Stjarnan - 01.10.1933, Síða 4

Stjarnan - 01.10.1933, Síða 4
Davíð Djarfur og fríhyggjumennirnir Fólksfjöldinn hafÖi nú safnast saman til að heyra síðasta fyrirlestur Djarfs. Samtal það, sem heyrðist hér og þar um salinn milli einstaklinga og smáhópa af fólki sýndi áhugann fyrir málefninu. Lilja var hrifin. “Ætli nokkuð komi fyrir í kvöld,” sagði hún við föður sinn. “Efalaust kemur eitthvað fyrir, barnið mitt, en ekki það sem jn'i sýnist vænta eftir. Það verður engin kappræða i kvöld.” “Hversvegna ekki ? Hvað annað get- ur komið fyrir?” “Það verða engin mótmæli, af því öll aðalatriðin í málinu hafa fengið fullnægj- andi skýringu, og efnið sem talað verður um í kvöld er of mikilsvarðandi fyrir oss öll til þess að grípa fram í, að þarflausu.” En Lilja vildi nú ekki gefa upp og spurði því aftur: “Hvað getur þá komið fyrir ?” “Eg get ekki sagt þér það,” svaraði Einarsson brosandi, er hann sá hve al- varleg dóttir hans var orðin, “en eg býst við að margir gjöri þá ákvörðun, sem hafa mun áhrif á alt líf þeirra framvegis.” Lilja leit nú beint framan i föður sinn, óvenjuleg alvara lýsti sér í svip hennar. Guðmundur og frú Einarsson sátu þegj- andi en þau hlustuðu á samtalið með ná- kvæmri eftirtekt. “Hefir þú gjört ákvörðun þína, pabbi ?” “Ekki enn þá, en eg býst við að gjöra það. Eg ætla fyrst að heyra hvað krist- indómurinn hefir að bjóða. Hefir þú tekið nokkra ákvörðun?” spurði hann dóttur sína. “Já, pabbi, eg vona að þú hafir ekki á móti því.” “Þú veist eg gjöri það ekki. En þú Guðmundur?” Guðmundur hneigði höf- uð sitt til samþykkis. “En þú, kona mín?” Frú Einarsson svaraði rólega en ákveðið : “Já, eg hefi alt af hallast aö kristindóm- inum.” Alt í einu sló í þögn, því dr. Magnús- son og ræðumaður gengu upp að ræðu- pallinum. Djarfur stóð upp til að tala og mannfjöldinn beið eftirvæntingarfull- ur eftir að heyra hvað hann hefði að segja. “Hvað hefir kristidómurinn að bjóða mönnum?” byrjaði hann. “Þér hafið heyrt viðurkenningar helstu vantrúar- manna um aS vantrúin hafi blátt áfram ekkert nema örvæntingu, vonleysi og skelfandi einstæðingsskap að bjóða mönn- um. Þér hafið hlustað á vonleysi það og þrá, sem þeir hafa látið í ljósi. “Þér eruð vitni þess hvernig Biblían segir fyrir fram sögu hinna helstu þjóða fornaldarinnar, jafnvel alt til tímans enda. “Enginn yðar, og enginn annar getur hrakið það að spádómar þessir voru gefn- ir hundruðum ára áður en atburðirnir áttu

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.