Stjarnan - 01.03.1929, Qupperneq 4
36
STJARNAN
Trúfrelsisbarátta og ofsóknir
Á lieimurinn eftir að fá nýtt aimanak?
í mörg ár hafa ýms félög unniS atS
þvi aí5 löghelga sunnudaginn í þeirn til-
gangi a'Ö koma fólkinu til atS sækja kirkju
í staðinn fyrir a8 flækjast út um allar
trissur á þeim degi. HiÖ helzta þessara
félaga er hiÖ svokallaÖa “Lord’s Day
Alliance.” ÞaÖ félag telur ntr meira en
30 miljónir meðlima og stendur presta-
stéttin fyrir því. Það hefir í þjónustu
sinni marga leynilögregluþjóna, sem all-
staðar njósna, til þess að komast að raun
um hvort menn—sérstaklega þeir, sem
halda annan helgidag—ibrjóti sunnudags-
hclgina. Hefir það komiö upp hvað eftir
annað að þessir dyggu leyniþjónar þessa
víðtæka kúgunarfélags hafa einatt brotið
sunnudagalögin sjálfir, til þess að geta
veitt aðra að því og komið þeim fyrir
kattarnef. Reynir þetta félag stöðug-
lega ’með allskonar brögðum að hafa á-
hrif á stjórnir þessara tveggja landa í
von um að geta komið löggjöf þeirra til
að innleiða nógU ströng sunnudagalög,
til þess að geta stöðvað alt, sem hreyfist
á sunnudögum og að lokum lokað öllum
dyrurn, sem nú eru opnar á sunnudög-
um, nema kirkjudyrunum. Þessi lög
eru svo ósamrýmanleg í eðli sínu, að
maður gæti vel haldið, að þeir sem hafa
samið þéssi lög hefðu lausa skrúfu ein-
hversstaðar. Samkvæmt þessum lögum
er það talið glæpur að selja hungruðum
manni heilt brauð, en leyfilegt að skera
það upp i sneiðar og selja það þannig.
Eir þó að einhver búðarmaður seldi tonn
af tóbaki ög vagnhlass af eldspýtum, þá
e> hann talinn góður sunnudagshaldari.
Maður verður brotlegur fyrir að selja
pund af hráu kjöti, en enginn maður
vcrður skoðaður sem glæpamaður fyrir
að selja kjöt, þó að það væri af tiu naut-
um, ef það aðeins er soðið. Eyrir að
selja eina hráa kartöflu verður maður
sekur um lagabrot, en þó að sami mað-
urinn seld'i tiu tunnur af soðnum kartöfl-
urn, þá er hann skoðaður sem heiðarleg-
ur borgari og góður kristinn. Samkvæmt
þessurn lögum er leyfilegt að afhenda
fólkinu mjólk á sunnudögum, en ekki að
selja hana í búð, en það er leyfilegt, já
gott og Iblessað, að selja þó það væru
mörg tonn af gosdrykkjum. Svona
mætti halda áfram að telja upp, en þetta
nægir, til að sýna að vizka þessara tutt-
ugustu aldar spekinga tekur fram vizku
löggjafa Rómverja og Gyðinga.
Síðastliðið sumar átti ritstjóri Stjörn-
unnar samtal við einn helzta leiðtoga
þessa félags og áður en því lauk, varð
þessi maður að kannast við, að sam-
kvæmt kenningu ritningarinnar væru sjö-
unda dags Adventistar réttir i hvíldar-
dagshaldi sinu en félag hans reyndi að
löghelga sunnudaginn, ekki af því að
það hefði neitt guðdómlegt boð því við-
vikjandi, heldur af því að svo mikill
fjöldi manna vildi það. En nú segir
Guð: “Þú skalt ekki fylgja fjöldanum
í því að gjöra það, sem ilt er.” 2. Mós.
23 :3. Það er ilt í augum himinsins að
yfirgefa boðorð og lög hins lifandi Guðs
og í staðinn fylgja fánýtum mannasetn-
ingum í þeim tilgangi að geta kúgað þá,
sem kjósa að breyta eftir boðorðum
Guðs.
Aðalritari þessa félags í Bandaríkjun-