Stjarnan - 01.02.1934, Side 13

Stjarnan - 01.02.1934, Side 13
STJARNAN 29 Alvarlegur draumur E. G. White Meðan eg var í Battle Creek í ágúst mánúði 1868 dreymdi mSg að eg var stödd þar sem mikill f jöldi fólks var sam- ankominn. Sumir úr þessum hóp voru að leggja af stað útbúnir í ferðalag. Við vorum meS hlaðna vagna mteð okkur, og vegurinn var upp í móti. Öðrumegin vegarins var hyldýpis gjá, en hinum meg- in var hár, hvítur, sléttur veggur, nálega eins og kölkuðu veggirnir á húsum vor- um. Eftir því seml við gengurn lengra, mjókkaði vegurinn smám sarnan og varð einnig brattari. Sumstaðar var 'hann svo mjór, að við sáum, að við gátum ekki lengur haft hina þungu vagna með okkur. '—Við tókum hestana frá vögnunum og tókurn nokkuð af farangrinum úr vögn- unum og létum á hestana og héldum svo áfram ferðinni ríðandi. Er við komúm lengra áleiðis, varð veg- urinn enn mjórri. Við urðum að gæta þess, að vera fast við veginn svo að við dytturrf ekki niður i gjána. En þegar við gerðum þetta, rákust baggarnir, er voru á hestunum svo í vegginn, að nærri lá að hestarnir hröpuðu niður í gjána hinum megin. Við urðum hrædd um að þetta myndi koma fyrir, og við merjast í sund- ur á klettunum. Skárum við því bagg- ana af hestunum, og þeir ultu niður í gjána. Við héldurn nú ferðinni áfram ríðandi, en þegar vegurinn varð sum staðar ennþá tæpari, urðum viS hrædd um að okkur myndi svima og við detta af baki. Á slíkum augnablikum virtist sem hönd tæki í taumana og hjáipaði okkur yfir hinn hættulega kafla vegarins. Með því að vegurinn mjókkaði stöðugt, sáum við, að það myndi vera hættulegt fyrir okkur að ríða lengur, skildum við því hestana eftir og gengum, einn og einn, hver á eftir öðrum.— Nú voru reipin láta síga niður til okkar ofan af brúninni á hinum hreina, hvíta vegg, og gripum við í þau með ákefð, til þess að halda jafnvæginu á veginum.— Reipin færðust áfram jafnt okkur er við gengum eftir veginum.—Loks varð veg- urinn svo tæpur, að okkur fanst að við ntyndum eiga hægra meö að ganga skó- laus, við tókum því skóna af okkur og gengum um stund á sokkaleistunum. En brátt sáum við að hættuminna myndi vera fyrir okkur að ganga berfætt, við fórum því einnig úr sokkunum og héldum áfram berfætt. Þá hugsuðuml við um þá, er ekki höfðu vanist vöntun né að þeim gengi neitt á móti. — Hvar voru þeir nú? ,Þeir voru ekki í fylgd með okkur. í hvert sinn og einhver hindrun kom, voru nokkurir, sem urðu eftir, og aðeins þeir, sem höfðu vanið sig á aS þola erfið- leika, gáfust ekki upp. Þrautirnar, er þessir mættu á veginum, urðu einungis til þess, að auka þrá þeirra og eftirsókn eftir að komast alla leið. Það varð sí- felt meiri og feiri hætta á því að við féll- um út af veginum. — Við þrengdum okk- ur fast upp að hvíta veggnum, en gátum þó ekki haft fulla fótfesti á veginum, því að hann var svo mjór.— Við hénguml því í reipunum meS næst- um öllum þunga vorum og kölluðum við og við: “Okkur er haldið uppi ofan að ! Okkur er haldið uppi ofan að!” Allur hópurinn, sem var á mjóa veginum end- urtók sömú orðin Við heyrðum óm af hlátri og glaumkæti, er virtist koma neð- an úr gjánni, og urðum gagntekin af ótta. —Við heyrSum blót og formælingar, létt- úðartal og götuvsur. Við heyrðum bar- dagasöngva og dansvísur. Við heyrðum hljóðfæraslátt og skellihlátur blandast sarrtan við blót og ragn, angistaróp og beiskan grát og jók þetta á löngun okkar til að halda okkur á hinum ntjóa, erfiða vegi.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.