Stjarnan - 01.03.1929, Side 10

Stjarnan - 01.03.1929, Side 10
42 STJARNAN undan þessu fargi, úr þessutn þrældómi, sem eg nú var í, þegar England hvarf bak við sjóndeildarhringinn. Áform skipstjórans var .að ná í breska herskipaflotann í Lyon flóanum í Mið- jarðarhafinu, og á leiðinni þagað komum við við í Cadiz á Spáni. Hér voru hinir frakknesku herfíokkar undir stjórn Napóleons að skjóta á borgina og bresku og spönsku herskipin á höfninni. Þessi spönsku herskip tilheyrðu þeim hluta herskipaflotans, sem undir Nelson lávarði komst heill á húfi úr orustunni hjá Tra- falgar. Englendingarnir gjörðu út þessi skip a'S nýju og vopnuðu þau. Að því búnu voru þau: send til Port Mahon í Miðjarðar-hafinu. Alveg fyrirvaralaust var eg ásamt fimtíu öðrum dátum settur til að setja reiðann á einu þeirra, sem “Apollo” hét, og manna það. Eáum dög- um eftir að við höfðum siglt inn um Njörfasundið þGibraltar) skall á hræði- legt veður á austan þÞess konar veður eru tíS í Miðjarðar-hafinu) og velktist skipið svo, að það var einungis með því að dæla stöðuglega, að við gátum hald- ið því á floti. Að lokum komum við inn til Giibraltar aftur, til þess að gjöra við skipiS. HÖpur af spönskum sjóliðsforingjum ásamt fjölskyldum þeirra var enn á skip- inu. Það var undarlegt að sjá þessar manneskjur í ofviðrinu, hvernig þær keptust um að halda sér hjá dýrðlinga- myndum sínum og höfðu fult af logandi Ijósum kring urn þær, eins og þær gætu bjargað skipinu, þegar ekkert annað en dælurar gátu haldið því ofansjávar. Eftir að hafa fengiS viðgerð í Gibralt- ar, létum við í haf einu sinni enn og komum heilir á húfi til Mahon, sem er eyja. Hér leitaði eg aftur, í félagi með tveimur öðrum, frelsisins. Við fengum mnborinn mann til að taka okkur á markaðs'bát sínum inn í eyjuna. Þeg- ar vér í tvo daga höfðum árangurslaust reynt að komast í burtu úr eyjunni á bát eða á einhvern annan hátt komast undan þeim, sem voru að elta stroku- mennina, álitum viS það ráðlegast að voga okkur út á skipið aftur. Hin frjálsa endurkoma okkar var að lokum viður- kend sem merki þess, að við hefðum ekki haft i hyggju að strjúka úr þjónustu hans hátignar konungsins, og á þann hátt komumst við hjá því að verða barðir opinberlega. Þessi skipshöfn var nú tekin aftur til Gibraltar, til þess að vér kæmumst aft- ur á okkar eigið skip "Rodney,” sem emmitt var komið þangað ásamt spönsku herskipi, er ætlaði til Mahon líka. í samfylgd með þessu skipi sigldum við- áttatíu mílur til Malaga, þar sem vér sá- um hina ensku og spönsku herflokka í bardaga með hinum frönsku skamt frá sjávarströndinni. Við lögðum skipinu langsetis að höfninni og hleyptum skot- um úr öllum falllbyssunum á annari hlið- inni. Þegar skipuninni um að fella öll seglin enginn gaumur var gefinn vegna kúlnahriðarinnar frá hinum frösku víg- girðingum, voru allir hásetarnir sendir upp í reiðann, þar sem þeir urðu að vera blífarlausir fyrir kúlunum, þangað til að þeir höfðu tekið öll seglin saman. Plefðu Frakkarnir verið hæfnir myndu þeir hafa getað skotið margan manninn meðan á þessu stóð, en til allrar ham- ingju var enginn maður skotinn fyr en allir komust ofan á þilfarið aftur. Þrjá- tíu og tveggja punda kúlurnar okkar gjörðu um tíma mikið skarð í fylking- um óvinanna. En eftir dálátinn tíma komu þeir bresku fylkingunum inn á milli okkar og þeirra og urðum við þá að láta skothríðina réna. í þessu hræði- lega áhlaupi ráku Erakkarnir bresku fylkingarnar á undan sér og þegar marg- ir af hermönnunum sáu bátana okkar skamt frá landi, hentu þeir sér í sjóinn og voru annaðhvort skotnir af Erökkun- um eða druknuðu, að undanteknum þeim fáu, sem bátar ókkar komu með út á skipið. Þessi orusta hófst klukkan tvö eftir hádegi og endaði við sólsetur. Þeg- ai við höfðum grafið hina föllnu og þvegið blóðið af þilfarinu, sigldutn við

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.