Fréttablaðið - 24.01.2019, Page 17

Fréttablaðið - 24.01.2019, Page 17
Reykjavík – Algengast er í lífi manna að hver búi að sínu. Það er reglan. Menn hafast ólíkt að og bera mismikið úr býtum. Yfirleitt skeyta menn mest um eigin hag og minna um aðra. Börn þekkja þetta: Þeim farnast jafnan betur í félagi við ástríka foreldra en í umsjón óvandabundins fólks. Samt skeytum við flest um annað fólk. Við finnum til með þeim sem höllum fæti standa, bæði samfélagið og einstaklingarnir hver og einn. Skattgreiðslur efnafólks eru víða notaðar skv. lögum til að standa straum af þjónustu handa þeim sem minna mega sín. Margir láta af fúsum vilja fé af hendi rakna til fátækra. Flestir fara betur með eigið fé en annarra þar eð sjálfs þykir höndin hollust þótt nær væri að hafa það heldur á hinn veginn. Í þessum eðlismun eru fólgnir almennir kostir heilbrigðs einka- framtaks umfram ríkisrekstur nema þegar algild rök hníga að ríkisafskiptum, t.d. í heilbrigðis- og menntamálum, samgöngum o.fl. Í fullkomnum heimi myndu menn hvorki gera upp á milli eigin barna og annarra né heldur milli eigin fjár og annarra. Almannavaldinu er ætlað að jafna metin svo að einkahagur og almannahagur geti farið saman. Listin er að draga þar mörkin milli einkaframtaks og almannahagsmuna, milli fólks og fyrirtækja og milli samfélagshópa að flestir geti vel við unað og haldið friðinn. Og þá er ég kominn að efni máls míns. Þegar hlutföllin raskast Skipting auðs og tekna milli manna og hópa hefur allajafna engin umtalsverð áhrif á samninga um kaup og kjör á vinnumarkaði. Þar er almenna reglan sú að hvert verklýðs- félag semur við vinnuveitendur fyrir hönd umbjóðenda sinna án þess að horfa til annarra hópa að því gefnu að atvinnulífið, tekjuskiptingin og launahlutföllin hafi haldizt í sæmilega föstum skorðum svo sem algengast er. Þá dugir flestum laun- þegum að miða kaupkröfur sínar við eigin afköst, þróun fyrri ára og ástand efnahagslífsins. Raskist launahlutföll verulega á þessi regla þó ekki lengur við því þá finnst mörgum launþegum eðlilegt að reyna að rétta sinn hlut gagn- vart öðrum. Menn meta afkomu sína ekki aðeins í ljósi eigin tekna og eigna þegar allt kemur til alls heldur einnig í samanburði við aðra, einkum ef hlutföllin raskast verulega og einkum og sér í lagi ef tilteknir hópar – t.d. embættismenn, forstjórar, stjórnmálamenn – ryðjast fram fyrir aðra. Ef laun lækna hækka til muna sækjast hjúkrunarfræðingar eftir hliðstæðri hækkun. Sama á við um flugmenn og flugfreyjur o.s.frv. Einmitt þetta hefur gerzt undan- gengin ár. Því hljóta launþegar nú að krefjast leiðréttingar umfram þau viðmið sem vinnuveitendur og ríkis- stjórnin hafa lagt til grundvallar og gert sér vonir um. Hvernig gat þetta gerzt? Vinnuveitendur fóru fram úr sér og einnig ríkið, umsvifamesti vinnu- veitandinn. Hæstráðendur sóttu sér fyrirmyndir út í heim þar sem forstjóralaun, einkum í Banda- ríkjunum, hafa undangengin ár hækkað langt umfram venjuleg laun án þess að forstjórarnir hafi nokkuð til þess unnið. Enda eru laun þeirra að miklu leyti sjálftekin þar eð for- Nú er komið að okkur stjórarnir sitja gjarnan í stjórnum fyrirtækja hver hjá öðrum. Kjararáð bætti gráu ofan á svart hér heima með því að hækka laun alþingis- manna og æðstu embættismanna upp úr öllu valdi. Ábyrgðin á aðsteðjandi vinnu- deilum hvílir á sjálftökusveitum vinnuveitenda og ríkisstjórninni sem leyfa sér samt að segja nú við laun- þega að þeim beri að sætta sig við hóflega hækkun launa til að halda verðbólgunni í skefjum. Launþegar sætta sig ekki við slíkan yfirgang. Kennedy Bandaríkjaforseti varaði við ójafnaðarmönnum með þessum orðum: „Það er ekki hægt að semja við menn sem segja: Mitt er mitt, við semjum um hitt.