Stjarnan - 01.03.1933, Blaðsíða 15

Stjarnan - 01.03.1933, Blaðsíða 15
STJARNAN 47 hvíldardaginn. Hann kvaÖ já viÖ og full- vissaði hana um að hann væri Aðventisti, og hefði bækur til sölu, sem útskýrðu Bibliuna. Hún gladdist mjög yfir þessu og kallaði á mann sinn. Nú var uppfylt- ur spádómur föður hennar. Þau keyptu allar þær bækur sem hann hafði, og pönt- uðu árgang af spánverska blaðinu “Watchman,” sem prentað er í Suður- Ameríku. Pedro Brouchy, formaður starfsins i Buenos Aires hafði þá ánægju að lesa Biblíuna með þessum hjónum og skíra þau. Maðurinn var kennari í fylkinu Corrientes, Argentina. R. H. Er ekki sama hverju maður trúir ? (Framh. frá bls. 35) á nokkrum öðrum, eða nokkru öðru, dregur sjálfan sig á tálar, sér til glötun- ar. Kæri vin, byggir jui von þína á því, sem einhver maður heldur, eða á skýrum og ótvíræðum orður Krists? S. Johnson Mínir sauðir heyra raust mína, eg þekki þá, og þeir fylgja mér, og eg gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að ei- lífu glatast, og enginn skal slíta þá úr minni hendi. Faðir minn, sem hefir gefið mér þá er öllum meiri, og enginn getur slitið þá úr hendi föður míns. Eg og faðirinn erum eitt.—Jóh. 10:27-30. Kæru vinir: Gjörið svo vel að senda öll bréf viðvíkjandi Stjörnunni, borgun fyrir liana og gjafir, til: “STJARNAN,” I-,undar, Man. Þýzkaland hefir áður veitt sjúkum og blindum, og nú nýlega einnig atvinnulaus- um mönnum undanþágu frá að borga víð- varps skattinn, sem er 2 mörk á mánuði. STJARNAN kemur út mánaSarlega Útgefendur: The Canadian Union Con- ference, S.D.A., 209 Birks Building, Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50 á ári I Canada, Bandaríkjunum og Is- landi. Borgist fyrirfram. Ritstjóri: DAVtÐ GUÐBRANDSSON. Afgreiöslu kona.: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Frá Stokkhólmi kemur sú fregn, að atvinnumálanefndin hafi snúið sér til stjórnarinnar með beiðni um að fá 35 miljónir króna í viðbót við þær 23 milj- ónir, sem þegar var ákveðið að veita til að bæta út atvinnuleysinu. Það er þá gjört ráð fyrir að þurfa 60 miljónir fyrir árið 1933-34- í litla ríkinu Siam eru 15,000 musteri, og 150,000 Buddhatrúar prestar. Óeirðir hafa nýlega gjört vart við sig á Spáni. 40 menn voru drepnir í viður- eign lögreglunnar og kommúnista. Elmtré var nýlega höggvið upp á Eng- landi, sem menn álitu að væri 500 ára gamalt. Það stóð rétt hjá húsi því, sem John Milton bjó í, þegar plágan mikla geysaði yfir landið. Þar samdi hann eitt af hinum frægu ritverkum sínum: Para- dis Endurreist. Þegar Ignatius Loyola stofnaði Jesúita regluna á Spáni, fyrir hér um bil 400 ár- um síðan, þá hefir hann víst ekki órað fyrir, að hinn mikli auður Jesúíta mundi verða gjörður upptækur, einmitt í því landi, sem reglan hófst. En nú er svo komið. Um 30 miljón dollara virði af upptækum eignum þeirra er nú notað þjóðfélaginu til gagns í þessu nýja lýö- veldi.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.