Stjarnan - 01.02.1933, Side 15

Stjarnan - 01.02.1933, Side 15
■S- T JARNAN 3i Krossinn Ilve breiður eða víðtækur er kross Krists? Hann nær yfir allan heiminn því “hann er friðþæging fyrir syndir vorar, og ekki einungis fyrir vorar syndir, held- ur líka fyrir syndir alls heimsins.” Hve langur er krossinn Krists? Nógu langur til að ná til allra tíma og kynslóða. meðan til er nokkur einasti syndari sem vill þiggja frelsun. Svo lengi, sem til er vanþekking, kvíði, sorg og dauði, eða nokkuð annað í heiminum sem Guði er á móti eða mönnum til skaða. Hve hár er kross Krists? Eins hár og hinn hæsti himin, því þegar Jesús hékk á krossinum, kom himininn niður á jörð- ina og jörðin hófst til himna. Hve djúpt nær kross Krists? Hér er leyndardómur, sem menn eru ekki fúsir að athuga. Fyrst kross Krists nær til himna, þá hlýtur hann emnig að ná niður í djúp grafarinnar, niður í hið dýpsta fylgsni. Vér vitum að Jesús sté niður til heljar og reis upp aftur. svo vér getum reitt oss á orð Davíðs er hann segir: “Gjöri eg undirdjúpið að mínu legurúmi þá ertu þar.”. Lúter sagði einu sinni að ef Guð hefði látið sólina koma upp aðeins einu sinni á ári, þá mundu menn hafa haldið þakklæt- ishátíð, en af því sólin rís á hverjum morgni þá gleyma menn að þakka Guði fyrir ljós hennar og hita. Vér ættum að kvarta minna yfir því, sem vér ekki höf- um, og þakka meira fyrir það, sem vér höfum. Á þann hátt yrði líf vort miklu bjartara og hamingjusamara. Alt sem vér höfum er náðargjöf frá elskandi föður, sem elur önn fyrir oss, verum því rólegir, ánægðir, glaðir og þakklátir. Vélfræðingar búnaðardeildarinnar segja, að 6cxd pottar af vatni eyðist til ó- nýtis á 24 klukkustundum, ef vatnspipa lekur, jafnvel þó vatnsbunan sé eins mjó og títuprjónn. STJARNAN kemur út mánatSarlega Útgefendur: The Canadian Union Con- ference, S.D.A., 2 09 Birks Building, Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50 á ári i Canada, Bandaríkjunum og Is- landi. Borgist fyrirfram. Ritstjóri: DAVIÐ GUÐBRANDSSON. Afgreiðslu kona: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Ef þú óskar að njóta hamingju lífsins í fylsta mæli, þá notaðu hvert tækifæri, sem gefst til að gleðja aðra og gjöra þá hamingjusama. Bið Guð að gefa þér sama hugarfar sem var í Jesú Kristi. Síðan Hoover varð forseti hefir hann gjört það sér til gamans að safna öllum ínyndum, sem teknar hafa verið af hon- um. Safn þetta geymir hann í einu af herbergjum forseta hallarinnar. Mynd- irnar eru orðnar 20,000 aö tölu. Þar á meðal eru skrípamyndir, aðrar myndir sýna hann sem vængjaðan verndar engil, o. s. frv. Sumar myndirnar eru settar í umgjörð og hanga á veggnum, en flestar eru geymdar í umslögum, sem eru merkt og númeruð. Þegar Mr. Hoover þarf að hvíla sig þá fer hann inn i skelfingar her- bergið, sem hann svo nefnir, og styttir sér stundir með því að skoða myndirnar af sjálfum sér, eins og hann er afmál- aður í augum vina og óvina, bæði í Banda- ríkjunum og erlendis. Hinn nafnfrægi þýzki prófessor, Albert Einstein, hefir tekið æfilanga stöðu við visindastofnun í New J'ersey, hann verð- ur því aS búa þar frá 1. okt. til 1. apríl- ár hvert. Hinn tíma ársins er honum frjálst að vera hvar sem hann vill. Sagt er að hann hafi neitað mörgum tilboðum, sem heimtuðu að hann væri burtu frá föðurlandi sínu árið utn kring.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.