Stjarnan - 01.12.1932, Síða 13
i
STJARNAN
189
“Ver viðbúinn að mæta Guði þínum”
ÞaÖ er gleÖilegt aÖ vita að ýms kirkju-
félög eru farin að halda því fram aÖ end-
urkoma Krists sé í nánd. Það er gleði-
efni að vita að menn eru vaknaðir upp til
að sjá, hve nauðsynlegt er að þekkja
þenna sannleika Guðs orSs, sem á að
verða kunnur öllum þjóðum kynkvíslum
og tungumálum áður en endirinn kemur.
En svo er það engu síður athugavert, að
þekkingin á þessu atriði er alls ekki full-
nægjandi, ef mönnum er ekki samtímis
kent hvað þeir eiga að gjöra og hvað þeir
eiga að varast, til þess að þeir geti umflúið
alt það, sem koma mun yfir heiminn á
síðustu dögum, og finnist þess verðugir
aö standast frammi fyrir mannsins syni,
þegar hann birtist í dýrð sinni, og dýrð
föðursins með öllum sinum heilögu engl-
um.
Jesús tekur það skýrt fram að ekki
muni allir innganga í himnaríki, sem kalla
hann herra sinn, “heldur sá, sem gjörir
vilja föður míns, sem er í himnunum.”
Matt. 7:2i.
Vilji föðursins er látinn í ljós í 10 boð-
orðunum, en þó er fjöldi þeirra, er kalla
sig kristna, sem leggja enga áherslu á
boðorð Guðs. Sumir fara jafnvel svo
langt að halda því fram að þau séu af-
numin. Ef Guðs boðorS eru afnumin, þá
er engin synd í heiminum, því þar sem
ekkert lögmál er þar er engin yfirtroðsla,
þar sem engin synd er þarf engan frels-
ara. “Synd er lagabrot.” 1. Jóh. 3:4.
Jesús kom til að frelsa sitt fólk frá þess
syndum. Með öðrum orðum, hann kom
til að frelsa oss frá að brjóta Guðs boð-
orð. Því fór svo f jarri að hann kæmi til
að afnema þau, því hann sagði sjálfur:
“Þangað til himin og jörð líða undir lok
mun ekki einn smástafur eða stafkrókur
lögmálsins undir lok líða unz alt er fram
komið.” Matt. 5:18.
Annar flokkur manna heldur því fram
að boðorðin séu í gildi,.öll nema hvíldar-
dags boðorðið, því hafi verið breytt við
upprisu Krists. Vera má að þetta sé
sannfæring sumra leikmanna, bygð á
þeirra eigin vanþekkingu og falskenning-
um hinna andlegu leiðtoga þeirra. En
það er erfitt aS trúa því að prestastéttin
sé svo ófróð í Nýja Testamentinu að vita
ekki betur, því ef stafkrókur eða smástaf-
ur lögmálsins líður ekki undir lok meðan
himin og jörð eru við liði, hvernig getur
þá heilt boðorð liðið undir lok? Guðs
orð segir einnig: “Því ef einhver héldi alt
lögmálið, en hrasaði í einu atriSi, þá er
hann orðinn sekur við öll boðorð þess.”
Jak. 2 :io.
Enn aðrir halda því fram að Guðs boð-
orð séu í gildi, hvíldardags boðorðið eins
vel og hin, en afsaka sig frá að hlýða þeim
með því aS segja að það sé ómögulegt að
halda þau. Ó, vesæll maður! Veiztu að
með slíkri staðhæfingu sakar þú Guð tim
ranglæti, sýnir að þú ert vantrúaður en
ekki trúaður, sýnir að þú treystir ekki
Jesú til að frelsa þig frá synd, frá því að
brjóta Guðs boðorð, og ef þú trúir ekki
Guðs orði, treystir ekki krafti hans til
að framkvæma í þér það, sem hann skip-
ar, þá ert þú ekki frelsaður, ekki læri-
sveinn Krists, þá er boðskapurinn um
endurkomu hans ekki fagnaðar, heldur
skelfingar efni fyrir þig, því hlutur hug-
deigra vantrúaðra og . . . . lygara mun
vera í díkinu, sem logar af eldi og brenni-
steini, sem er hinn annar dauði. Opinb.
21:8.
Vera má að einhver segi: “Hörð er
þessi ræða,” en hún er sannleikur Guðs
orðs, og vor eilífa velferð er undir því
komin að vér gefum gaum og hlýðum
orði hans. Þeir, sem prédika fyrir fólk-
inu eru oft freistaðir til að tala eins og
]?ví líkar, eins og tízkan eða kirkjufélag
þeirra heimtar, svo þeir geti haldið stöðu
sinni, sannur erindreki Krists er ekki
hræddur við menn, hann kennir Guðs orð