Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2019, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 24.01.2019, Qupperneq 12
Í Danmörku eru 8% barna til komin vegna tækni- sæðingar. Fæðingartíðni hefur farið lækkandi þar sem og í Þýskalandi, Bandaríkjun- um og víðar með þeim afleiðingum að þjóðirnar eru ekki að endurnýja sig ef svo mætti kalla. Teitur Guðmundsson læknir Lækkuð fæðingartíðni og auknar lífslíkur fólks á efri árum leiðir að sjálf­sögðu til þess að það eru sífellt færri sem ala önn fyrir vaxandi fjölda aldraðra. Þetta er áhyggju­ efni stjórnvalda víða um heim. En svo má heldur ekki gleyma þeim vandamálum sem stafa af fjölgun jarðarbúa og þeim lífsstíl sem stór hluti jarðarbúa hefur tamið sér,“ segir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði sem áður starfaði hjá Hagstofu Íslands, og hefur fylgst með þróuninni. Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var 1,71 lifandi barn á hverja konu en almennt við­ mið er að hver kona þurfi að ala um 2,1 barn til þess að viðhalda mann­ fjöldanum til lengri tíma litið. Erfitt sé að segja til um hvort fæð­ ingartíðni hér á landi haldi áfram að lækka en líklegt sé að fæðingartíðni standi í stað á þessu ári. „Mögulega hefur hækkun þaks­ ins í fæðingarorlofi hvetjandi áhrif þegar fram í sækir. En svo má líka spyrja sig að því hvort Ísland er ekki bara komið þangað sem hin Norðurlöndin eru. Norðurlöndin eru reyndar þekkt fyrir það að barnlausar konur eru þar hlutfalls­ lega færri en annars staðar í Evrópu en barnleysi er þó algengara annars staðar á Norðurlöndum en það er hér. Og svo má velta því fyrir sér hvort við færumst ekki nær „tveggja barna normi“ með tíð og tíma en það er erfitt að segja,“ segir Ólöf. Um ástæðuna fyrir því að íslensk­ ar konur eignist færri börn nú en áður segir Ólöf að aldrei sé nein ein skýring á flóknu fyrirbæri. Þó að sveiflur í fæðingartíðni á Íslandi hafi nokkurn veginn fylgt sveiflum annars staðar á Norðurlöndum og raunar annars staðar í Evrópu hafi konur á Íslandi lengi vel eignast fleiri börn en kynsystur þeirra ann­ ars staðar á Norðurlöndum. „Þegar ný fæðingarorlofslöggjöf var innleidd upp úr aldamótunum 2000 þar sem greiðslur í fæðingar­ orlofi voru hækkaðar, fæðingarorlof lengt og báðum foreldrum tryggður réttur til fæðingarorlofs, hækkaði fæðingartíðnin nokkuð. Í hruninu voru greiðslur í fæðingarorlofi lækkaðar verulega og þessi lækkun hefur haldist þar til nýverið. Þetta leiddi til þess að fæðingarorlofs taka feðra dróst verulega saman, einkum eftir 2011 sem ég fjallaði um í grein ásamt Heiðu Maríu Sigurðardóttur, en einnig er fjallað um þetta atriði í rannsókn Guðnýjar Eydal og Ásdís­ ar Arnalds,“ segir Ólöf. „Ari Klængur Jónsson doktorsnemi hefur nýlega birt grein þar sem hann skoðar fæðingartíðni eftir fæðingarröð. Þar sést að líkur fólks á að eignast sitt fyrsta barn hafa minnkað veru­ lega en líkur á fæðingum annars og þriðja barns er mun stöðugri. Þetta er vísbending um að barnlausum konum sé að fjölga.