Stjarnan - 01.03.1929, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.03.1929, Blaðsíða 7
STJARNAN 39 vikunnar, eins og hann nú er haldinn, komi beinlínis i réttri röS frá hinum upp- haflega hvíldardegi sköpunarinnar. Vér getum hvorki í Ritningunni né í mann- kvnssökunni fundiS neina sönnun fyrir því aS ruglingur á vikudögunum hafi nokkurn tíma átt sér stað. Nú getiÖ þér glögglega séS vandræÖi vor, þegar þér fariö aS athuga þetta. Fyrsta áriS eítir a'S almanakinu verSur breytt mun alt verÖa gott og blessaS. Hvíldardagurinn, sjöundi dagur vikunnar, niun þá falla í réttri röð á 7, 14 21 og 28 dag hvers mánaÖar, en með byrjun annars árs þessa nýja almanaks verÖur röð hins vikulega hvíldardags komin á ringulreið; því að þá mun hvíldardagurinn, sjöundi dagur vikunnar hins núverandi tímareiknings, falla á föstudag í hverri viku, vegna þess að “ársdagurinn” verður tekinn inn i lok desember mánaöar, en hann verður ekki skoðaður sem partur af hinu nýja alman- aki. Næsta ár þar á eftir mundi hvíld- avdagurinn falla á fimtudag og næsta þar á eftir á miðvikudag o. s. frv. Þannig munu þeir, sem halda hinn sjö- unda dag heilagan verða neyddir til að hafa sitt eigið almanak og verða á þann hátt enn frábrugðnari vikudögunum og verzlunarheiminum er nú er tilfellið, af því að hvídardagurinn mun falla á mis- munandi daga vikunnar eftir því sem fram líða stundir, og aðeins stöku sinn- um með margra ára milibili mundi hvild- ardagurinn falla á laugardag. En hvaö um þá, sem halda sunnudag- iim ? Ef þeir eru hreinskilnir í yfirlýs- ingu sinni, að þeir haldi daginn í minn- irigu um upprisu Krists frá hinni nýju gröf Jóseps af Arimaþeu, þá munu einn- ig þeir verða neyddir til að hafa sitt eigið almanak og halda “fyrsta dag vikunn- ai” eins óreglulega og þeir, sem halda sjöunda daginn helgan. Ef þeir á hinn 'boginn gefast upp og taka upp þetta ný- tizku almanak og halda sinn vikulega helgidag á 1. 8. 15. og 22. dag mánaðar- ins á ári hverju—því að þessir mánaðar- dagar munu verða sunnudagar í nýja al- manakinu—þá munu þeir kannast við, ao hinn vikulegi helgidagur sé alls ekki haldinn í minningu um upprisu Krists, heldur að hvaða dagur vikunnar sem er geti verið helgidagur þeirra. ÞaS hefir þegar verið stungið upp á því, að þetta nýja almanak gangi í gildi fyrsta janúar 1933, því að þá fellur sunnudagurinn á fyrsta janúar. Ef það verði úr þessu, þá munum vér vafalaust sjá undraverðar guðfræðislegar útskýr- ingar af hálfu þeirra, sem verja sunnu- dagshelgina, til þess að geta sefað sína eigin og samvizku almúgans og venja hann við þetta nýja almanak. Vér vitum enn ekki með vissu hvort Bandaríkin munu samþykkja þetta, en sextán þjóðir í Norðurálfunni vilja fá þetta. Þjóöabandið gjörir alt, sem í valdi þess stendur, til að koma þessari breyt- ingu á, og þótt ótrúlegt sé, þá er páfa- valdið algjörlega með því, og helztu verzlunar og peningakóngar Bandaríkj- anna mæla með því. Svo ef bandaríska þingið samþykkir þetta, þá gengur allur heimur inn í þennan nýja tímareikning eftir fjögur ár. Innan skamms mun Guð reyna trú- mensku hvers einasta einstaklings út af fyrir sig meðal allra þjóða. Allir íbúar jarðarinnar munu að lokum standa milli tveggja elda. Hver einasti maður verður að ákveða hvort hann vilji hlýða þessari fölsku helgidagsskipun og þessum ný- tízku dagveljurum, eða lögum og hvíldar- degi hans, sem hefir skapað himin, jörð og haf og alt, sem í þeim er. í Opin- berunarbókinni talar Guð til síns fólks um þessa allsherjar reynslustund með svofeldum orðum: “Af því að þú hefir varðveitt orðið mitt um þolinmæðina, mun eg varðveita þíg frá reynslustundinni, sem koma mun yfir alla heimsbygSina, til að reyna þá, sem á jörðinni búa.” Opinb. 3:10. Kæri vinur, láttu það ekki dragast að leita hælis undir vængi hans, sem hefir alt vald á himni og jörðu. Tíminn er orðinn naumur.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.