Stjarnan - 01.12.1932, Side 2

Stjarnan - 01.12.1932, Side 2
i78 ST J A RNAN Mikilsverð heilrœði Þegar J. A. Garfield var ungur maÖur var honum gefið smárit meÖ ýmsum heil- ræÖum á, og fylgdi hann þeim trúlega alla æfi sína. Heilræðin voru þessi: Gefðu fá loforð. Talaðu ætíð sannleikann. Talaðu aldrei illa um nokkurn mann. Vel þér ávalt góðan félagsskap. Uppfyltu skyldur þínar. Taktu aldrei þátt í lukkuspili. (lotteríi) Trúðu engum fyrir leyndarmálum þín- um, ef þú hefir nokkur. Giftu þig ekki fyr en þú ert fær um að sjá fyrir konu og börnum. Ef þú vilt njóta gleði lífsins þá vertu ráðvandur. Flýttu þér ekki að verða ríkur, ef þú vilt að þér líði vel. Láttu útgjöld þín vera minni en inn- tektirnar. Sparaðu meðan þú ert ungur, svo þú hafir eitthvað á elliárunum. Ef einhver talar illa um þig, þá breyttu svo vel að enginn trúi honum. Vertu aldrei iðjulaus. Ef þú ert ekki að vinna með höndunum, þá lestu eitthvað sem getur orðið þér til uppfræðingar. Lestu þessar reglur, þér til minnis, að minsta kosti einu sinni á viku. X. Hver var orsökin ? Jerry misti vinnuna. Hlann þverneitaði að láta setja niður kaupið um io af hundraði. Hann kvaðst vilja fá sann- gjarna borgun fyrir vinnu sína, hann ætl- aði ekki að láta níðast á sér, víst ekki. Svo hann hætti að vinna. Þrír mánuðir eru liðnir síðan, og þeim tíma hefir hann að mestu eytt í iðjuleysi. Hann segist ekki finna vinnu sem sé við sitt hæfi. Hann hefir reynt ýmislegt, en sumt hef- it* enga framtíð fyrir hann, eftir því sem hann kemst að orði, eða það er svo illa borgað að hann getur ekki tekið það. Jerry hefir ekkert fé í sjóði svo hann notar sér af gestrisni ættingja sinna, sem s’álfir eiga fult í fangi með að hafa ofan af fyrir sér. Roy misti vinnuna samtímis. Fyrst hafði kaupið verið lækkað. Svo varð verksmiðjan að lækka útgjöldin enn meir. Roy var sagt upp vinnunni, en hann fékk bestu meðmæli, og loforð um að fá vinn- una aftur þegar meira yrði að gjöra. Þrír mánuðir eru liðnir siðan, en Roy hefir aldrei verið vinnulaus þann tíma, ekki einn einasta dag. Hjann hefir unnið alls- konar störf, þvegið glugga, og sett flugna net fyrir þá, þvegið bifreiðar, slegið gras- fleti kringum hús, sett upp girðingar, hreinsað kjallara, stungið upp matjurta- garða og plantað þá, dregið sand, flutt steinlím, hjálpað til við trésmíði, lagt múr- steina, grafið skólprennu, hjálpað manni að leggja veggpappír og málað bifreiða- skýli. Svo einn dag bauð^t honum stöðug vinna með miklu betri kjörum en vænta mátti á þessum fjárkreppu tímum. Það .er líka vinna, sem honum geðjast að, og hann notar tímann vel. Hann hefir i hyggju að ganga á kvöldskóla, tii að afla sér betri mentunar, þangað til hann sér sér fært að fara aftur á háskólann. Hvílíkur mismunur á reynslu þessara ungu manna, sem báðir höfðu sömu ment- un og sama tækifæri. Annar gat ekkert fengið að gjöra, en hinn hafði altaf nóga vinnu. Hver var orsökin?

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.