“ Það hefur sýnt sig að breyta má hegðun fólks með aðgerðum á sviði fjölskyldustefnu. Dæmi um þetta er Þýskaland þar sem fæðingartíðni hækkaði í 1,7 á örfáum árum eftir að norræn stefna í fæðingarorlofs­ greiðslum var tekin upp. Þar hafði fæðingartíðnin verið 1,3 allar götur frá 1970. Annar þáttur sem virðist hafa leitt til tiltölulega hárrar fæð­ ingartíðni á Norðurlöndunum er opinber og ódýr barnagæsla. „Lækkuð fæðingartíðni er alþjóð­ legt fyrirbæri og flestir mannfjölda­ fræðingar líta svo á að þetta sé vandamál. Fæðingartíðni hefur alls staðar lækkað og víða í heiminum er hún lægri en tvö börn á ævi hverrar konu. Það er litið á það sem vanda­ mál þegar sífellt færri eru til að ala önn fyrir sífellt fleiri öldruðum ein­ staklingum. Þeim fjölgar hlutfalls­ lega meðal íbúa þegar fæðingum fækkar og svo bætist við að við lifum sífellt lengur. En svo má ekki heldur gleyma því að fjölgun jarðarbúa skapar ýmiss konar vandamál sem við þurfum að berjast við. Ef marka má alþjóðaspár um þróun mann­ fjölda í heiminum lítur reyndar út fyrir að um miðja þessa öld hætti jarðarbúum að fjölga.“ Fólksfjölgun hætti um miðja þessa öld Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið eins lág og árið 2017 frá því að talning hófst árið 1855. Miðað við þróun er alls ekki útilokað að slíkar tölur verði enn lægri árið 2018. Almennt er þessi minnkandi frjósemi talin áhyggjuefni. Þegar kemur að barneignum er iðu­lega rætt um þátt kvenna sem eðlilega bera hitann og þungann ef kalla má af getnaðinum sjálfum sem þó þarf iðulega bæði kynin til. Í vestrænum og tæknivæddari samfélögum er einnig eitthvað um tæknisæðingar sem koma þá til þegar par getur ekki eignast börn. Við rannsóknir á frjó­ semi og möguleikum til að eignast barn er eðlilegt að skoða báða aðila og í tilfelli karla er oftar en ekki verið að horfa til magns sæðisfrumna og fram­ leiðslu. Rannsóknir hafa sýnt að karlmenn á Vestur­ löndum hafa á síðustu 45 árum verið á stöðugri niðurleið hvað varðar magn sæðisfrumna og sér ekki enn fyrir endann á því. Vísindamenn hafa haft áhyggjur af því að þetta ástand muni skila sér í almennt minni frjósemi og barneignum og að karlar kunni að verða ófrjóir með tímanum. Síðast­ liðin 45 ár hefur magn sæðisfrumna dregist saman um tæplega 60% í körlum á Vesturlöndum án þess að góð skýring sé þar á og er kallað eftir alþjóðlegri samvinnu til að átta sig á orsökum vandans. Þegar litið er til magns sæðisfrumna hjá karl­ mönnum í Afríku og í Kína til dæmis virðist þeim ekki vera alveg sami vandi á höndum, þar eru hærri hlutföll í mælingum. Tenging við umhverfisþætti líkt og mengun, ýmiss konar efni, plast og þalöt, reykingar, áfengisneyslu, offitu og aðra lífsstílsþætti hefur verið nefnd en enginn veit af hverju þetta gerist í raun og veru. Umræðan um þalöt er hávær en þar er um að ræða efni sem tengjast plastvinnslu og agnir sem hafa áhrif á hormónastarfsemi beggja kynja, en að því er virðist sérstaklega testósterón hjá körlum. Rannsóknir hafa sýnt fram á truflun á þessari starfsemi sem og mögulega fæðingargalla á kynfærum karla. Í dýratilraunum hafa komið fram breytingar tengdar slíkum efnum sem renna stoðum undir þessar kenningar, en frekari gagna og rannsókna er þörf til að slá þessu föstu. Sé það rétt að umhverfisþættir hafi slík áhrif sem þessi og útskýri einnig hærri tíðni eistna­ krabbameins hjá körlum í hinum vestræna heimi þá er verk að vinna, enda augljóslega mikilvægt að frjósemi karla líkt og kvenna sé viðhaldið. Mörg vestræn lönd hafa séð hnignun í frjósemi og barneignum, hvort sem kenna má þessum þætti um sérstaklega sem og fleirum. Í Danmörku eru 8% barna til komin vegna tæknisæðingar. Fæðingar­ tíðni hefur farið lækkandi þar sem og í Þýskalandi, Bandaríkjunum og víðar með þeim afleiðingum að þjóðirnar eru ekki að endurnýja sig ef svo mætti kalla. Hér kemur fleira til auðvitað líkt og aldur og geta líkamans almennt til barneigna sem minnkar með aldrinum, hraðar hjá konum en körlum í gegnum tíðina, en það gæti verið að breytast. Karlar ættu því að vera meðvitaðir um eigin heilsu almennt og viðhalda henni með heilbrigðum lífs­ stíl og jafnvel mati á þessum þætti sem getur skipt sköpum upp á framtíðarhamingju og myndun fjöl­ skyldu með maka sínum. Getuleysi karla er þeim mikið mál með hækkandi aldri vegna risvanda og úthalds til að stunda samfarir en frjósemi hefur ekki verið svo mikið atriði fyrr en kannski núna. Frjósemi karla Lækkuð fæðingar- tíðni er alþjóðlegt fyrirbæri og flestir mann- fjöldafræðingar líta svo á að þetta sé vandamál. