Stjarnan - 01.04.1934, Qupperneq 7
STJARNAN
55
I fótspor frelsarans
Konungur konunganna, Drottinn dýrÖar-
innar, yfirgaf auð, heiÖur og vald, til aS frelsa
fallna nienn, hann kom til jarðar og lifði í nifi-
urlæging og fátækt. “í sta'Ö gleÖi þeirrar.
sem hann átti kost á leið hann þolinmóðlega á
krossi og mat smán einskis.”
Hví erum vér þá svo tilfinninganæmir í til-
liti til þjáninga og fyrirlitningar, þegar Drott-
inn vor og meistari hefir gefið oss slíkt dæmi?
Getum vér gjört oss von um að fá inngöngu í
fögnuð herra vors, ef vér erum ófúsir á að
taka þátt í pislum hans?
Skyldi þjónninn vera ófús til þess að lifa í
niðurlægingu og smán Krists vegna, þegar
meistarinn og herrann þoldi alt þetta hans
vegna? Skyldi þjónninn hika sér við að lifa
lífi í auðmýkt og sjálfsafneitun, sem mun afla
honum eilífrar gleði?
Innilegasta ósk hjarta míns er, að eg mætti
fá hluttöku í píslum Krists, til þess að eg á
siðan mætti verða hluttakandi í dýrð hans.
Hinn guðlegi sannleikur hefir aldrei verið
heiðraður af heiminum. Af náttúrunni til er
maðurinn í uppreisn gegn sannleikanum. En
með Guðs hjálp er það mögulegt að segja skil-
ið við alt dramblæti, kærleika til heimsins og alt
það, sem leiðir hjartað frá Guði, til þess að
tylgja Kristi. Þeir, sem hlýðnast sannleikan-
um verða aldrei í miklum metum hjá heimsins
börnum. Þegar hinn guðdómlegi meistari gekk
um meðal mannanna barna hljómuðu þessi orð
af vörum hans: “Vilji einhver fylgja mér, þá
aíneiti hann sjálfum sér, og taki upp kross sinn
daglega og fylgi mér.” Lúk. 9:23.
Látum oss fylgja meistara vorum. Leitað-
ist hann við að ná heiðri manna? Nei, og
aftur nei. Eigum vér þá að sækjast eftir heiðri
og hylli heimsins?
Þeir, sem ekki elska Guð elska ekki heldur
börri hans. Heyrið hvað vor himneski meistari
segir: “Vei yður er allir menn tala vel um
yður.” Lúk. 6:26. “Sælir eruð þér þá er menn
atyrða yður og ofsækja, og tala ljúgandi alt
ilt um yður, mín vegna. Verið glaðir og fagn-
ið, því laun yðar eru mikil á himnum.” Matt.
5:11,12. E.G.White.
Veizlur
“Þegar þú heldur miðdegisverð eða kveld-
verð, bjóð þú þá hvorki vinum þínum, né
bræðrum þínum, né ættingjum þínum, ekki
heldur ríkum nágrönnum þinum, svo að þeir
séu ekki að bjóða þér aftur og þú fáir endur-
gjald.
En þegar þú gjörir heimboð, þá bjóð þú fá-
tækum vanheilum, höltum og blindum, og ]?á
rnunt þú verða sæll, því þeir hafa ekkert að
endurgjalda þér með, en þér mun verða endur-
goldið það í upprisu hinna réttlátu.
Lúk. 14:12-14.
Mikilvœgaála uppgötvunin
Hinn frægi læknir, Simpson, sem dó 1870,
hafði fundið upp ýms meðul og aðferðir til
lækninga sjúkdómum. Uppfynding hans að
nota chloroform við uppskurð var af öllum
álitin hin þýðingarmesta, því það létti þjáning-
ar sjúklinganna og hefir verið til ómetanlegrar
blessunar fyrir mannkynið. Þegar Dr. Simp-
son lá á banasænginni, spurði einn af vinum
hans, hverja af uppgötvunum hans hann áliti
þá þýðingarmestu. Hann svaraði viðstöðu-
laust: “Eg uppgötvaði að eg var syndari, og
að mér stóð fyrirgefning og frelsi til boða fyrir
trúna á Jesúm Krist.”
Hefir þú gjört slíka uppgötvun?
Það sem enginn getur
frá oss tekið
Margir hafa mist heimili sitt og eignir á
þessum síðustu árum. Trúuð hjón nokkur
urðu nýlega að ganga gegn um þessa reynslu.
Þegar konan mintist á þetta sagði hún: “Þegar
við höfðum sezt við borðið, til að undirskrifa
skjölin, sem afsöluðu oss öllum1 eignarrétti
yfir heimilinu, þá hneigðum við höfuðin og
þökkuðum Guði fyrir meðvitundina um, að við
í öllu hefðum breytt ráðvandlega. Eftir að við
höfðum skrifað nöfn vor, sagði eg: “Við höf-
um ekki afsalað okkur heimilinu á himnum, né
Drotni vorum og hans dýrmætu fyrirheitum,
við höfum heldur ekki afsalað kærleika vina