Fréttablaðið - 24.01.2019, Síða 8
Sjóðir í stýringu breska eigna
stýringarfyrirtækisins Artemis
Investment Management bættu í
liðnum mánuði við eignarhlut sinn
í Arion banka og eru nú saman
lagt komnir í hóp stærstu hluthafa
bankans.
Samkvæmt nýjum lista yfir
stærstu hluthafa Arion banka, dag
settum 31. desember 2018, fara
sjóðir breska fyrirtækisins með
samanlagt 1,2 prósenta hlut í bank
anum og eru þannig ellefti stærsti
hluthafinn. Sjóðirnir komu fyrst
inn í hluthafahóp bankans í hluta
fjárútboði hans síðasta sumar, að
því er fram kemur í gögnum frá
Artemis.
Er 1,2 prósenta hlutur fjárfest
ingarsjóða Artemis metinn á tæp
lega 1,8 milljarða króna miðað við
núverandi gengi hlutabréfa í Arion
banka. Breska eignastýringarfyrir
tækið, sem var stofnað árið 1997,
stýrði samtals um 26,3 milljörðum
breskra punda, jafnvirði um 4.080
milljarða króna, fyrir viðskiptavini
sína í lok síðasta árs.
Þá er eignastýringararmur
Deutsche Bank, Deutsche Asset &
Wealth Management, jafnframt
kominn í hóp stærstu hluthafa
Arion banka með eins prósents hlut,
samkvæmt hluthafalista bankans.
Gengi hlutabréfa í Arion banka
stóð í 73 krónum eftir lokun mark
aða í gær og er um 2,7 prósentum
lægra en útboðsgengi bréfanna
þegar bankinn var skráður á mark
að í júní í fyrra. Bréfin hafa lækkað
um 0,7 prósent í verði undanfarinn
mánuð en lækkunin nemur um 22
prósentum frá því að hlutabréfa
verðið náði toppi í september í
fyrra. – kij
Artemis í hóp stærstu hluthafa Arion banka
Fjöldi nýskráðra bíla dróst saman um 18 prósent milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fellibylur í suðurhluta Kína og bið
eftir svörum frá íslenskum sam
keppnisyfirvöldum hafa tafið áætlan
ir skipafélaganna Eimskips og Royal
Arctic Line um fyrirhugað samstarf
félaganna um að minnsta kosti þrjá
mánuði. Ekki er gert ráð fyrir að verk
efnið fari af stað fyrr en í fyrsta lagi í
desember á þessu ári.
Þetta kemur fram í frétt danska
miðilsins ShippingWatch.
Umrætt samstarf snýr að því að
tengja Grænland, en Royal Arctic Line
er að fullu í eigu grænlensku heima
stjórnarinnar, við alþjóðlegt sigl
ingakerfi Eimskips með samnýtingu
á plássi í siglingakerfum félaganna.
Þrjú gámaskip, sem eiga að verða
grundvöllur að samstarfinu, eru í
smíðum í skipasmíðastöð í Kína en
Eimskip skrifaði undir samning um
smíði á tveimur af skipunum í janúar
árið 2017.
Samningsverð hvors skips fyrir
sig nam um 32 milljónum dala sem
jafngildir um 3,7 milljörðum króna.
Verner Hammeken, forstjóri Royal
Arctic Line, segir í samtali við Shipp
ingWatch að fellibylur sem gekk á
land í suðurhluta Kína í desember
hafi valdið skemmdum á lóð skipa
smíðastöðvarinnar og tafið þannig
verkið. Jafnframt hafi engin svör enn
borist frá samkeppnisyfirvöldum en
skipafélögin sóttu um undanþágu frá
samkeppnislögum vegna samstarfs
ins í maí árið 2016.
„Ég trúi því að við höfum svarað
beiðni yfirvalda og að það verði
ekki fleiri beiðnir. Síðasta svarið var
sent rétt fyrir jól og við eigum von á
ákvörðun innan tíðar,“ segir Hamm
eken. – kij
Áformum Eimskips og Royal Arctic Line seinkar
Skipin sem eru í smíðum í Kína eru mun stærri en þau sem hafa þjónað
íslensku skipafélögunum til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Bílasala er orðin næmari fyrir
umræðunni í þjóðfélaginu en áður
að sögn forstöðumanns útlánasviðs
Ergo. Á móti hefur uppgangur ferða
þjónustunnar myndað sveiflujöfnun
inn í efnahagslífið sem gerir það að
verkum að aukin eftirspurn er eftir
bílaleigubílum.