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði Andlega hliðin á það til að gleymast Ákvörðunin um að eignast barn er ferli. Það byrjar með því að par tekur markvissa ákvörðun um að reyna barneignir, hætta á getnaðarvörnum og láta náttúruna hafa sinn gang. Þetta ferli getur tekið frá nokkrum mánuðum til nokkurra ára. Ef fólk hefur reynt sjálft í nokkurn tíma án árangurs fer það að gruna að eitthvað geti verið að og leitar sér aðstoðar. Þetta getur tekið langan tíma, sem tekur á andlega, líkamlega og fjárhagslega. En oft gleymist að hlúa að andlegu hliðinni. Þetta segir Helga Sól Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á Kvenna- og barnasviði Landspítalans og Livio Reykja- vík. Hún starfar með fólki í þessari stöðu og styður það í gegnum sorgarferli þess. Þau sem standa frammi fyrir þeim veruleika að þau verði ekki foreldrar upplifa ítrekuð vonbrigði við það að verða ekki þunguð eða ítrekað að missa fóstur. Vonin minnkar en samt er búið að fjárfesta andlega, líkam- lega og fjárhagslega í þessum draumi og erfitt að gefa hann frá sér. „Fólk sem lendir í fósturmissi eftir að hafa verið að reyna lengi að eignast barn veit að ef það ætlar að reyna aftur þá kostar það líkamlega, andlega og ekki síst fjárhagslega. Stundum þurfa þau að taka sér hlé frá meðferðum vegna þess að þau eru að borga síð- asta lán sem þau tóku fyrir meðferðinni svo þau geti tekið nýtt lán fyrir næstu meðferð. Og þrátt fyrir að þau geri allt sem í þeirra valdi stendur til að eignast barn þá tekst það stundum ekki,“ segir Helga Sól. „Þetta getur verið mjög erfitt ferli. Það virðist vera tilhneiging til að einfalda þessa flóknu lífsreynslu. Fólk sem hefur ekki upplifað að eiga erfitt með að eignast barn á erfitt með setja sig í spor hinna. Og því fylgir oft að ráð eru gefin með góðum huga en af hugsunarleysi. Til dæmis það að það sé svo erfitt að eiga smábörn, þau vaki á næturnar o.s.frv. þannig að þau séu í raun heppin að þurfa ekki að upplifa það. Eða að þau þurfi bara að slaka á og fara eina helgi í sumarbústað. Þetta eru ekki hjálpleg ráð heldur frekar til þess fallin að fólk upplifi að þaað sé eitt með þennan vanda og sorg,“ segir Helga Sól. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þegar fólk er búið að ljúka þessu ferli og átta sig á að barn verður ekki partur af lífi þess, þá yfirleitt eru lífsgæði alveg ágæt að sögn Helgu. Fólk finnur lífsfyllingu í öðru og sambandsslit eru ekki algengari en hjá öðrum. Enda hefur það gengið í gegnum erfiða lífsreynslu saman. „Stundum er einnig kominn tími til að skoða aðra möguleika og þá jafnvel kveðja drauminn um barnið og byggja upp líf sitt með öðrum áherslum. Þó hafa rannsóknir sýnt að þegar fólk eldist og vinir eru að eignast barnabörn þá er hætta á að fólk upplifi sorg á ný,“ segir Helga Sól. Helga Sól Ólafsdóttir félagsráðgjafi. TILVERAN 2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 F -1 C D 0 2 2 1 F -1 B 9 4 2 2 1 F -1 A 5 8 2 2 1 F -1 9 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.