Stjarnan - 01.02.1934, Page 9
STJARNAN
25
gulliÖ hans með því. Var hann vitur í
vali sínu? Hann tapaði gullinu en frels-
aði litlu stúlkuna. Hvort var dýrmæt-
ara?
Dýrðleg verðlaurí
Vér verðum að fórna sjálfum oss með
Jesú ef vér viljum ríkja með honum. Já,
það mun kosta oss eitthvað að frelsa sálir
með því að leiða þær til Krists, en það
borgar sig. Vér getum aldrei lagt of
mikið í sölurnar. Það mun kosta oss
nokkuð að ljúka við starfið, að flytja
fagnaðarerindið út um ailan heim, en það
borgar sig. Óumventur maður sagði einu
sinni við vin sinn: “Eg vildi gefa alt til
þess aS eiga þína von og trú.” “Það er
einmitt hvað það kostaði mig,” svaraði
vinur hans. Og það er satt. Það mun
kosta oss eitthvað að komast i Guðs ríki,
já, vér verðum að gefa alt, til þess að geta
öðlast verðlaunin, en þau eru þess verð.
Starfinu veröur bráðum lokið og Jesús
kemur, það er hafið yfir allan efa. Starf-
ið þarfnast hjálp þína. Ert þú fús til að
styðja það? Vilt þú gefa af eigum þín-
um til að flýta fyrir útbreiðslu fagnaðar-
erindisins, sem oss er svo kært? Hve
mikið getur þú gjört? Eegðu það fram
fyrir Guð, talaðu um það við hann.
Leyfðu hans anda að hvísla að þér hvað
hann vill að þú gjörir. Jesús gaf líf sitt
fyrir oss. Hvað ættum vér að gjöra
fyrir hann?
N. P. Neilsen.
Fyrir trú skynjum vér
Sönn visindi eru í samræmi við Guðs
opinberaða orð. Náttúrufræðingurinn
veit að allar skepnur framleiða “eftii
sinni tegund.” Vísindamaöurinn, sem
rannsakar efnin í dýra-, jurta- og steina-
ríkinu kemst að þeirri niðurstöðu að alt
er myndað “af dufti jarðar.” En vísind-
in geta ekki skýrt leyndardóm sköpunar-
innar. Spurningunni, sem beint var að
Job (Job 11 :y) “Getur þú náð til botns í
Guði?” (það er með vísindalegum rann-
sóknum gjörþekt hann), er svarað í
Orðskv. 3:11. “Aðeins fær maðurinn
ekki skiliS það verk, sem Guð gjörir frá
upphafi til enda.” Jes. 40:28. Speki
hans er órannsakanleg.” og Róm. 11:33.
“Hversu órannsakandi dómar hans, og ó-
rekjandi vegir hans?”
“Fyrir trú skynjum vér heimana gjörða
vera með Guðs orði.” Hebr. 11:3. Hið
innblásna orð segir að Guð skapaði heim-
inn á 6 dögum, þess vegna trúum vér því.
“Fyrir trú skiljum vér,” það sem vér get-
um ekki skilið á annan hátt.
Fyrir vorum náttúrulegu skilningarvit-
um er sjöundi dagurinn ekkert frábrugð-
inn öðrum dögum. Vér sjáum mismun á
degi og nóttu, á nýju og fullu tungli, á
vetri og sumri. Dagurinn, mánuðurinn
og árið er alt afmarkað með hreyfingu
himinhnattanna, en hvíldardagurinn kem-
ur alla daga ársins og mánaðanna. Hreyf-
ingar himinhnattanna, veður og aðrar
kringumstæður eru þær sömu á hvíldar-
daginn og alla aðra daga.
En fyrir trú skiljum vér, að Guð skap-
aði heiminn á 6 dögum, og fyrir þá sömu
trú vitum vér að hann blessaði og helgaði
sjöunda daginn. Og fyrir þessa trú er
hvíldardagurinn ólíkur öðrum dögum.
Það er sú trú, án hverrar er ómögulegt
Guði að þóknast, (Hebr. 11:6), sú trú,
sem ekki gjörir lögmálið að engu, heldur
staðfestir það. (Róm. 3:31). Það er
Jesú trú. Sú trú finnur blessun Guðs í
hvíldardeginum, og leiðir menn til að
halda Guðs boðorð. Opinb. 14:12.
C. Rosser.