Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 8
152 STJARNAN “Þetta er þá það, sem kristindómurinn hefir að bjóða: Fullkomna fyrirmynd, fyrirgefning syndanna, hvíld fyrir sálina, huggara, félaga, frelsara, og eilíft líf í samfélagi við óteljandi fjölda heilagra engla og manna. Berið þetta saman við örvæntingarkvein, vonleysi og hjartakvöl þá, sem sífelt er hlutskifti vantrúar mannsins. Hvort veljið þér? Þér hafið bæði frjálsræði og tækifæri til að velja. Þér hafið haft nægan tíma til að athuga málið frá báðum hliðum, og hafið orðið hrifnir af lífi Krists og vitnisburði manna um hann. Jesús óskar eftir að taka sér bústað í hjörtum yðar til að veita yður sinn frið með fyrirgefningu synda yðar. “Þeir, sem vilja segja skilið við van- trúna og opinberlega viðurkenna trú sína á Jesúm Krist sem Guðs son og frelsara sinn, þeir sem áður voru vantrúarmenn, en upp frá þessu vilja vera kristnir, gjöri svo vel að standa upp.” Yfir hundraö manns stóð strax upp. Djarfur leit ósjálfrátt þangað sem Ein- arsson var vanur að sitja. Hann gladd- ist mjög er hann sá að bæði hjónin og börn þeirra höfðu staðið upp. “Hr. Einarsson,” sagði hann, “það gleður mig að sjá þig og fjölskyldu þína taka slíka ákvörðun. Er þér nokkuð á móti skapi að segja tilheyrendunum frá hvers vegna þú hefir gjört það?” “Eg skal með ánægju gefa ástæðuna fyrir því,” sagði Einarsson, og mátti sjá gleðisvipinn á andliti hans. “Eg hefi les- ið alla Biblíuna í gegn síðan þessir fyrir- lestrar byrjuðu. Margt sem eg hélt að Biblían kendi finst ekki í henni, og það sem eg hélt að væru mótsagnir reyndist alls ekki svo, þegar efnið var nákvæmlega rannsakað. Þegar eg las Nýja Testa- mentið þá fann eg í Jesú frið og ham- ingju í fyrsta sinn á æfi minni. Hin skelfilega tilfinning að eg væri einn í hin- um mikla geimi tilneyddur sjálfur að fálma áfram til að komast í gegn um heiminn, hvarf alveg þegar eg greip í hönd Krists, hans, sem alt hefir skapað. Sanfæringin um að alt mitt ranglæti og yfirsjónir hverrar tegundár sem eru, séu allar fyrirgefnar, veitir þá sælurikustu tilfinning, sem hægt er að öðlast. Ótti sá, sem hefir gripið mig er eg hefi litið fram á ókomna tímann hefir breyzt í uppsprettu fagnaðar, og þakklætis til Krists. Eg hefi ávalt virt hann mikils, en nú treysti eg honum og trúi á hann sem minn eigin vin og frelsara.” Djarfur bað nú alla, sem upp höfðu staðið að koma og mæta sér svo hægt væri að gjöra undirbúning fyrir þá að sameinast söfnuðinum svo þeir einnig gætu verið með í starfinu að flytja fagn- aðarerindið til allra þjóða heimsins. Fremst í flokki voru þau Einarsson og kona hans, Guðmundur, sem nú hafði öðlast nýjan og lifandi áhuga til að starfa, og Lilja, er áður var gálaus og glettin, en sem nú endurspeglaði hugarfar Krists, rósemi og staðfestu. B. A. Rowell. ENDIR Búnaðarskóli og heilsu- hœli Ein af stofnunum þeim, sem gjöra sitt til að mæta þörfum manna á hinum suð- lægu fjöllum Norður-Ameríku, er bún- aðarskólinn og heilsuhælið í Ashville, það er kristilegur skóli. Ungt fólk, sem ann- ars yrði að fara á mis við mentun, kemur þangað til að læra bæði bóknám og verk- legar iðnir, sem gjöra það fært um að verða nytsamir borgarar. Heilsuhælið hefir hjúkrunarskóla, sem kennir unga fólkinu, sto það geti orðið trúboðar og líknarstarfendur meðal fólks- ins á fjalllendinu og veitt því líkamlega og andlega hjálp. Ein hj úkrunarkona gefur allan tíma sinn til að heimsækja heimilin og leiðbeina mæðrum hvað þær geti gjört fyrir börn, sem ekki hafa haft næga fæðu, og um leið veitir hún alla hjálp, sem hún getur í heilsufræðis efn- um. Dr. J. L. Brownsberger.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.