Fréttablaðið - 24.01.2019, Side 14
Helmingur lækna
hugleitt að hætta
Um helmingur lækna hugleiddi oft
eða stundum að láta af störfum
á tólf mánaða tímabili sem ný
könnun náði til. Þeim standa ekki
mörg önnur störf til boða, erfitt er
að færa sig um set innan kerfisins
og því horfa þeir til útlanda. Mikill
meirihluti lækna telur sig vera undir
of miklu álagi. „Læknar eru undir
gríðarlegu álagi og þeir finna fyrir
einkennum sem eru truflandi eins
og kvíða, depurð og einbeitingar
truflunum. Það eru auðvitað merki
um ofurálag og í sumum tilfellum
kulnun,“ segir Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir sem stýrði rannsókninni.
Rannsókn var gerð
nýlega á líðan lækna sem
sýndi fram á það að
læknar eru undir
gríðarlegu álagi hér á
landi. Margir hafa
hugsað sér að flytja
sem þykir áhyggju-
efni.
Tíunda hverjum líður
illa í grunnskóla
Um tíu prósentum nemenda líður
ekki vel í grunnskóla. Á bilinu 2,7 til
4,2 prósenta líður mjög illa. Níutíu
prósentum nemenda í grunn
skólum landsins líður vel eða
þokkalega vel í skólanum. Átta
af hverjum tíu nemendum í
6. bekk telja að kennurum sé
annt um þá en hlutfallið er
65 prósent í 10. bekk. Þetta
kemur fram í rannsókninni
Heilsa og lífskjör skóla
nema, sem unnin var að undirlagi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO).
Flestir nemendur í öllum ald
urshópum hreyfa sig reglulega.
Aðeins 8,2 prósent nemenda í 10.
bekk höfðu ekki hreyft sig undan
farna sjö daga. Neysla grænmetis og
ávaxta reyndist nokkuð almenn.
Hvað veldur
vanlíðan grunnskóla-
nema? Mögulega gæti
svefnskortur verið að
hrjá einhverja.
Fasteign vikunnar er falleg og björt þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Norðlingaholti, nánar tiltekið Reiðvaði. Í Reiðvaði 5 er mikil lofthæð, gólf-
síðir gluggar, fínar svalir og frábært útsýni. Í íbúðinni er opið stofu- og eldhúsrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús ásamt stæði í bílageymslu og geymslu í sameign. Hér er um að
ræða góða, hlýlega eign með stórum sólarsvölum og fallegu útsýni upp í Heiðmörk á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og Björnslund svo og gönguleiðir við Rauðavatn.
Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins
Nekt mótmælt
í Seðlabanka
Seðlabankinn tók niður þau mál
verk eftir Gunnlaug Blöndal sem
sýndu nekt og voru á almennum
vinnusvæðum og skrifstofum yfir
manna. Þau verða í geymslu þar
til annað verður ákveðið. Ritstjóri
Seðlabankans sagði að verið væri
að framfylgja jafnréttisstefnu.
Starfsumhverfið skuli ekki misbjóða
starfsmönnum.
Bandalag íslenskra listamanna telur
málið furðulegt. Það veki margar
spurningar um listaverkaeign
stofnunarinnar „og ekki síður þá
undarlegu tímaskekkju puritanisma
að ritskoða list með þessum hætti“,
segir bandalagið. „Kannski segir það
eitthvað um samtímann að þessi
tiltekna ritskoðun skuli upp sprottin
í Seðlabanka Íslands, sem afleiðing
af nafnlausum athugasemdum.“
TILVERAN
Meirihlutinn andvígur
veggjöldum
Meirihluti landsmanna, eða 56 pró
sent, er frekar eða mjög andvígur
hugmyndum um að veggjöld verði
innheimt til að fjármagna uppbygg
ingu helstu stofnleiða samgöngu
kerfisins samkvæmt könnun sem
Zenter gerði fyrir Fréttablaðið. Einn
af hverjum þremur er frekar eða
mjög hlynntur slíkum hugmyndum.
Í nýrri samgönguáætlun til næstu
15 ára eru tillögur um að innleiða
veggjöld til að mæta fyrirsjáan
legri minnkun á tekjum ríkisins af
sérstökum gjöldum á eldsneyti og
flýta brýnum endurbótum og upp
byggingu vegakerfisins. „Mér finnst
merkilega mikill stuðningur við veg
gjöld í ljósi þess að engar útfærslur
liggja fyrir,“ sagði Sigurður Ingi
Jóhannsson samgönguráðherra.
Vikan
Særð blygðunarkennd
í Seðlabankanum,
ofurálag á læknum
landsins og vanlíðan
meðal grunnskóla-
nema er meðal þess
sem var í brennidepli
í liðinni viku. Lands-
menn eru heldur
andvígir veggjöldum
ef marka má könnun
Fréttablaðsins en sam-
gönguráðherra virðist
bjartsýnn.
Könnun Fréttablaðsins
sýnir að 56% landsmanna
séu frekar eða mjög andvíg
hugmyndum um veggjöld.
Falleg verk eftir Gunn-
laug Blöndal sem prýða
innviði Seðlabankans verða
færð í geymslu á meðan
menn leggjast undir feld um
örlög þeirra.
2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
F
-2
B
A
0
2
2
1
F
-2
A
6
4
2
2
1
F
-2
9
2
8
2
2
1
F
-2
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K