Stjarnan - 01.02.1933, Síða 8

Stjarnan - 01.02.1933, Síða 8
24 STJARNAN fagurt og kraftmikið, aÖ þó þeir, eins og Gilbert West byrji á að rannsaka lif hans og starf í því skyni aÖ finna eitthva'ð út á það að setja, þá enda þeir með því að hrósa honum, og oft með því að tilbiðja hann. Kristur er alt í gegn um Gamla Testa- mentið, ekki síður en hið nýja, alveg eins og lífæðarnar gegn um líkama vorn. Hann er hinn gullni þráður er samtengir alla hluta þess, ljósið sem lýsir í gegnum orðið, lykillinn sem opnar fyrir oss hið leyndardómsfulla, strengurinn, sem still- ir alt í fullkomið samræmi. Hann er hjartað og miðpunkturinn í öllum bók- um Biblíunnar og öllum spádómum henn- ar. Einarsson hafði setið rólegur alt fram að þessu, en nú stóð hann upp og sagði mjög alvörugefinn: “Herra Djarfur, eg vildi ekki grípa fram í fyrir þér, því eg ber mestu virðingu fyrir Kristi. En þótt vitnisburður þinn um hann sé skemtileg- ur áheyrnar, og ekki svo létt að mótmæla því, sem þú segir, þá er það alls ekki sann- færandi. Til dæmis i. Mós. 3 :I5 : “Fjand- skap vil eg setja milli þín og konunnar.” o. s. frv. Þetta finst mér alt of veik und- irstaða til að byggja á henni spádóm um Krist, og flest hin atriðin sem þú nefnir eru eins ófullnægjandi.” “Eg er samdóma þér í þessu efni,” svaraði Djarfur. Lilja dró‘ andan á lofti, svo gjörði einnig bróðir hennar, faðir, og margir fleiri meðal áheyrendanna, þeir urðu svo forviða. “Svo við erum báðir á sama máli?” sagði Einarsson undrandi, “eg skil þig ekki.” “Samt sem áður er eg á sama máli og þú þessu viðvíkjandi. Hver einstakur af hinum 333 spádómum um Krist, er ófull- nægjandi sönnun fyrir því að hann sé hinn fyrirheitni Messías. Eg skal skiýra þetta fyrir yður með atviki, sem kom fyrir mig nýlega. Fyrir nokkrum dögum gekk eg framhjá þar sem verið var að reisa skýjaborg, mjög háa marglyfta byggingu, stór járn- slá, sem hlýtur að hafa vegið mörg skip- pund, var hafin á loft í slöngu, á járn- slánni sat maður alveg eins rólegur eins og hann sæti í stofunni heima hjá sér. Hefði slangan slitnað þá hefði hann fall- ið 200 fet til jarðar og marist til dauðs, þegar búið var að koma slánni fyrir þar sem hún átti að vera, var slangan látin síga niður til að sækja aðra slá, og mað- urinn sat í lykkjunni eins og ekkert væri. Me'San verið var að koma næstu slánni upp í slönguna benti eg manninum á hve mjóir væru vírþræðirnir í slöngunni og fullyrti að einn þeirra 'gæti ekki hafið á loft einn hundraðasta af þeim þunga, sem þeir væru að lyfta. Maðurinn leit á mig með fyrirlitningar svip og sagði hlæjandi: “Veiztu þá ekki að þó einn vír sé ekki nógu sterkur til að lyfta miklum þunga, þá geta þeir allir til sarnans lyft járnslá, sem er tífalt þyngri en þessi. Veiztu ekki að ef þessir vírar væru nógu margir saman þá gætu þeir lyft heilu fjalli?” Um leið og hann sagði þetta steig hann upp á járnslána, gaf merki um að hefja hana og veifaði hendinni til að kveðja mig. “Hver einstakur meðal hinna 333 spá- dóma er ekki nóg sönnun, en þegar þeir koma allir saman í eina heild, þá eru þeir óhrekjandi vitnisburður um að Jesús er hinn fyrirheitni Messias. Næst skulum vér benda á fleiri atriði sem fullkomna vitnisburðinn, er vér tölum um Krist— miðpunkt mannkynssögunnar. Ný tegund af bómull og rayon dúk er nýkomin á markaðinn í Englandi. Þessi tegund fer ekki í brot og verður ekki hrukkótt. Vænta má að samskonar dúk- ur verði bráðum búinn til í Bandaríkjun- um, sagt er að hann sé bæði sterkur og verjist vel vatni.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.