusvörun og langvinnu viðgerðarferli af hennar völdum. Eðlileg bólgusvörun ver okkur fyrir sjúkdómum. Þegar bólgusvörun er óeðlileg, langvinn, eða meiri en tilefni er til getur hún verið skaðleg og valdið sjúkdómum. Bólga og hjarta- og æðasjúkdómar Innsta lag slagæðaveggjarins kallast æðaþel og er í beinni snertingu við blóðstreymið innan í æðinni. Miðlagið saman- stendur aðallega af sléttum vöðvafrumum. Ysta lagið er bandvefslag og þar má finna æðar og taugaenda. Æðakölkunarskellur valda þykknun í innri hluta æða- veggjarins. Skellurnar eru samsettar af fitu, bandvef og ýmsum frumum. Hvít blóðkorn sem oft eru nefnd bólgufrumur gegna mikilvægu hlutverki í tilurð æðaskellunnar. Sumar þessara frumna eru kallaðar átfrumur enda gleypa þær í sig fituna í æðaveggnum. Átfruman stendur þá gjarnan á blístri og í smásjá virðist hún full af froðu. Á þessu stigi er fruman gjarnan kölluð froðufruma. Bólgufrumurnar gefa einnig frá sér boðefni, svokölluð Eðlileg bólgusvörun ver okkur fyrir sjúkdómum. Þegar bólgusvörun er óeðlileg, langvinn, eða meiri en tilefni er til getur hún verið skaðleg og valdið sjúkdómum. cytokín sem laða að sér aðrar tegundur bólgufrumna og hvetja til áframhaldandi bólgusvörunar. Rannsóknir benda til þess að upphaf æðakölkunar eigi sér stað þegar LDL prótínið sem oft inniheldur mikið magn kólesteróls leitar úr blóðinu og inn í æðavegginn. Efnafræði- legar breytingar sem verða á LDL prótíninu í æðaveggnum virðast svo ræsa bólgusvörunina sem getur orðið langvinn og mögulega viðhaldið sjúkdómsferlinu. Bólga virðist einnig koma við sögu þegar skyndileg blóðsegamyndun á sér stað á æðakölkunarskellu. Þetta er alvarlegasta mynd æðakölkunar og getur leitt til bráðrar kransæðastíflu ef þetta gerist í kransæð. Það hvort bólguvirkni er lítil eða mikil virðist afgerandi þáttur fyrir þróun æðaskellunnar. Æðaskellur með bráðri segamyndun, t.d. hjá sjúklingum með bráða kransæðastíflu sýna oft merki um mikla bólguvirkni. Hvernig er bólguvirkni mæld? Unnt er að mæla ýmis efni í blóði til að meta bólguvirkni. „C-reactive protein (CRP)“ er mælikvarði á bólguvirkni. Hækkun á CRP er merki um bólgu en segir þó ekki hvar bólgan er né hvort hún er bráð eða langvinn. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að fylgni er á milli hækk- unar á CRP og hættunnar á hjarta- og æðasjúkdómum. „High sensitvity CRP (hsCRP)“ er nákvæmari mæling sem hefur meira næmi til að greina langvinnar hægfara bólgur. Þessi mæling er oft notuð til að meta hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum. Önnur efni sem unnt er að mæla til að greina langvinnar bólgur eru LP-PLA2, Interleukin 6 (IL-6) og fibrinogen. Þess- ar mælingar eru hins vegar ekki notaðar í almennum praksís til að meta hættuna á hjarta-og æðasjúkdómum. Er hjálplegt að draga úr bólguvirkni? Þótt langvinn bólguvirkni tengist aukinni hættu á ýmsum langvinnum sjúkdómum hafa fáar vísindarannsóknir verið framkvæmdar til að svara spurningunni hvort leiðir sem draga úr bólguvirkni muni minnka tíðni þessarra sjúkdóma. Statinlyf eru mikið notuð til að lækka blóðfitur. Sannað er að lyfin draga úr tíðni hjarta- og æðaáfalla og bæta horfur sjúklinga með hjarta-og æðasjúkdóma. Löngum hefur verið talið að þessi áhrif skýrist af blóðfitulækkandi eiginleikum þessara lyfja.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.