SÍBS blaðið - okt. 2017, Blaðsíða 21

SÍBS blaðið - okt. 2017, Blaðsíða 21
21 3. tbl. 2017 á meiðslasvæðið.1 Þetta eykur enn á þann massa blóðs sem þangað er kominn vegna rofinna æða. Blóðvökvanum fylgja svo m.a. hvítar blóðfrumur. Í fyrstu koma neutrophils inn á meiðslasvæðið og nær fjöldi þeirra hámarki eftir 24-48 klst., en eftir það fer fjöldi þeirra smám saman minnkandi.5 Þeir eru átfrumur sem hefja hreinsun á skemmdum vef auk þess sem þeir magna upp bólguferlið með því að gefa frá sér prótein eins og interleukin-6 og TNF.2, 5 Auk þess er talið hugsanlegt að þeir geti valdið frekari skaða á skemmdum vöðvafrumum m.a. með því að mynda sindurefni (free radicals), en einnig er mögulegt að ensím (lysosomal enzymes) sem losna úr deyjandi frumum geti valdið niðurbroti og frekari skemmdum á sködduðum vef.2, 4 Þegar neutrophils víkja koma macro- phages, sem eru stórar átfrumur, í auknum mæli inn á svæðið og ná þeir venjulega hámarksfjölda innan við viku eftir meiðsli, eftir það fer þeim smám saman fækkandi.2 Hlutverk þeirra í bólguferlinu er m.a. að éta upp frumuleifar. Í fyrstu eru þeir bólguhvetjandi en breytast síðan yfir í að vera bólgu- hamlandi. Þeir hafa einnig hlutverki að gegna í endurupp- byggingu vefs eftir meiðsli með seytingu vaxtarþátta (growth factors) og með því að draga að aðrar frumur sem hlutverki hafa að gegna í viðgerðarferlinu.1, 2 Smám saman fækkar bólgu frumum og áhrif þeirra minnka. Að lokum hverfa þær. Við það hjaðnar bólgan en eftir situr örvefur sem myndast hefur í gapinu þar sem vöðvatognunin varð. Samhliða og í framhaldi af þessu bólguferli hefst við- gerðarferli. Endurmyndun skemmdra vöðvafruma á sér stað frá svokölluðum satellite-frumum, sem ummyndast í vöðvafrumur og geta tengst rofnum vöðvafrumum sem lifað hafa af tognunina. Litlar háræðar vaxa samhliða nýmyndun vöðvafruma og flytja til þeirra súrefni og næringu sem er forsenda fyrir vexti og endurmyndun vöðvafrumanna.1 Þar sem rofið var í vöðvann og blæðingin fyllti í upphafi setjast í fyrstu bólgufrumur og bólguferlið sem getið er um að ofan fer af stað. Í fyrstu myndast frumgerð af bandvef á svæðinu sem tengir saman enda vöðvafruma sem hafa rofnað og litlar háræðar fara að vaxa inn á svæðið og veita þangað súrefni og næringu. Smám saman verður þessi bandvefur að örvef. Þessi hluti vöðvans virkar því svolítið eins og tveir vöðvar með sin (örvef) á milli. Taugasímar þurfa að vaxa til þeirra vöðvafruma sem misstu samband við taugar til þess að þær geti fengið samdráttarboð og virkað sem hluti vöðvans.1 Álagseinkenni og bólga Álagseinkenni eiga sér venjulega langan aðdraganda og orsakast þegar lífaflfræðilegt álag á ákveðinn vef verður meira en hann þolir yfir tíma. Álagseinkenni geta komið fram í mörgum vefjum, en algengt er að þau verði í sinum, á mótum sina og beina (festumein) eða í beinum. Tökum dæmi um álagseinkenni í hásin 3-5 cm ofan við festustað hásinar á hælbein sem er algengur staður fyrir álagseinkenni í hásin. Orsakir ofálags á hásinina geta verið Álagseinkenni geta komið fram í mörgum vefjum, en algengt er að þau verði í sinum, á mótum sina og beina (festumein) eða í beinum. af ýmsum toga en taka verður tillit til margra þátta þar sem það er oftast heildarálagið á sinina sem viðheldur álagsein- kennunum. Dæmi um þætti sem hafa þarf í huga eru t.d. röng líkamsstaða eða líkamsbeiting, skóbúnaður, æfingaálag, vinnuálag og mögulegt álag í tómstundum. Vöðvar byggjast upp af vöðvaþráðum sem safnast saman í vöðvaknippi, en mörg slík knippi mynda svo vöðvann. Utan um vöðvaþræði, knippi og vöðva liggur bandvefur. Þessi bandvefur myndar svo að hluta til sin vöðvans. Oft verður vart stífra þrymla í hluta kálfavöðvanna. Þessir þrymlar geta mögulega aukið umtalsvert álag á þann hluta hásinar sem bandvefur frá þeim liggur til. Þannig getur hæglega myndast ofálag á hluta hásin- ar og þar er einmitt líklegt að álagseinkenni hefjist í sininni. Þegar einstaklingur finnur fyrir álagseinkennum í hásin hefur breytingaferli venjulega staðið yfir í sininni í töluverðan tíma. Við upphaf slíks ferlis er talið að smásæjar rifur geti myndast í sininni við endurtekið ofálag.6 Háræðanet í sinum er mjög rýrt og blóðflæði því lítið, mun minna en í vöðvum eins og lýst er að ofan. Blæðing við slíkar smásæjar rifur í sinum verður því mjög takmörkuð og bólga af þeim sökum því lítil. Að sama skapi gengur viðgerðarferli í sinum mjög hægt og geta margir þættir haft áhrif á að það gangi enn hægar fyrir sig, t.d. áframhaldandi ofálag á sinina miðað við ástand hennar, erfðir, hormón, sjúkdómar, ýmis lyf o.fl.6 Á einhverjum tímapunkti í gróandaferlinu virðist eins og ferlið brenglist og hið eiginlega gróandaferli hætti að virka á réttan hátt. Ástæða fyrir þessu er enn ekki að fullu þekkt.6, 7 Í framhaldinu fara að verða breytingar á sininni, æðar taka að vaxa inn í sinina og þeim fylgja skyntaugar,8 uppröðun collagen trefja í sininni verður óregluleg og tilviljanakennd fjölgun verður á Collagen Typu III.9, 10 Vökvamagn í utanfrumuefni (extracellular matrix) eykst, hrörnunarbreytingar svo sem niðurbrot á byggingu sinarinnar sjást svæðisbundið þar sem frumdauði hefur orðið en annarsstaðar sést meiri virkni.7 Þessu fylgir þykknun á sininni venjulega á 1-3 cm löngu svæði. Þykknunin er fyrst og fremst vegna þessara breytinga í sininni en ekki bólgu, því á þessum tíma er lítil virkni bólgufruma á svæðinu.6 Fyrstu einkenni sem einstaklingar með álagseinkenni frá hásinum finna eru venjulega stífleiki og eymsli í sininni fyrst á morgn- ana, eymsli í upphitun fyrir æfingar og eftir æfingar og svo við þreifingu á sininni. Ef ekki er gripið inn í með því að breyta

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.