Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 3
S T J A R N A X 147 Guðs or<5 segir við syndarann: ‘‘ Trú þú á Drottinn Jesúm, og þú munt veröa hólpinn.” Post. 16:31. Þetta ber það með sér að ef syndarinn ekki trúir á Jesúm þá verður hann ekki hólpinn. Hin- ir óhlýðnu geta lesið og rannsakað Biblí- una og fengið skilning á mörgu í henni, en slík rannsókn og þekking verður þeim ekki til frelsunar. Sannleikur, sem er fyr- irlitinn, fótum troðinn eða rangsnúinn, verður mönnum til fyrirdæmingar en ekki frelsunar. Jesús bendir ótvírætt á, að undirgefni undir Guðs vilja, og hlýðni við hann, er vegurinn til að öðlast sanna andlega þekk- ingu: “Ef sá er nokkur, sem vill gjöra vilja hans, hann mun komast að raun um, hvort kenning er frá Guði eða eg tala af sjálfum mér.” Jóh. 7:17. Að vilja gjöra Guðs vilja er það að maður stað- fastlega ákveður að hann skuli hlýða Guði Jesús segir hér að þeir, sem vilji lilýða skuli þekkja kenningar Biblíunnar. Aðal áherslan er lögð á orðið “vill”. Sá, sem vill gjöra Guðs vilja, mun komast að raun um, það er skilja kenninguna. Hlýddu því, sem þú skilur í Guðs orði, þá mun Guðs andi leiða þig lengra og lengra á vegi sannleikans. Jesús sagði: “Eg gjöri ætíð það, sem Faðirinn hefir mér boðið.” Hlýðni Krists við Föður- inn var fullkomin þess vegna var þekk- ing hans á sannleikanum fullkomin. Þegar Guð opinberaði dýrð hins eilífa sáttmála fyrir Abraham, þá mintist hann á hvers vegna hann gjörði sáttmálann við hann: “Af því þú hlýddir minni raust,” það var grundvöllurinn, sem bygt var á. Þess vegna gat Guð sýnt honum veginn og opinberað fyrir honum áform sín. E. S. Bænheyrsla Lyfsali einn segir frá eftirfylgjandi at- buröi: Eg var við nám í höfuðborginni, og það kom oft fyrir að við vorum vaktir aftur og aftur á nóttunni til að afhenda meðul og geðjaðist okkur ekki vel að því. Eina nótt þegar eg átti að annast um afgreiðsluna var dyrabjöllunni hringt. Eg var ekki í sem beztu skapi þegar eg opnaöi dyrnar. Úti fyrir stóð lítill drengur fá- tæklega búinn með glas í hendinni og for- skrift fyrir meðulum, eg bjó út meðulin og afhenti drengnum og fór hann nú leið- ar sinnar. Þegar eg var búinn að slökkva ljósið og hafði lagt mig fyrir, þá greip mig voðaleg hræðsla. Hafði eg gefið drengnum rangt meðal? Var það ekki eitur, sem hann var nú á leiðinni með til að færa móður sinni ? Eg kveikti og fór út í lyfsölu- búðina til að fullvissa inig um hvort svo væri. Því miður. Eg hafði fengið hon- um glas með eitri í og móðir hans hlaut að deyja ef hún tók það inn. Eg stóð þarna frá mér numinn af skelfingu og vissi ekkert hvað eg átti að gjöra. Eg féll á kné og úthelti hjarta mínu í bæn til Guðs um að hann kæmi í veg fyr- ir að konan tæki meðalið. Eg lofaði Guði að ef hann bænheyrði mig, þá skyldi eg þjóna honum trúlega alla æfi mína.— Nú var dyrabjöllunni hring aftur, og er eg kom út stendur sami drengurinn þar hryggur og skjálfandi: “Æ, herra minri, reiðist mér ekki, eg datt og braut glasið,” sagði hann. Hvort eg reiddist. Nei. Eg faðmaði drenginn að mér og þakkaði Guði fyrir bænheyrsluna. X. :• :Hi'. ;

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.