Stjarnan - 01.03.1933, Blaðsíða 13

Stjarnan - 01.03.1933, Blaðsíða 13
STJARNAN 45 Sá, sem átöðugur átendur alt til enda mun hólpinn verða “I dag skal eg drepa einhvern ef eg verð ekki sjálfur drepinn áður,” sagSi gamli maÖurinn um leiÖ og hann stökk af hesti sínum og stefndi beint upp a8 húsdyrum sonar síns, með hlaðna skamm- byssu í hendinni. ‘‘Hver hefir nokkurn tíma heyrt slíkt, aS sonur hafi óhlýðnast föður sínum og þa8 í trúarbrögðum,” grenjaði garnli maðurinn er hann snerist um hæl á gólf- inu í stofunni og veifaði byssunni yfir höfði sonar síns, sem nýlega hafði snúiS sér til GuÖs. Konan og börnin höfðu flú- ið út úr húsinu biðjandi um vægð. “Eg vil ekki vita af neinum slíkum í ætt minni. Eg er ennþá húsbóndinn og læt ekki annað eins viðgangast. Hver hefir nokurntíma heyrt slikt, aÖ halda laugar- dag fyrir sunnudag, og bera enga virÖingu fyrir dýrÖlingunum og hinni heilögu kat- ólsku kirkju. Eg vil ekki hafa þaÖ. Þetta getur ekki boriö sig. Heyrir þú mig? ÞaÖ væri betra aÖ við værum öll dauð, heldur en að líða slika hneysu. Hverju hefir þú aÖ svara Olinto? Eg hefi heyrt aÖ presturinn hafi veriS hér á heimili þínu og prédikaÖ. Er það satt? Svaraðu mér.” Gamli maðurinn var farinn aÖ bogna og orðinn grár fyrir hæi'um eins og vænta mátti því hann var sjötugur aÖ aldri. Hann var í ákafri geðshræringu og skalf á beinunum, en sonur hans var rólegur og hlustaði á ávítur fööur síns, nú, er honum gafst færi aö tala, sagði hann meÖ hægÖ, en mjög ákveðið: “EaÖir minn, eg elska þig, og fram að’ þessum tíma.hefi eg hlýtt þér í öllu. Eg er nú 35 ára aÖ aldri og 5 barna faðir, eg virði þig fyrir aldur þinn og reynslu. Þú ert faðir minn og eg er sonur þinn, en sá tími getur komiÖ að maður verði aÖ hlýða Guði fremur en mönnum, jafnvel þó það sé manns faðir. Hlustaðu nú á mig, faðir minn, því þetta er ef til vill í síðasta sinni sem eg tala við þig. Þú getur skotið mig ef þú vilt, því eg er reiðubúinn að mér sé fórnfært, því eg hefi fundið hann, sem er vegurinn, sannleikurinn og lífiÖ, og eg er ákveðinn í því aÖ ganga í ljósinu. Gamli maðurinn leit á son sinn, þeir horfðust í augu um stund. Faðirinn sá einbeittni og alvöru á hinu föla andliti sonar síns. Hjörtu þeirra böörust þar sem þeir horfÖu þarna hvor á annan. Gamli maðurinn sá að þaS var hann sem hlaut aÖ skera úr málinu. Sonur hans hafði svarað honum og neitað að beygja sig til hlýðni viÖ hann, þótt þaÖ skyldi kosta líf hans. “Sonur minn,” sagÖi gamli maðurinn að lokum meÖ tárin í augunum og grát- staf í kverkunum. “Þú ert sonur minn, og eg er faSir þinn, þú hefir ætíÖ verið hlýðinn, eg ætla ekki að skjóta þig.” Að svo mæltu kastaði hann sér niður í stól, sem stóð skamt frá, alveg yfirkominn af þreytu eftir hina áköfu geðshræringu. Nú liðu vikur og mánuðir. Olinto og kona hans lögðu mikla stund á aÖ læra Guðs orð og hlýða því og voru þau skírÖ. Þau voru í sannleika endurfædd með Guðs lifandi og ævarandi orði. Þegar gamli maðurinn heyrði að þau hefðu tekiÖ skírn kom kast í hann aftur svo hann hótaði aÖ binda son sinn við staur og láta öll systkini hans 13 að tölu berja hann nakinn þangað til þau yröu uppgefin. Olinto bíður rólegur og biður Guð sinn og Frelsara án afláts að miskunna sig yfir gamla manninn og gefa honum náÖ til afturhvarfs. R. H. “Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs synir kallaðir verða. Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir réttlætis sakir, því þeirra er himnariki.” “Sælir eru hógværir, því þeir munu landiÖ erfa.” Matt. 5 :g, 10, 5.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.