Stjarnan - 01.02.1934, Qupperneq 11

Stjarnan - 01.02.1934, Qupperneq 11
STJARNAN 2 7 þær barnalegar, en minnist þess, vinir mínir, er Jesús sagÖi: “Nema þér snúið viÖ og verÖiÖ eins og börn, komist þér alls ekki inn í himnaríki.” Matt. 18:3- Vér þurfum i barnslegri einlægni að taka Guð á orðinu, og munum vér þá reyna að lof- orð hans bregðast ekki. Menn segja oft að Guð gjöri ekki kraftaverk nú, eins og í fyrri daga. En ef svo er, hvers vegna gjörir hann það ekki? Ætli það sé ekki vegna vantrúar vorrar? Vér þurfum að þekkja Guðs orð, gjöra Guðs vilja, biðja til Guðs og treysta honum, og þá munum vér sjálfir fá að reyna að Guð er sá sami í dag og í gær og að eilífu. Þegar vér höfum öðlast þessa reynslu, þá finnum vér fyrst að lífið er þess vert að lifa. Eg þekki fólk mitt á meðal vor sem nýtur þessarar óumræðilegu blessun- ar. Ef þér, kæru lesendur Stjörnunnar, hafið einhverja sérstaka reynslu fyrir trú- festi Guðs og hænheyrslu, þá gjörið svo vel að skrifa mér um það, svo það megi verða öðrum til uppörfunar og trúar- styrkingar, og vekja löngun þeirra til að þjóna Guði af öllu hjarta og varpa allri sinni áhyggju upp á hann. ■S\ Johnson. Spurningar og svör Hvaða loforð hefir Jesús gefið þeim, sem koma til hans ? “Þann, sem til mín kemur, mun eg alls ekki burt reka?” Jóh. 6:37. Hvaða gagn hefir maður af því að játa syndir sínar? “Ei vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.” 1. Jóh. 1 :g. Hverju er þeim heitið, sem sýna trú- mensku í öllu lífi sínu og starfi? Þeir munu öðlast trúrra þjóna verðlaun og innganga í fögnuð herra síns. Matt. 25:23- Hvers mega þeir vænta, sem vita vilja herra síns, en gjöra hann ekki? “Sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns og hefir ekki viðbúnað né gjörir vilja hans mun barinn mörg högg.” (mun sæta mikilli refsingu, Eldri þýS.) Lúk. 12:37. Hvað skulum vér þá segja um þann f jölda manna og kvenna, sem vita að sjö- undi dagurinn er hvíldardagur Drottins, sem hann hefir blessað, helgað og boðið að halda heilagan, en þó fótum troða og fyrirlíta þetta boðorð Guðs? Vér getum aðeins sagt: Guð miskunni sig yfir fólkið og gefi því náð til iSrunar og afturhvarfs. N. Johnson. “Hví ert þú beygð, sál min ? (Framh. frá bls. 20) trúar yðar verkar þolgæði, þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki,” árangurinn verður þá sá, “að þér séuð fullkomnir, algjörðir og yður sé í engu ábótavant.” Jak. 1:3-4. OrðiS segir hér að vér skulum gleðjast þegar vér rötum í allskonar raunir, ekki siður en þegar vér komumst úr þeim. Pétur segir oss hvers vegna; því vér mun- um reyna þegar að oss þrengir, að vor blessaði Frelsari sleppir ekki af oss hend- inni og yfirgefur oss ekki, því um hann er sagt: “Þannig veit Drottinn hvernig hann á að hrífa hinn guðhrædda úr freist- ingu.” 2. Pét. 2 :g. Svo hversu þungar raunir, sem vér röt- um í skulum vér aðeins spyrja sjálfa oss: “PIví ert þú beygð sála mín og ólgar í mér ?” Því svarið verður ávalt hið sama: “Vona á Guð, því enn mun eg fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og minn GuS.” T. E. Bowen. Afvopnunarmálið á nú að liggja í þagn- argildi í tvo mánuði af því þeir sem að því vinna geta í engu orðið á eitt sáttir.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.