Fréttablaðið - 24.01.2019, Page 6

Fréttablaðið - 24.01.2019, Page 6
Sigra fagnar! Ari Már Fritzson sjúkraþjálfari BSc hefur hafið störf hjá Sigra í Læknavaktinni Austurveri, og sinnir allri sjúkraþjálfun. Tímabókanir í síma 556 1300. arifritzson@sjukrathjalfari.is sjukrathjalfari.is VENESÚELA Stjórnarandstaðan í Venesúela efndi í gær til fjölda- mótmæla til þess að mótmæla ríkisstjórn Nicolás Maduro forseta. Fremstur í flokki var Juan Guaidó, 35 ára þingmaður og nýr þingfor- seti, sem venesúelska þingið gerði fyrr í mánuðinum að starfandi for- seta þar sem kjörtímabil Maduro var runnið út og þingið álítur kosn- ingar síðasta árs ógildar. Mótmæli höfðu reyndar þegar hafist um nóttina á að minnsta kosti sextíu stöðum. Samkvæmt Reuters lenti mótmælendum saman við lög- reglu og lést að minnsta kosti einn þeirra. Þrjátíu voru handtekin. Maduro er hins vegar ósammála þessu mati. Hann hefur þegar látið setja sig inn í embætti á ný enda lítur hann svo á að hið nýja stjórn- lagaþing, sem hann lét stofna árið 2017 eftir að stjórnarandstaðan náði meirihluta á gamla þinginu, sé æðra. Sósíalistaflokkur Maduro stóð því fyrir gagnmótmælum. Stjórnarandstaðan nýtur stuðn- ings Bandaríkjanna, Samtaka Ameríkuríkja og Lima-hópsins, sem stofnaður var til að stuðla að frið- samlegri lausn á krísunni í Venesú- ela. Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær Guaidó opinberlega sem forseta landsins. Maduro tilkynnti í kjöl- farið að hann ætlaði að slíta sam- skiptum við Bandaríkin. Guaidó og fylgismönnum hefur ekki tekist að styrkja stöðu sína mikið á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá því hann var gerður að starfandi forseta. Stjórnarand- staðan telur vænlegast að leita aðstoðar hersins. Til þess hefur þeim hermönnum sem snúast gegn Maduro verið boðin friðhelgi. Sam- kvæmt Reuters hafa hermenn ríka ástæðu til þess að vera reiðir vegna þess efnahagshrunsins s í Venesúela. Kaupmáttur þeirra, líkt og annarra borgara, hefur orðið nærri enginn vegna gríðarlegrar verðbólgu. – þea Mótmæli gegn meintum valdaræningja STJÓRNSÝSLA Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns, segir að eftir að Minjastofnun skyndi- friðaði þann hluta Víkurgarðs sem er innan byggingarreits félagsins á Landsímareitnum hafi félagið reynt að verða við ýtrustu kröfum Minja- stofnunar um að færa inngang fyrir- hugaðrar hótelbyggingar. „Við fórum með tillögu á fund Minjastofnunar núna 14. janúar sem er alveg eins og krafan sem Minjastofnun bar upp á fundinum í október þegar þau báðu um að þessi inngangur yrði færður og settur inn í horn garðsins. Við töldum að við værum að fallast á þeirra ýtrustu kröfur en í staðinn fyrir að þessu væri vel tekið var okkur eiginlega vísað á dyr. Minjastofnun tók ekki við erindinu og sagðist ekki vilja tjá sig um það að neinu leyti.“ Jóhannes segir umræðuna um nýtingu garðsins hina undarlegustu og Minjastofnun sé í rauninni að taka sér ákveðið skipulagsvald, hún sé að stíga á tær borgaryfirvalda sem fari með skipulagsvaldið. „Minja- stofnun vill að það verði þarna aftur kirkjugarður og hefur jafnvel nefnt að það eigi að girða hann af, leggst gegn því að torgið verði notað undir matarmarkað og veitingasöluvagna og vill helst bægja mannlífi frá garð- inum en það er í algjöru ósamræmi við skipulagið þarna af því að það kveður á um að þarna eigi að vera lifandi opið svæði og fólk geti setið þarna úti á góðviðrisdögum og notið borgarinnar.“ Skyndifriðunin er í gildi til 18.  febrúar og gæti endað á borði mennta- og menningarmálaráð- herra, óski Minjastofnun eftir því að svæðið verði friðað. „Málið er hjá Minjastofnun núna og gæti komið til ráðuneytisins og því ekki eðlilegt að ég tjái mig um það að svo stöddu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. adalheidur@frettabladid.is Minjastofnun neitar að taka við sáttaboðum Meðan á skyndifriðun stendur vill Minjastofnun ekki hlýða á sáttaumleitanir Lindarvatns um inngang í hótelið sem rísa mun á Landsímareit. Lóðarhafi segir Minjastofnun hafa allt aðra sýn á garðinn en deiliskipulag gerir ráð fyrir. Forstöðumaður Minjastofnunar sagði stofnunina geta tekið styttuna af Skúla fógeta og sett hana fyrir inngang hótelsins á Landsímareitnum, verði hann á stað sem stofnunin er mótfallin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Minjastofnun vill helst bægja mannlífi frá garðinum en það er í algjöru ósamræmi við skipulagið þarna. Jóhannes Stefáns- son framkvæmd- arstjóri Tugþúsundir mótmælenda mótmæltu stjórn Maduro í gær. NORDICPHOTOS/AFP 2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 F -4 9 4 0 2 2 1 F -4 8 0 4 2 2 1 F -4 6 C 8 2 2 1 F -4 5 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.