Markaðurinn greindi nýlega frá
samantekt Ergo sem sýndi að fjöldi
nýskráðra bíla dróst saman um 18
prósent á milli ára. Árið 2018 fór vel
Bílasalan næmari fyrir umræðunni
Þjóðfélagsumræðan
í vetur hafði töluverð
áhrif á bílasölu. Aftur
á móti jókst eftirspurn
eftir bílaleigubílum.
af stað en það fór að hægja á sölunni
á seinni hlutanum.
„Við þurfum að hafa í huga að við
erum að bera 2018 saman við stærsta
bílaárið í sögu Íslands. Bílasalan í ár
mun verða á bilinu 15 þúsund til 17
þúsund bílar sem er mjög ásættan
legt,“ segir Haraldur Ólafsson, for
stöðumaður útlánasviðs Ergo.
Fram kom í samantekt Ergo að
bílasalar reki dræmari sölu á seinni
hluta ársins til óvissu varðandi
kjarasamninga. Haraldur segir að
umræðan í þjóðfélaginu sé farin að
hafa meiri áhrif á bílasölu en áður.
„Við erum að upplifa að bílasala er
orðin viðkvæmari fyrir umræðunni
í þjóðfélaginu og væntingum. Það er
ný þróun,“ segir Haraldur og rifjar
upp stöðuna síðasta haust. „Salan
fer niður um miðjan september og
það er á þeim tíma þegar umræðan
um Icelandair og WOW air fer á flug.
Á sama tíma eru aðilar í verkalýðs
hreyfingunni að tjá sig um þá erfiðu
stöðu sem kann að koma upp á
vinnumarkaði.
Ætla má að veiking krónunnar í
vetur hafi einnig haft neikvæð áhrif
á bílasölu en aftur á móti hefur upp
gangur ferðaþjónustunnar byggt
sveiflujöfnun inn í bílamarkaðinn.
„Ferðaþjónusta er mjög verðteygin
vara þannig að veiking krónunnar
skilar sér í aukinni eftirspurn eftir
landinu sem aftur skilar sér í eftir
spurn eftir bílaleigu. Við erum að sjá
fram að það að bílaleigurnar kaupi
allt að sjö til átta þúsund bíla á þessu
ári og þær bílaleigur sem ég ræddi við
fyrir áramót sögðu að bókanir inn á
þetta ár hefðu aukist verulega miðað
við sama tíma árið áður. Vissulega
eru fáir dagar bókaðir þannig að
hver dagur hefur mikil áhrif en engu
að síður eykst eftirspurnin þegar
krónan gefur eftir.“
Verð notaðra bíla er að miklu leyti
háð verði nýrra bíla. Verð notaðra
bíla lækkaði töluvert árið 2017 og
fyrri hluta 2018 en gengisveiking
krónunnar í vetur sneri þróuninni
við. „Notaði markaðurinn er ekki
lengur í lækkunarfasa. Nýir bílar
urðu dýrari og sú verðhækkun
kvíslaðist inn á notaða markaðinn
að einhverju leyti. Það er ekkert laun
ungarmál að það eru margir notaðir
bílar til sölu en við sjáum það í okkar
tölum að það hefur gengið ágætlega
að selja þá.“
Aðspurður segir Haraldur að ekki
séu merki um að lánshlutföll bílalána
hafi aukist en það er ein vísbending
um þenslu á markaðinum. „Það virð
ist vera þannig að fólk sem kaupir
bíla sé með töluvert eigið fé á milli
handanna. Lánshlutföllin hjá okkur
hafa ekki hækkað sem er jákvætt
enda viljum við hafa markaðinn
heilbrigðan.“
Lánshlutföllin hjá
okkur hafa ekki
hækkað sem er jákvætt enda
viljum við hafa
markaðinn
heilbrigðan.
Haraldur
Ólafsson
PHILIPS HUE
COLOR E27 SNJALLPERUSETT
• Tengistöð, dimmir og 3x E27 RGB perur
• Stjórnað með dimmi, snjallsíma, spjaldtölvu eða snjallúri
HUEE27STARTP 24.995
snjallvæddu
heimilið
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
MARKAÐURINN
2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
F
-4
4
5
0
2
2
1
F
-4
3
1
4
2
2
1
F
-4
1
D
8
2
2
1
F
-4
0
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K