Stjarnan - 01.12.1932, Blaðsíða 15

Stjarnan - 01.12.1932, Blaðsíða 15
Smávegis ÞaÖ á aÖ mála Eiffelturninn í ár. ÞaÖ er gjört aðeins sjöunda hvert ár, og þarf til þess 38 tonn af máli. Á kappflugi, sem haldið var í Cleve- land, Ohio, fyrir nokkru síÖan, vann Major J. H. Doolittle sér heiðurinn fyrir hraða. Hann flaug með 296 mílna hraða á klukkustundinni. Kafteinn J. G. Hleizlip vann í kapp- fluginu frá Kyrrahafsströndinni austur að Atlantshafi, hann flaug þenna veg á 10 klst. og 19 mínútum, eða að meðaltali 250 mílur á klukkustund. Verðlaunin, sem kept var um voru 6,750 dollarar, og auk þess 2,500 dollarar fyrir að hafa flogið frá hafi til hafs á styttri tíma held- ur en áður hafði gjört verið. . Menn á Filippa eyjunum hafa veitt krókódíl, sem vigtaði 19,800, og var 16 fet á lengd. Hann var fluttur til visinda stofnunarinnar í .Manila, en hann lifði aðeins fáa daga eftir að hann kom þangað. STJARNAN kemur út mánaðarlega Útgefenduv. The Canadian Union Con- ference, S.D.A., 209 Birks Building, Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50 á ári I Canada, Bandaríkjunum og Is- landi. Borgist fyrirfram. Ritstjóri: DAVlÐ GUÐBRANDSSON. Afgreiðslukona: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Frétt frá Stavanger í Noregi segir að íbúar Ryfylkis hafi gróðursett um 4-5000 plómufré á ári nú á síðari árum, svo að nú séu í kringum 55,000 af þessum á- vaxtatrjám. Talið er að ávextirnir af þessum trjám í ár, þrátt fyrir lágt verð, hafi verið 350,000 króna virði. Hvað ætli mætti framleiða mikið af einni ekru af landi af allskonar matjurt- um til fæðis hér í okkar frjósama jarð- vegi í Manitoba? Hvað ætli hún gæti framleitt margra dollara virði ef hún væri vel ræktuð og vel hirt? f Grikklandi hafa verið ákafir jarð- skjálftar nýlega. 200 manns mistu lifið og margir fleiri meiddust. Sprungur komu í jörðina sumstaðar alt að 7 fetum á breidd, og í öðrum stöðum féll jörðin niður. Kippirnir voru svo harðir að menn og hlutir köstuðust langar leiðir. Bandaríkin borga um 715 miljónir dollara á ári fyrir meðul, eða nær því 6 dollara á mann. Löggjafarvald Illinois ríkis hefir hald- ið aukafund til að sjá fyrir hiálp handa fátæku fólki komandi vetur. Ætla menn að það muni þurfa eina og hálfa miljón dollara á viku til að hjálpa þeim, sem nauðstaddir eru. Jarðneskar þrengingar eru skamm- vinnar, þótt oss sýnist þær langar, léttar, þótt oss finnist þær þungar. Það er alt undir þvi komið, hvort vér, eins og post- ulinn Páll, höfum lært að líta á lífið hér í heimi í ljósi eilífðarinnar. í því ljósi er alt jarðneskt svo ska.mmvint. í sam- anburði við hina eilífu dýrð, virðast jafn- vel þyngstu sorgir mannlífsins einkis virði. Vér höfum Guðs orð fyrir því að “þrenging vor skammvinn og léttbær afl- ar oss miö'T yfir'mæfanlegs eilífs dýrðar þunga.” Vér skiljum ekki hvernig þetta getur verið, en vér vitum að það er svo. Fylgjum því áminningu orðsins og “horf- um ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýni- lega, því hið sýnilega er stundlegt en hið ósýnilega eilíft.” —E. S.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.