“ Hvað gerist ef launþegar knýja fram svipaðar kjarabætur og emb- ættismenn, forstjórar og stjórnmála- menn hafa skammtað sjálfum sér beint eða óbeint? Launþegasam- tökin hafa málið í hendi sér. Óbreytt vinnulöggjöf frá 1938 tryggir þeim sömu skilyrði, sama vald og áður til að leggja vinnuveitendum lífsregl- urnar ellegar lama efnahagslífið með víðtækum verkföllum líkt og stundum áður á fyrri tíð. Alþýðusam- bandið felldi m.a.s. ríkisstjórn Her- manns Jónassonar frá völdum 1958 að heita má. Hví skyldu launþega- samtökin undir nýrri samheldinni forustu ekki neyta lags og velgja ríkisstjórn sem þau telja óvinveitta undir uggum? Þau eru í fullum rétti þegar þau segja: Hingað og ekki lengra. Nú er komið að okkur að taka til snæðings, geta þau sagt, svo ég vitni enn til afrísks máltækis sem er ættað af sléttunum þar sem ljónin berjast um bráðina. Fari launþegar fram á umtalsverða kauphækkun til að rétta hlut sinn má telja víst að verðbólgan aukist og gengi krónunnar falli með gamla lag- inu. Þar eð fyrirkomulag verðtrygg- ingar er enn óbreytt mun höfuðstóll verðtryggðra lána þá hækka. Skyldi Austurvöllur fyllast aftur af fólki? Þorvaldur Gylfason Í DAG Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 TILBOÐ VIKUNNAR SPENNANDI GRÆJUR Á FRÁBÆRU TILBOÐI STÚTFULL UR AF SPENNAN DI GRÆJUM JANÚAR BÆKLING UR TÖSKUR TÖSKU TILBOÐ Janúartilboð á töskum á verði frá: 1.592 20% AFSLÁTT UR Í JANÚA R GXT 310 TRUST GXT 310 Glæsileg leikjaheyrnartól með hljóðnema 4.990 VERÐ ÁÐUR 8.990 FRÁBÆRT TILBOÐ PRIMO 13000 FERÐARAFHLAÐA með 13.000mAh hleðslu og vasaljósi 4.990 VERÐ ÁÐ UR 7.990 FRÁBÆR T TILBOÐ WA A114 XBONE S 1T 2CT XBOX ONE S 1TB með 2 stýripinnum og Game Pass 39.990 ACER ASPIRE 1 14” FHD, Quad Core, 4GB minni, 64GB SSD 39.990 VERÐ ÁÐUR 49.990 FRÁBÆRT TILBOÐ ZOWIE XL2411P 144Hz leikjaskjárinn fyrir atvinnuspilarana. 39.99054.990 PS4 SLIM 1TB Með FIFA19 leik og 2.STK Dual Shock 4 stýripinnum SWITCH Nýjasta leikjatölvan frá Nintendo 54.990 VERÐ ÁÐUR 49.990 FRÁBÆRT TILBOÐ VERÐ ÁÐ UR 59.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 24” 144Hz FHD 1920x1080, 1ms, Black eQualizer SENNHEISER HD 4.40 Glæsileg þráðlaus heyrnartól fyrir þá sem vilja góðan hljómburð 12.990 VERÐ ÁÐ UR 16.990 FRÁBÆR T TILBOÐ 69.990ACER ASPIRE 3Nýja Aspire 3 kynslóðin frá Acer er þynnri, léttari, öflugra AC þráðlaust net og með silkiskorið bak Ótrúlegt verð aðeins í örfáa daga! 5 LITIR15” FHD LED 1920x1080 Comfy-View AMD A6 9220e 2.4GHz Turbo Dual Core 4GB minni DDR4 2400MHz 256GB SSD M.2 diskur 14” FHD IPS Ultra-Narrow skjárammi Intel N5000 2.7GHz Pentium Quad Core 8GB minni DDR4 2400MHz 256GB SSD M.2 diskur VERÐ ÁÐUR 89.990 FRÁBÆRT TILBOÐ VERÐ ÁÐUR 119.990 FRÁBÆRT TILBOÐ 99.990ACER SWIFT 1Nýja lúxus línan með enn öflugri 4 kjarna örgjörva, fislétt og ör- þunn úr gegnheilu áli Nýja öflugri lúxus línan kemur í 5 glitur litum 129.990ACER SPIN 5Fjölhæf lúxusfartölva með IPS fjölsnertiskjá sem hægt er að snúa 360° og Stylus penna Ótrúlegt tilboð aðeins meðan birgir endast! 13” FHD IPS 1920x1080 snertiskjár Intel i5 8250U 3.4GHz Turbo Quad Core örgjörvi 8GB minni DDR4 2400 MHz 256GB SSD M.2 diskur STYLUS PENNI SNERTISKJÁR VERÐ ÁÐUR 159.990 FRÁBÆRTTILBOÐ 17tímar VERÐ ÁÐUR 49.990 FRÁBÆRT TILBOÐ 24. janúar 2019 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 2 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 2 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 1 F -4 E 3 0 2 2 1 F -4 C F 4 2 2 1 F -4 B B 8 2 2 1 F -4 A 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.