Stjarnan - 01.04.1934, Page 1

Stjarnan - 01.04.1934, Page 1
STJARNAN APRIL 1934 WINNIPEGr, MAN. Heimþrá Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita eg árla, mína sálu þyrstir eftir þér. Að þrá, er að óska innilega, langa eftir því, sem maður hefir ekki. Það, sem maÖurinn þráir það elskar hann og sækist eftir því, hug- urinn snýst um þaÖ sem hjartaÖ þráir, og það kemur til að ráÖa lífsstefnu mannsins. Þess vegna er auðvelt aí5 þekkja sjálfan sig á því, hvað maður þráir og óskar eftir. Engin sjálfs- prófun er sönn, sem ekki tekur óskirnar með í reikninginn. Sannkristinn maður hefir margar óskir. Hann þráir að geta sigrað sérhverja freistingu. Hann langar til að þóknast frelsara sínum. Hann þráir að sjá aðra menn sameinaða Jesú í lifandi trú. En þó er ein ósk hjá honum, sem eins og yfirgnæfir allar hinar, það: er vonar- draumur hans um að koma í heimkynni Guðs barna, þangað sem Jesús er. Þessi djúpa þrá er á engan hátt ávöxtur eigingirni og sjálfselsku. Að vísu getur krist-- inn maður þráð hvíld og ró himinsins, sem at- hvarf frá stríði þessa lífs, en hann þráir himin- inn miklu meira af því hann elskar þá, sem þar búa. Þessi heimþrá til himinsins er órækt merki þess að maðurinn er Guðs barn. Því meira sem hann þráir himininn, því innilegar gefur hann sig Guði á vald. Sá, sem ekki þráir himininn er ekki Guðs barn, og kristindómur hans er að- eins yfirskin en enginn verulegleiki. Mörgum mun ef til vill finnast til þessara orða, og þau eru hörð fyrir hinn nafnkristna, en þau eru sönn engu að síður. Hvernig getum vér vitað hvort vér í sann- leika þráum himininn ? Það er áríðandi spurn- ing, því í þessu efni draga margir sig á tálar. Margir ímynda sér að þeir þrái himininn, ])ótt þeir aldrei að eilífu yrðu ánægðir að vera þar, ef þeir kæmu þangað. Guð vill sannarlega hafa þá alla á himnum, sem vilja vera þar og eru hæfir fyrir himininn. Það var ekki fyr en satan varð óánægður með himininn og vildi fá breytingu, að hann var rekinn burt. Guð hefir gefið oss mörg óræk merki upp á sanna heimþrá til himinsins; vér skulum nefna hér nokkur þeirra: 1. Sá, sem langar til himinsins er bænræk- inn. Hver, sem ekki vill tala við Jesúm í bæn, mundi heldur ekki óska að tala við hann á himnum. 2. Þeir, sem þrá himininn, vilja gjarnan vera saman með Guðs börnum hér, vilja gjarnan tilheyra Guðs söfnuði. Þeir, sem ekki gleðjast af að tala við trúaða hér, mundu heldur ekki hafa ánægju af að tala við þá endurleystu á himnum. 3. Þeir, sem þrá himlininn els’ka lögmál Guðs, hin tíu boðorð. Þau eru sem grundvöll- urinn undir allri stjórn himinsins. Þeir, sem fyrirlíta Guðs boðorð mundu fljótt vilja komast burtu aftur frá himnum, ef þeir kæmu þangað, því þar eru Guðs boðorð haldin og í heiðri höfð. 4. Þeir, sem þrá himininn tala oft um Jesúm. Þeir endurleystu tala og syngja um hann án afláts. 5. Þeir, sem þrá himininn elska ekki þenn- an heim, þeir fylgja ekki tízku heimsins, sækj- ast ekki eftir skemtunum hans, og safna sér ekki fjársjóðum á jörðu. 6. Þeir, sem þrá himininn tala um hann. Þeir vilja heldur tala um himininn heldur en um nágranna sína eða sjálfa sig. 7. Þeir, sem í sannleika þrá himininn, búa sig undir eilífðina. 8. Sá, sem þráir himininn, leitast við að feta í fótspor Jesú, og lifa eins og hann lifði. Kæri lesari, þráir þú himininn? Himininn er þess verður að þú hugsir um hann og þráir hann. Himininn er dýrðlegur bústaður. L. H. C.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.