Stjarnan - 01.02.1934, Page 2

Stjarnan - 01.02.1934, Page 2
i8 STJARNAN Treyátið Guði Mudima er prédikari í NorÖur Rho- desia í Afríku. Hann var meðal hinna fyrstu, sem varð kristinn af drengjunum á trúboðsstöðinni í Solusi, þegar Mr. Anderson fór af stað til að stofna nýja trúboðsstöð hinum megin við Zambesi fljótið tók hann Mudima með sér til að keyra uxana. Þar var talað annað tungu- mál, en drengurinn lærði það á stuttum tíma, og fór hann svo að kenna í þorpi einu þar í nágrenninu. Seinna tók hann upp jarðyrkju. Á hverjum hvíldardegi prédikaði hann fyrir fólkinu, sem vann hjá honum og hjálpaði til á hvíldardaga- skólanum í þorpinu. Einu sinni fór Mudima til Rusangu trúboðsstöðvarinnar á föstudags eftirmið- dag. Hann hafði keyrt 42 mílur á reið- hjóli. Morguninn eftir kom drengur til vor meö þá orðsendingu að Mudima væri hættulega veikur. Vér brugðum strax við til að heimsækja hann og fundum hann mjög þjáðan, þar sem hann lá stynjandi á jörðunni. Hj úkrunarkonan á stöðinni sagði að hann hefði botnlangabólgu, og mundi eflaust deyja, ef hann yrði ekki skorinn upp. Vér fluttum hann til næsta sjúkrahúss sem var 40 mílur í burtu. Læknirinn þar hafði litla von um að hann gæti lifað, en var þó fús til að hjálpa honum, eða gjöra tilraun til þess með því að skera hann upp. Vér urðum að fara heim á trúboðsstöð- ina um kvöldið og kvöddum Mudima hryggir í huga, en sögðum honum jafn- framt að vér ætluðum að kalla alla kenn- arana saman og biðja fyrir honum. Þremur dögum seinna fórum vér aftur til sjúkrahússins til að vita hvort Mudima væri dauður eða lifandi. Vér litum inn i herbergið þar sem hann hafði legið og: sáum að það var autt, og bjuggumst því við að hann væri þegar dáinn og jarðaður. Rétt í þessu bili mættum vér aðstoðar- manni læknisins, og sagði hann oss að Mudima hefði farið til Lubomha á sunnu- dagsmorguninn, þetta var þorp eitt 5 míi- ur í burtu og vér höfðum skóla þar. Vér keyrðum þangað í skyndi því vér hugs- uSum hann hefði búist við að deyja, og hefði þá ekki viljað vera meðal ókunn- ugra og því leitað til hins næsta vinar síns, kennarans. Kennarinn í Lubomba sagði að Mudima hefði verið þar og haldið tvær samkomur í þorpinu, svo hefði hann farið til Mama- Ionga, hér um bil 5 mílur lengra í burtu, þar höfðum vér einnig skóla. Vér ókum þangað í flýti og mættum honum þegar hann kom út úr skólahúsinu. Hann leit alls ekki út fyrir að vera veikur og varð mjög hissa, er vér sögSum honum hve á- hyggjufullir vér hefðum verið um heilsu hans og líf. “Sögðuð þið ekki að þið ætluðuð að biðja fyrir mér?” spurði hann. “Vissulega,” svaraði eg, “allir kennar- arnir komu saman til að biðja fyrir þér.” “Og Drottinn læknaði mig,” sagði hann. Svo mintist hann á hve ákaflega veikur hann hefði verið hvíldardags eftirmiðdag- inn þegar vér skildum við hann á sjúkra- húsinu, en svo hefði hann sofnað. Þegar hann vaknaði morguninn eftir kendi hann sér einkis meins. Þá kvaðst hann hafa sagt við sjálfan sig: “Nú hefir GuS læknað mig svo eg verð að fara og segja fólkinu sem ekki biður til Guðs, hvaS hann hefir gjört fyrir mig.” Þetta var erindið sem hann átti til að heimsækja þessi þorp. Hann hafði ekki einu sinni beðið þess að læknirinn kæmi að sjá hann um morguninn. Læknirinn hafði búist við að finna Mudima aðfram- kominn og varð því alveg forviða þegar hann heyrði að sjúklingur hans hefði far- ið i burtu fótgangandi. Mudima trúði þvi fastlega að Guð hefði læknað hann sem svar upp á bænir vorar, (Framh. á bls. 23)

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.