Stjarnan - 01.12.1932, Síða 14

Stjarnan - 01.12.1932, Síða 14
og dregur ekkert undan. “Sá, sem kenn- ir, kenni eins og GuÖs orS.” Öxin er og þegar lögð að rótum trjánna, verÖur þá hvert þaS tré, sem ekki ber góÖan ávöxt upphöggviÖ og því á eld kastaÖ. I,úk. 3 :g. Allir, hvort heldur þjónar kirkjunnar eða leikmenn, ríkir eða fátækir, allir, sem vilja umflýja kom- andi reiði, þurfa að bera ávexti samboðna iSruninni, láta af synd og læra að gjöra það, sem Guð býður, því skilyrðið fyrir frelsun er hið sama nú, sem það var fyrr- um: “Gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefn- ingar syndanna.” Post. 2:38. PetiS svo í Jesú fótspor, sem sagði: “Eg hélt boðorð föður míns.” Jóh. 15 :io. “Sá, sem gjörir Guðs vilja varir- að ei- lífu.” 1. Jóh. 2:17. Vér getum gjört Guðs vilja og haldið hans boðorð, hvíldardags boðorðið eins vel og hin, ef vér aðeins leyfum Guðs orði inngang í hjörtu vor, ef vér leyfum Jesú að stjórna lífi voru. Án hans megnum vér ekkert. Eins og Páll postuli getum vér þá sagt: “Eg er krossfestur með Kristi, sjálfur lifi eg ekki framar, held- ur lifir Kristur í mér. En það sem eg þó enn lifi í holdi, það lifi eg í trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálf- an sig í sölurnar fyrir mig.” Gal. 2 :20. “Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.” Lúk. 11 :28. Guð gefi að þú sért einn í þeirra tölu, kæri lesari. ó'. Johnson. “ Blindir fá sýn” Margir þakka Guði og vegsama hann fyrir að hafa sent læknana, Dr. Gloor og Reynolds til Mexico. Það eru dýrðleg einkaréttindi að geta og hafa tækifæri til aS hjálpa hinum nauðstöddu bæði í tím- anlegum og andlegum efnum. Þessir læknar gjöra hvorttveggja. Nýlega heimsótti eg sveitaheimili fyr- verandi forseta Mexico, Mr. Obregons, og kona hans sagði mér frá atviki, sem leiddi eftirtekt hennar að þessum læknum. Hún sagði mér að í mörg ár hefði blindur betlari komið þangað stöðugt og hefði hún ætíð gefið honum eitthvað. Einu sinni leið nokkuur tími, sem bann kom ekki, svo kemur hann aftur og mæl- ist til að fá að sjá Mrs. Obregon. Hún skildi ekki hvernig blindur maður gat óskað eftir að fá að sjá hana, svo af for- vitni bauS hún að leiða hann inn. Þegar hann kom inn sagði hann: “Þú hefir altaf verið svo góð við mig, Mrs. Obregon, og hjálpað mér í mörg ár. Það hefir lengi verið þrá mín og löngun að fá að sjá þig, og nú þakka eg þér fyrir allan góðvilja þinn við mig. Amerísku læknarnir hafa skorið upp augun á mér og eg hefi fengið sjónina.” Þessi maður biður ekki lengur ölmusu. Hlann vinnur fyrir sér, vegsamar Guð og heldur öll hans boðorð fagnandi í von um endurkomu Frelsarans.—E. S. Vinir mínir, sem enn ekki hafið borgað Stjörnuna fyrir yfirstandandi ár, minn- ist þess að Stjarnan líður rneira við að biða eftir litlu fé frá mörgum einstakling- um, heldur en einstaklingurinn við að láta af hendi litla upphæS til hennar, ef hann hefir centin til. Vér treystum yður til að gjöra hið besta og .blessun Guðs mun hvíla yfir yður. V. Johnson.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.