Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.10.1933, Qupperneq 5
S T J A R N A N 149 fyrir þessu frá náttúrlegu sjónarmiöi. Þér kannist viíS a'Ö engin önnur bók í heiminum hafi inni a'Ö halda verulega spádóma. Spádómar Biblíunnar eru leyndardómur — óskiljanlegur leyndar- dómur fyrir vantrúarmanninn. “Kristindómurinn by'ður yður Krist. Þetta er hin óhrekjanlegasta staÖreynd, sem til er í mannkynssögunni, samkvæmt vitnisbur'Öi ýmsra vantrúarmanna, sem þér hafið heyrt. Þeir hrósuðu Kristi meir en nokkrum öðrum manni í heiminum, og nokkrir hinna helstu vantrúarmanna sleptu að lokum vantrú sinni, og játuÖu opinberlega meÖ fögnuöi trú sína á Krist. “Látum oss nú athuga hvað Kristur hefir verið fyrir mannkynið, og þá einnig persónulega fyrir yöur. Fyrir áhrif sög- unnar um miskunnsama Samverjann og aðrar kenningar Krists ásamt hans eigin viðkvæmu umhyggju fyrir hinum sjúku, þá hefir útburður barna og sjúklinga og vanræksla gagnvart þeim lagst niður. Nú er særðum og sjúkum hjúkrað á spítölum og heilsuhælum. Alt sem í manns valdi stendur er gjört til að lækna sjúkdóma og hlynna að sjúklingum þar sem kristin- dómurinn hefir náð að festa rætur. “Ef þér vinnið að þvi að endurbæta fé- lagslífið, og hafið umhyggju fyrir hinum fátæku, þá hugsið eftir hvað kristindóm- urinn hefir afrekaS á því sviði. Þræla- hald hefir verið afnumið fyrir þá kenn- ingu Krists, að allir menn væru af einu blóði, og þess vegna fyrir Guði sem bræð- ur og systur. Jesús huggar og hughrevst- ir hina undirokuðu, en ávítar hina eigin- gjörnu ríku. Hann heimtar ekki ölmusu- gjafir heldur réttlátar grundvallar reglur í félagslífinu gagnvart öllum jafnt. “Ef þér skoðið mentun nauðsynlega til velmegunar og framfara mannkynsins, þá athugið hvernig Jesús hvatti til framfara í þá átt. Hann leitaðist við að hjálpa mönnum bæði í tímanlegum og andlegum efnum, gjöra þá heila bæði á sál og lík- ama. Þegar Jesús sagði: “FariS og kennið öllum þjóðurn,” þá kom hann af stað hinum sterkustu öflum, sem send hafa verið út um heiminn. Það er ákaf- lega mikið innifalið í þessari skipun. Til þess að uppfylla hana verða kristnir menn að kynna sér sögu þjóðanna, svo þeir geti flutt þeim fagnaðarerindið og ofið það inn í alt líf þeirra og hugsunarhátt. “Til að ná þessu takmarki uröu menn að stunda sjómannafræði og sjóferðir, svo þeir gætu náð til allra þjóða, eins og þeim var boðið. Skipun þessi hefir komið ó- teljandi framkvæmdum af stað á öllum þessum öldum, sent menn niður í dýpi jarðarinnar, hafið þá upp á vængjum vindanna, flutt þá yfir brennandi sanda eyðimerkurinnar, og yfir hin köldu, af- skektu héruð kuldabeltisins, og hinar lítt kunnu fjallabygðir Tíbets. Og til hvers alt þetta? Til þess að fullnægja skipun- inni og flytja boðskapinn. “Skipunin um að kenna öllum þjóðum felur í sér að kennarinn verður að vita meira en nemandinn, svo til þess að flytja boðskapinn hafa 800 tungumál verið prentuð, og trúboðarnir hafa þýtt kristi- legar bækur og rit á þessi mál. Satt að segja hefir þekking vor á landafræði að miklu leyti komið frá trúboðunum, sem hafa rutt brautir þar, sem verzlunar- menn ekki hafa vogað að stíga fæti sín- um. “Þjóð sú, sem Jesús fæddist hjá var hötuð og ofsótt framar öllum öðrum þjóð- um heimsins, auk þess sem hún hélt fast við sínar skoðanir, var ómannblendin og lifði eins og út af fyrir sig. En Jesús hreif alla jafnt, bæði Austur og Vestur- landa búa. Hann er jafnt fyrir allar þjóðir. “Sócrates kendi í 40 ár, Plato í 50 ár, og Aristoteles í 40 ár, en Jesús aðeins í þrjú og hálft ár, en kenning hans þenna stutta tíma tekur langt fram, og hefir langt um víðtækari áhrif heldur en allar kenningar Sókratesar, Platos og Aristo- teles yfir 130 ára tímabil, þótt þeir væru helstu kennarar fornaldarinnar. “Jesús var enginn rithöfundur, en þó. er oftar vitnað til orða hans heldur en nokkurs rithöfundar. Orð hans hafa náð

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.