Stjarnan - 01.03.1933, Side 1
I-
STJARNAN
Gleymið ekki
“Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum
velgjorÖum hans, sem fyrirgefur allar misgjör'Öir þín-
ar, læknar þín mein, leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir
þig náð og miskunn, sem mettar þig gæÖum; þú yngist
upp sem örninn.” Sálm. 103 :2-4_
Hversu oft sjáum vér ekki menn í háska eÖa á sótt-
arsæng ákalla GuÖ, að hann frelsi líf þeirra. Hann,
sem aumkvast yfir börn duftsins, heyrir ávalt bænir
þeirra og svarar þeim oft og tíðum, til þess að reyna
mennina hvort þeir vilji ganga væg hans og hlýða öllum
boðum hans. Ef þeir gjöra það, þá hvílir blessun hans
yfir þeim í ríkum mæli. En hversu oft kemur það
ekki fyrir, þegar alt gengur þeim í vil, að þeir gleyma
Guði sínum og öllum velgjörðum hans, falla frá Drotni
og drýgja hinar fyrri syndir sínar. Hann sem hefir
leyst líf þeirra frá gröíinni, er vandlátur Guð. Hann
gefur ekki hjáguðum dýrð sína. Vinur, ef þú vilt öðl-
ast blessun Drottins alt til endaloka, þá verður þú að
gæta vandlega boðorða hans, elska náungann og ástunda
kærleika gagnvart öllum. “Þá skal ljós þitt bruna fram
sem morgunroði og sár þitt gróa bráðlega; þá mun
réttlæti þitt fara fyrir þér, dýrð Drottins fylgja á eftir
þér.” Jes. 58:8.
D. G.
MARZ, 1933 WINNIPEG, MAN. Verð i5c
J